Vatnsbyssum beint að Elvari eftir 28 stiga sýningu Sindri Sverrisson skrifar 6. apríl 2026 22:16 Elvar Már Friðriksson átti stórleik í kvöld. Getty/Jón Gautur Íslendingar hafa fengið að kynnast því vel hve stórkostlegur Elvar Már Friðriksson getur verið á körfuboltavellinum og í dag fékk pólska liðið hans, Anwil Wloclawek, að njóta góðs af því. Hann var svo rennbleyttur í leikslok í tilefni dagsins.
Elvar og félagar lentu mest 18 stigum undir gegn Stal í kvöld en þá tók Elvar til sinna mála og sá til þess að heimamenn næðu að fara með frábæran sigur af hólmi, 90-81. Elvar endaði með heil 28 stig og frábæra skotnýtingu en hann hitti úr fjórum af sjö þriggja stiga skotum sínum, fjórum af fimm tveggja stiga skotum og úr öllum átta vítunum. Þá gaf hann níu stoðsendingar og tók fjögur fráköst, og var án nokkurs vafa maður leiksins. Þetta var annar sigur Anwil í röð og er liðið nú að nálgast sæti í úrslitakeppninni, með 13 sigra úr 25 leikjum en enn í 11. sæti. Sex efstu liðin fara beint í 8-liða úrslit en liðin í 7.-10. sæti fara í umspil og rambar Anwil á barmi þess að komast í það. Eftir sigurinn í kvöld mætti fólk út á völl með vatnsbyssur til að bleyta Elvar og félaga almennilega, enda er það hefð í Póllandi að fagna vorinu með vatni á annan í páskum og dagurinn kallaður „blautur mánudagur“. Święta świętami… ale tradycji stało się zadość 🔥Lany Poniedziałek w naszym stylu 💦#plkpl pic.twitter.com/Vh4Seu0ebr— Klub Koszykówki Włocławek (@Anwil_official) April 6, 2026
Körfubolti Mest lesið Gunnlaugur æfir með þeim besta í heimi fyrir U.S. Open Golf Phil Mickelson rekinn úr klúbbi fyrir að snerta konu óviðeigandi Golf Bestu-deildarpar á von á barni saman Íslenski boltinn Hver er flottasta treyjan á HM? Fótbolti Þetta þarf að gerast svo við fáum leik á milli Messi og Ronaldo á HM Fótbolti Sjáðu Elísabetu vinna titilinn með fjögurra sentímetra mun Sport Ferðaðist ekki með liðinu Fótbolti Íhugar að rifta samningnum áður en hann byrjar Fótbolti Þá roðnaði Beckham Fótbolti Fyrirliði Japans missir af HM og hættir í landsliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Jesús áfram í Stjörnunni Stuðningsmenn Knicks köstuðu eggi í Wembanyama Elvar og félagar fara 2-0 undir heim til Kanaríeyja Baldur tekur eina stærstu stjörnu Stjörnuliðsins yfir á Álftanes Stólarnir ráða Ísak Wíum Ármann fær sæti í Bónus deildinni og framlengir við Jónínu „Heimskasta körfuboltalið í sögu mannkyns“ Söguleg endurkoma Knicks LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Sjá meira