Orri örfáum sekúndum frá því að vera hetjan Valur Páll Eiríksson skrifar 11. apríl 2026 14:05 Orri Steinn skoraði þriðja mark Sociedad en þurfti að sjá sína menn missa leikinn niður í jafntefli. Juan Manuel Serrano Arce/Getty Images Landsliðsfyrirliðinn Orri Steinn Óskarsson skoraði fyrir Real Sociedad í 3-3 jafntefli við Deportivo Alavés í spænsku úrvalsdeildinni í fótbolta í dag.
Orri Steinn leiddi framlínu Real Sociedad sem fékk Deportivo Alavés í heimsókn á Anoeta-leikvanginn en hans menn voru lentir undir snemma. Króatíski varnarmaðurinn Duje Caleta-Car skoraði sjálfsmark á þriðju mínútu leiksins en landi hans Luka Sucic jafnaði fyrir Sociedad á 14. mínútu. Tíu mínútum síðar kom fílbeinski framherjinn Ibrahim Diabate Alavés yfir á ný en aðeins þremur mínútum eftir það fór skot Beñat Turrientes frábært langskot sem Antonio Sivera, markvörður Alaves, varði í stöngina en þaðan fór boltinn í bak Sivera og í netið. Óheppinn þar en staðan jöfn á ný, 2-2. Þannig var staðan í hléi en stundarfjórðungur var liðinn af síðari hálfleik þegar Orri Steinn skallaði boltann í netið af stuttu færi til að koma Real Sociedad í forystu í fyrsta sinn í leiknum. Um var að ræða fimmta mark Orra Steins í deildinni í fyrsta byrjunarliðsleik hans síðan í byrjun mars. Orra var svo skipt af leikvelli á 72. mínútu. Liðsfélagar hans virtust ætla að sigla sigrinum í höfn en einum þeirra, bakverðinum Sergio Gómez, var að vísu vísað af velli í á þriðju mínútu uppbótartíma. Fjórum mínútum síðar, þegar komnar voru sjö mínútur fram yfir 90 mínútur jafnaði Lucas Boyé leikinn fyrir Alavés og tryggði gestunum stig. Sociedad er eftir jafnteflið með 42 stig í sjöunda sæti deildarinnar, tveimur á eftir Celta Vigo sem er sæti ofar, í Evrópusæti. Alavés er með 33 stig í 15. sæti.
Spænski boltinn Mest lesið Þurftu að biðja Infantino afsökunar Fótbolti Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Fótbolti Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Setti tvö Íslandsmet í snörun á Evrópumótinu Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti Dazia skoraði 46 stig fyrir KR Körfubolti Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig Fótbolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Fótbolti Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira