Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Silja Rún Sigurbjörnsdóttir og Oddur Ævar Gunnarsson skrifa 13. apríl 2026 18:58 Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist vera döpur. Vísir/Lýður Valberg Inga Sæland, formaður Flokks fólksins, segist ekki vita hvaða persónulegu trúnaðarbrestir urðu til þess að Guðmundur Ingi Kristinsson, þingmaður flokksins og fyrrverandi ráðherra hans, sagði sig úr flokknum.
Guðmundur Ingi Kristinsson sagði sig úr bæði Flokki fólksins og þingflokknum fyrr í dag. Í svörum sínum vísar hann til persónulegs trúnaðarbrests sem varðar persónuleg samskipti innan flokksins, sem ástæðu afsagnarinnar. Í kvöldfréttum Sýnar segist Inga hafa átt farsælt samstarf með Guðmundi Inga og viti ekki hvaða trúnaðarbrest hann vísi í. „Það verður að spyrja Guðmund Inga sérstaklega. Við höfum átt farsælt samstarf og ég hef ekki orðið vör við persónulegan trúnaðarbrest á milli mín og Guðmundar Inga,“ segir Inga. „Ég mun sakna Gumma, eins og ég hef alltaf kallað hann, og óska honum alls hins besta. Ég veit að það er enginn málefnalegur ágreiningur eða neitt slíkt, Guðmundur Ingi hefur af huga og hjarta barist með mér í gegnum þykkt og þunnt, við höfum auðvitað verið lengst af í stjórnarandstöðu og þar höfum við unnið sem einn maður. Ég á eftir að sakna Gumma en við hittumst hérna í þinginu og hann hefur gefið það út að hann haldi áfram að styðja sína ríkisstjórn.“ Hún segir að þetta sé á við að missa bróður og muni það hafa áhrif á flokkinn. „En það kemur dagur eftir annan dag svo við höldum áfram að hitta Guðmund hérna í þinginu þrátt fyrir að hann sé ekki lengur í gula,“ segir Inga og vísar þar í fundarherbergi Flokks fólksins sem er kallað gula herbergið. Þú hefur ekki grun um hvað hann er að vísa í? „Nei.“ Þú vilt ekkert tjá þig frekar um þetta? Fyrrverandi ráðherra sem segir sig úr flokknum. „Nei, ég vil ekki gera það. Ég er bara döpur.“
Flokkur fólksins Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Fleiri fréttir Kristrún hafi staðið sig best en Inga verst Þögul sem gröfin um meintan trúnaðarbrest Maðurinn sem fannst í Ölfusá er látinn Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Sjá meira