Svikarar við þjóðina verði dregnir til ábyrgðar Hólmfríður Gísladóttir skrifar 14. apríl 2026 07:55 magyar á mikið verk fyrir höndum. Leiðtogar Evrópu hafa fagnað kjöri hans og vonast til að vera komin með nýjan bandamann í baráttunni gegn Vladimir Pútín Rússlandsforseta. AP/Darko Bandic Péter Magyar, verðandi forsætisráðherra Ungverjalands, hefur heitið því eftir mikinn kosningasigur um helgina að draga þá til ábyrgðar sem hann segir hafa svikið og arðrænt Ungverja. Þá hefur hann kallað eftir því að forseti landsins, yfirsaksóknari og yfirmenn þeirra stofnana sem sinna eftirliti með fjölmiðlum og samkeppni segi af sér.
Magyar hefur kallað umrædda einstaklinga „strengjabrúður“ Victors Orbán, fráfarandi forsætisráðherra. „Hann var skipaður til þess eins að skrifa undir,“ hefur Magyar sagt um forsetann Tamás Sulyok. „Við þörfnumst ekki slíkra einstaklinga. Fyrir mér er hann ekki forseti. Ég hvet hann til að fara. Ef ekki, þá finnum við aðra lausn.“ Tisza, flokkur Magyar, hreppti að minnsta kosti 138 þingsæti af 199, í kosningum á sunnudag og vann þar með stórsigur á Fidesz flokki Orbán. Hinn rúmi meirihluti mun gera Magyar kleift að láta verða af kosningaloforðum sínum, sem fólu meðal annars í sér að vinda ofan af breytingum sem Orbán gerði á dómskerfinu, fjölmiðlum og fleiri valdastofnunum á sextán ára valdatíma sínum. Þá hyggst hann greiða leiðina fyrir rannsókn Evrópusambandins á því hvernig ríkisstjórn Orbán notaði fjármuni frá sambandinu. Magyar hefur einnig sagst munu leggja til breytingar á stjórnarskrá landsins til að tryggja að enginn geti setið á stóli forsætisráðherra lengur en í tvö kjörtímabil, það er að segja átta ár. Þá hefur hann sagt að störf fréttastofa á vegum hins opinbera yrðu lögð niður tímabundið, þar til nýr eftirlitsaðili hefði tekið við.
Ungverjaland Kosningar í Ungverjalandi Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Erlent Sögðu Írisi hafa beðið sig um að lemja brotaþola Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Sýknaður vegna fíkniefnaviðskipta hins látna Innlent Fleiri fréttir Verði stjórnað af „róttækustu og öfgafyllstu vinstrimönnum bandarískrar sögu“ Trump hafi nú engu að tapa Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Draumur Demókrata að rætast Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Segir af sér vegna lestarslysa Reynslumikill flugmaður við stjórnina Sjö flugvélum lent vegna sprengjuhótana Trúnaðarbrestur á Grænlandi og samþykkt Bandaríkjasamnings sett á ís Hafnað með afgerandi hætti Íslendingur dæmdur fyrir dreifingu barnaníðsefnis í Kanada Rússar gerðu árás á sjúkrahús í Kharkív Framtíð Trump í húfi á kjördegi í Bandaríkjunum Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Sjá meira