Komið að ögurstundu Eiður Þór Árnason skrifar 12. apríl 2026 00:06 Stuðningsmenn sóttu kosningafund Peter Magyar og Tisza-flokksins í Debrecen á laugardagskvöld. Ap/Darko Bandic Leiðtogar stærstu stjórnmálaflokka Ungverjalands héldu sína síðustu kosningafundi á laugardagskvöld á lokametrum langrar baráttu sem endar með kosningum á sunnudag. Viktor Orbán hefur setið á forsætisráðherrastóli í sextán ár og stendur nú frammi fyrir sinni stærstu pólitísku prófraun til þessa þegar mið-hægriflokkurinn Tisza mælist með tveggja stafa forskot í flestum óháðum skoðanakönnunum.
Orbán hefur verið gagnrýndur fyrir að hafa kerfisbundið grafið undan lýðræðisstofnunum í Ungverjalandi, meðal annars með því að semja nýja stjórnarskrá, hagræða kosningakerfinu og fylla dómstóla með hliðhollum dómurum. Þá hafa bandamenn forsætisráðherrans náð stjórn á flestum fjölmiðlum landsins og beitt þeim gegn stjórnarandstæðingum. Fram kemur í frétt AP-fréttaveitunnar að Orbán hafi notað gervigreindargerðar óhróðursauglýsingar í kosningabaráttunni og varað kjósendur við því að gjaldþrot og allsherjarstríð myndi dynja yfir Ungverjaland ef hann tapaði. Þrátt fyrir forskot í könnunum búast margir álitsgjafar við því að úrslitin verði naumari en kannanir spá fyrir um. Gert er ráð fyrir að Fidesz-flokkur Orbáns nái að draga stóran stuðningsmannahóp sinn í sveitum landsins á kjörstað. Peter Magyar, leiðtogi Tisza-flokksins á kosningafundi á laugardagskvöld.ap/Darko Bandic Fari í sögubækurnar Péter Magyar, formaður Tisza, er 45 ára lögfræðingur en flokkurinn var myndaður úr fjölda stjórnarandstöðuflokka sem töldu sig þurfa að vinna saman til að koma Orbán frá í núverandi kosningakerfi. Hann hefur ferðast vítt og breitt um landið í tvö ár til að reyna að ná til hluta af stuðningsmönnum Orbáns í dreifbýlinu. Þúsundir stuðningsmanna komu saman á kosningafundi Magyar á Háskólatorginu í Debrecen, næststærstu borg Ungverjalands á laugardagskvöld, að því er fram kemur í frétt AP. Magyar virkaði sjálfsöruggur og sagði að kosningarnar myndu „fara í sögubækur Ungverjalands sem dagur upprisunnar, endurnýjunar ungversku þjóðarinnar og raunverulegra stjórnarskipta.“ Hann talaði einnig til stuðningsmanna Orbáns og sagði að fylking hans myndi hefja „sameiningu“ Ungverjalands eftir kosningadaginn og vinna að „þjóðarsátt“. Lagt áherslu á ytri ógnir Orbán lauk kosningabaráttu sinni á Kastalahæð í Búdapest en hann hefur í kosningabaráttu sinni lagt mesta áherslu á það að vara við ytri hættum sem hann segir ógna Ungverjum. Þar er stríðið í nágrannaríkinu Úkraínu efst á blaði en Orbán er náinn bandamaður stjórnvalda í Rússlandi. Orbán ítrekaði þau skilaboð í kvöld og sagði þúsundum stuðningsmanna að þeir „lifi á hættutímum.“ „Ungverjaland stendur frammi fyrir alvarlegum áskorunum,“ sagði hann. „Við þurfum að segja nei við stórveldahópum í heiminum til að verja okkur, og það krefst þekkingar, reynslu og vana.“ Viktor Orban er sá forsætisráðherra sem hefur setið hvað lengst meðal ríkja Evrópusambandsins. „Nú er ekki tíminn til að taka áhættu, breyta, endurnýja og fara í ævintýri. Nú þurfum við að vernda og tryggja það sem við höfum,“ bætti hann við. Orbán hefur þurft að svara fyrir erfitt efnahagsástand í Ungverjalandi, uppljóstranir um sífellt nánari tengsl ríkisstjórnarinnar við Rússland og ásakanir um spillingu. Hann hefur reynt að auka fylgi sitt meðal kjósenda með því að leggja áherslu á náið samband sitt við Donald Trump Bandaríkjaforseta sem hefur ítrekað lýst yfir stuðningi við ungverska leiðtogann. JD Vance varaforseti fór í tveggja daga heimsókn til Búdapest fyrr í vikunni til að tala fyrir endurkjöri Orbáns. Óttist um afkomu sína Á sama tíma hefur stjórnarandstæðingurinn Magyar einbeitt sér að málum eins og verðbólgu, framfærslukostnaði og versnandi ástandi opinberrar heilbrigðisþjónustu og samgangna. Hann hefur einnig talað um það sem hann lýsir sem landlægri spillingu í stjórnkerfinu sem auðgi lítinn fjölda pólitískra hópa og lofað að hörfa frá þeirri stefnu að fjarlægjast Evrópusambandið í þágu nánari tengsla við Moskvu. Þegar stuðningsmenn hans veifuðu þjóðfánum og hrópuðu „Evrópa! Evrópa!