Keflavíkurstrákarnir urðu Scania-meistarar og áttu Scania-kónginn Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. apríl 2026 10:32 Davíð Breki Antonsson var kosinn Scania-kóngur og sést hér með verðlaunin í mótslok sem besti leikmaður mótsins og svo fyrir sigur Keflavíkur. @Keflavík Karfa Tíundi flokkur Keflavíkur varð Scania-meistari í gær en Scania-mótið er óopinbert Norðurlandamót yngri flokka í körfubolta.
Keflavik vann sænska liðið Kungsholmen Basket með níu stiga mun í úrslitaleiknum, 68-59. Davíð Breki Antonsson og Arnar Freyr Elvarsson voru báðir valdir í lið mótsins og Davíð var svo valinn besti leikmaður (Scania Kóngur) mótsins í U16 ára aldursflokki. Keflavíkurstrákarnir skoruðu níu þriggja stiga körfur gegn fjórum í úrslitaleiknum en þeir voru 21-16 yfir eftir fyrsta leikhlutann. Sænska liðið var síðan 35-32 yfir í hálfleik. Keflavik vann þriðja leikhlutann 21-14 og svo lokaleikhlutann 15-10. Það voru margir að skila stigum hjá Keflavíkurliðinu í úrslitaleiknum því fjórir leikmenn voru með á bilinu fjórtán til sautján stig. Bartosz Porzezinski og Arnar Freyr Elvarsson voru stigahæstir með sautján stig, Sigurður Karl Guðnason skoraði fimmtán stig og Davíð Breki Antonsson var með fjórtán stig. Aðrir sem skoruðu fyrir Keflvíkinga í úrlsitaleiknum voru Óliver Daði Rúnarsson (3 stig) og Hrafnkell Blær Sölvason (2 stig) en aðrir leikmenn liðsins voru Elvar Logi Guðnason, Nicolas Hrafn Place, Týr Kristjánsson, Tómas Aron Sigurðsson, Pétur Guimaraes Santos, Hinrik Sveinsson og fyrirliðinn Ágúst Ingi Kristjánsson. Keflavik vann alla fimm leiki sína á mótinu en þeir unnu sænska liðið Östersund 82-73 í undanúrslitaleiknum. Liðið vann einnig tvö önnur sænsk lið og eitt danskt lið á leið sinni í leiki um sæti. Davíð Breki var stigahæstur hjá liðinu á mótinu með 21,4 stig í leik en Sigurður Karl skoraði 17,0 stig í leik og Arnar Freyr var með 16,2 stig í leik. View this post on Instagram A post shared by Scania Cup (@scaniacup)
Körfubolti Keflavík ÍF Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Selfoss missir mikið efni Íslenski boltinn Littler tapaði óvænt á heimsmeistaramóti unglinga Sport Vill sjá breytingar svo það komi ekki annað klúður Formúla 1 Ronaldo snúinn aftur til félagsliðsins Fótbolti Mun Conte taka við Manchester United? Sport Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Fleiri fréttir Hefur sitt 40. tímabil: „Eins og að bera saman epli og appelsínur“ „Við þurfum að gera margt betur“ Grindavík - KR 79-106 | Yfirburðir bikarmeistaranna Álftanesi spáð sigri í Bónus-deild karla Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Sjá meira