Tæpum fjögur hundruð þúsund krónum eytt í vorgjöf Elísabet Inga Sigurðardóttir skrifar 14. apríl 2026 23:13 Allir starfsmennirnir fengu hönnunarbollann. Samsett Formaður Sjálfstæðisflokksins segir það skjóta skökku við að á sama tíma og ríkisstjórnin biður fólk að halda að sér höndum vegna verðbólgu eyði hún fjármunum í tækifærisgjafir til handa ríkisstarfsmönnum. Starfsmenn dómsmálaráðuneytisins fengu á dögunum hönnunarbolla í vorgjöf.
Það vakti mikla athygli þegar Vísir greindi frá því að mennta- og barnamálaráðherra hefði eytt tæpum sjö hundruð þúsund krónum í páskaegg og sérhannaðar umbúðir til handa ráðherrum og starfsfólki ráðuneytisins. Margir gagnrýndu kostnaðinn og sögðu þingmenn stjórnarandstöðunnar að málið væri birtingarmynd raunveruleikarofs þegar kemur að opinberum útgjöldum. Vorgjöf fyrir tæpar 400 þúsund krónur Á dögunum fengu allir starfsmenn dómsmálaráðuneytisins hönnunarbolla frá Ingu Elínu en bollarnir hafa á undanförnum árum notið mikilla vinsælda á íslenskum heimilum. Í svari frá dómsmálaráðuneytinu segir að gjöfin hafi verið gefin á dögunum og nam heildarupphæð hennar 358.400 krónum. Formaður Sjálfstæðisflokksins segir eðlilegt að yfirmenn vilji umbuna starfsfólki sínu, enda starfi gott fólk í ráðuneytum landsins, en það skjóti skökku við að gjafir séu gefnar við lítið eða ekkert tilefni þegar ríkisstjórnin sjálf boðar aðhaldskröfu og biðlar til fólks að halda að sér höndum. „Hún auglýsti meðal annars og fékk þúsundir hagræðingartillögur frá almenningi og notaði ekki eina einustu þeirra, þá skýtur það auðvitað skökku við að það sé verið að gefa gjafir að tilefnislausu,“ segir Guðrún Hafsteinsdóttir. Draga verði línu sem gangi yfir alla þegar kemur að gjafamálum. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er mjög hrifin af hönnunarbollunum sem um ræðir og á sjálf nokkra slíka. En hún segir það skjóta skökku að gjafir séu gefnar ríkisstarfsmönnum við lítið tilefni.Vísir/Vilhelm Sumir myndu segja, þetta er bara tæpur fjögur hundruð þúsund kall, þetta er enginn peningur í stóra samhenginu? „Molar verða að heilu brauði og nú verð ég að segja að mér finnst þetta fallegir bollar, ég á marga svona bolla heima hjá sér og ég gef manninum mínum alltaf í bóndadagsgjöf einn svona bolla.“ Já greinilega vinsæl gjöf. Þó upphæðin sé ekki ýkja há í stóra samhenginu safnist þegar saman kemur. „Og ef þetta eru margar gjafir yfir árið þá kannski fer þetta að hlaupa á milljónum mjög hratt og kannski tugum milljóna þegar þú tekur öll ríkisfyrirtækin og ríkisstarfsmenn“ Hún hvetur ríkisstjórnina til að sýna raunverulegt aðhald. „Og lifa eftir því sem þau eru sjálf að boða. “
Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Efnahagsmál Tíska og hönnun Rekstur hins opinbera Mest lesið Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Innlent Segir Aþenu í andarslitrunum Innlent Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Innlent Athafnamaður sagður handtekinn í Leifsstöð Innlent „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Innlent Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa Innlent SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Innlent Rubio lentur á Íslandi Innlent Fleiri fréttir Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Slitu samstarfinu vegna trúnaðarbrests „sem ekki var hægt að líta framhjá“ Íslenskir karlmenn flytji inn konur og haldi þeim sem kynlífsþrælum Tveir komnir með höfuðið inn um gluggann Sjá meira