Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Árni Sæberg skrifar 13. apríl 2026 15:05 Guðmundur Ingi Kristinsson hefur sagt sig úr Flokki fólksins. Vísir/Vilhelm Guðmundur Ingi Kristinsson hefur sagt sig úr Flokki fólksins og þingflokki flokksins. Hann mun sitja áfram á þingi utan flokka. Hann vísar til persónulegs trúnaðarbrests sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins, sem ástæðu afsagnarinnar.
Þetta tilkynnti Þórunn Sveinbjarnardóttir, forseti Alþingis, við upphaf þingfundar dagsins. „Að vandlega íhuguðu máli hef ég ákveðið að segja skilið við Flokk fólksins. Ég sagði mig úr flokknum í morgun og hef greint forseta Alþingis frá þessari ákvörðun. Ég hyggst áfram gegna störfum sem Alþingismaður fyrir Suðvesturkjördæmi en verð nú þingmaður utan flokka. Ég styð ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur áfram af heilum hug og mun leggja mitt af mörkum við að styðja stjórnina til góðra verka,“ segir í yfirlýsingu frá Guðmundi Inga. Tjáir sig ekki frekar Ástæða þess að hann segir sig úr flokknum á þessum tímapunkti sé trúnaðarbrestur sem varði persónuleg samskipti innan flokksins. Að svo stöddu muni hann ekki tjá sig frekar um þessa ákvörðun. „Ég vil þakka félögum mínum í Flokki fólksins fyrir samfylgdina og samstarfið á síðustu árum. Saman höfum við náð miklum árangri í veigamiklum baráttumálum og þar vil ég ekki síst nefna kjör öryrkja og aldraðra og áherslur okkar í velferðarmálum. Þeirri baráttu er ekki lokið og ég mun áfram leggja mig allan fram fyrir góðan málstað á Alþingi Íslendinga.“ Sárt að hann kjósi að starfa einn utan flokka Í yfirlýsingu frá Ingu Sæland, formanni Flokks fólksins, segir að það sé mikil eftirsjá af Guðmundi Inga, sem hafi fylgt Flokki fólksins frá upphafi en hafi nú sagt sig úr flokknum. Hann hafi alla tíð verið óþreytandi baráttumaður fyrir öllum helstu baráttumálum flokksins, eins og bættum kjörum eldri borgara og öryrkja. „Nú þegar Flokkur fólksins er kominn til áhrifa með þátttöku í ríkisstjórn til að fylgja eftir okkar baráttumálum, er því sárt að hann skuli kjósa að starfa einn utan þingflokka á Alþingi. Það er hins vegar með stjórnmálin eins og annað í lífinu, hver og einn verður að ráða sínum næturstað. Ég þakka Guðmundi Inga fyrir náið og gott samstarf síðast liðin áratug og óska honum velfarnaðar í framtíðinni.“ Fréttin hefur verið uppfærð.
Flokkur fólksins Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Áfall fyrir Evrópu og vestræna samvinnu Erlent Eldur í álverinu í Straumsvík Innlent Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Innlent „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Innlent Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Innlent Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Innlent Bandaríkin fjárfesti í stríðsrekstri Pútíns Erlent Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar Innlent Á annað hundrað sektaðir Innlent Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent Fleiri fréttir Vilja bílastæðin upp úr skotgröfunum Á annað hundrað sektaðir Þrír réðust á einn Halla ætli að sölsa undir sig ASÍ Guðmundur Ari nýr varaformaður Samfylkingar „Vona nú bara að hann fari að jafna sig á tapinu“ Bein útsending: Samtal um framtíðina Opið hús í Höfða í dag Kristrún flytur ræðu á flokksstjórnarfundi Eldur í álverinu í Straumsvík Áfall fyrir Evrópu, hvatning um að jafna sig á tapi og sögulegt afmæli Guðlaugur Þór villtist inn í myndver Þyrlulaus í nokkrar klukkustundir Segjast geta hafið framkvæmdir á morgun Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Sjá meira