“ á Háskólatorginu sagði Magyar að „margar milljónir“ kjósenda myndu sýna á sunnudag að „staður Ungverjalands var, er og verður í Evrópu.“ Dæmi eru um að fólk óttist um afkomu sína ef það kýs gegn ríkjandi stjórnvöldum. Bóndinn Annamária Matkovics, sem hefur sinnt aðgerðum fyrir Tisza, segir fólk vera komið með nóg. „Þegar við erum í kosningabaráttu á götum úti segir fólk okkur að það hafi áhyggjur af því að missa vinnuna ef það kýs ekki Fidesz, en það ætlar samt að kjósa Tisza,“ sagði hún. „Það hefur fengið nóg af sundrungunni.“
Ungverjaland Kosningar í Ungverjalandi Tengdar fréttir Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu. 10. apríl 2026 13:08 Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar. 8. apríl 2026 15:37 Bauð Pútín að vera „músin“ hans Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín. 8. apríl 2026 10:10 Mest lesið Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar Innlent „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Erlent Lentu í öldugangi við Reynisfjöru Innlent Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Innlent Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Erlent Anna Valdimarsdóttir er látin Innlent Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Innlent Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Innlent Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Innlent Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Erlent Fleiri fréttir Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Brösugleg byrjun hjá nýjum talsmanni Trumps Handteknir fyrir að féfletta NATO-skip í Noregi Fundu elsta skipsflak heims Árásum fjölgar og Íranir ætla að loka Hormússundi aftur Takmarkanir á Starlink í Úkraínu: „Þetta getur ekki verið tilviljun“ Yfir hálf milljón án rafmagns í Kænugarði eftir árásir Rússa í nótt Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Styður Repúblikana með tugum milljarða Páfinn greindist með lungnakrabbamein Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Aðgerð páfa gekk vel Staðfestir að Rússar höfðu afskipti af Brexit Sendiherrann beðinn um að segja af sér „Þeir samþykktu, af því að ég segi að þeir samþykktu“ Atkvæðagreiðsla boðuð í þrátefli eftir sænsku kosningarnar Þingkona segist fórnarlamb pólitískra ógnana Trump eftir húsleit Rannsaka dauðsfall í rússíbana í Six Flags Úkraínsku skipi sökkt við strendur Búlgaríu Þurftu að kyrrsetja flugvél vegna veggjalúsa Hafa gert árásir á sex orkumannvirki eftir yfirlýsingu Trump Gull að leysa kókaín af hólmi Sjá meira
Orbán gæti enn sigrað þrátt fyrir dökkt útlit í könnunum Kálið er ekki endilega sopið þótt í ausuna sé komið hjá ungversku stjórnarandstöðunni þrátt fyrir að hún mælist með töluvert forskot á flokk Viktors Orbán forsætisráðherra fyrir kosningar sem fara fram á sunnudag. Stórveldi fylgjast grannt með úrslitunum en Orbán er helsti bandamaður bæði Rússa og Bandaríkjamanna í Evrópu. 10. apríl 2026 13:08
Gagnrýna tvískinnung Vance í Ungverjalandi Talsmaður þýsku ríkisstjórnarinnar segir varaforseta Bandaríkjanna að líta í eigin barm eftir að sá síðarnefndi sakaði Evrópusambandið um að reyna að hlutast til í þingkosningum í Ungverjalandi. Varaforsetinn heimsótti Orbán innan við viku fyrir kosningarnar. 8. apríl 2026 15:37
Bauð Pútín að vera „músin“ hans Viktor Orbán, forsætisráðherra Ungverjalands, bauð Vladímír Pútín Rússlandsforseta alla þá aðstoð sem hann gæti veitt honum í haust. Ungverski leiðtoginn, sem hefur komið í veg fyrir lánveitingar ESB til Úkraínu, sagðist geta verið músin sem hjálpaði ljóninu Pútín. 8. apríl 2026 10:10