Af hverju? - Af hverju ekki? Halldór Bachmann skrifar 16. apríl 2026 11:46 Á meðan jafnaldrar mínir eru farnir að huga að eftirlaunum, því að taka út séreignarsparnaðinn, hætta að vinna og taka það rólega, þá kýs ég að hefja minn stjórnmálaferil. Hvað í ósköpunum gengur þér til gamli maður? Af hverju ætti ég á sjötugsaldri að snúa mér að argaþrasi stjórnmála? Ég hef síðan ég man eftir mér trúað því að allt gangi betur þegar fólk vinnur saman og að samtakamátturinn geti unnið þrekvirki. Í Reykjavík er svo sannarlega þörf á því. Samvinnuhjarta mitt hefur mjög oft misst úr slag í gegn um árin þegar ég horfi upp á þá endalausu aðfinnslupólitík sem hefur verið ríkjandi hér í borginni. Endalaust er talað um að eitthvað sé ekki nógu gott en nánast aldrei hafa fylgt tillögur til úrbóta, enda er það ekki til neins. Í þessu eitraða umhverfi aðfinnslupólitíkur er nefnilega bannað að samþykkja góðar hugmyndir ef það er ekki þinn flokkur sem kemur með þær. Þetta hugarfar er algjörlega óþolandi fyrir allt venjulegt fólk og ekki síst fyrir okkur sem teljum okkur vera lausnamiðað samvinnufólk. Þessa aðfinnslupólitík þarf að uppræta, þarna er þörf á þeirri samvinnuhugsjón sem Framsóknarflokkurinn stendur fyrir, hugsjón um að þjónusta borgarana fyrst og fremst. Þarna er líka komin helsta ástæðan fyrir því að ég kýs að bjóða mig fram í stað þess að röfla enn eitt árið í matsalnum í vinnunni. Sem kynningarstjóri lífeyrissjóðs má segja að ég hafi að aðalstarfi að tala um peninga og lífeyrismál við ungt fólk. Það vill líka svo heppilega til að ég brenn fyrir fjármálalæsi, því að fólk taki upplýstar ákvarðanir, sýni ráðdeild, hugi að fjármálum og eftirlaunum og undirbúi eftirlaunaárin vel. Það ætti ekki að koma neinum á óvart að óstjórnin í fjármálum borgarinnar í gegn um áratugi hefur verið eitur í mínum beinum. Framsóknarflokkurinn fékk kærkomið tækifæri á líðandi kjörtímabili og kom ýmsum góðum málum í framkvæmd þann tíma sem við vorum í meirihluta. Við erum stolt af þeim árangri sem flokkurinn náði á stuttum tíma. Undir forystu flokksins var fjármálunum snúið við um tuttugu milljarða á átján mánuðum, úr 16 milljarða halla í 4 milljarða afgang. Það var annars vegar gert með nýrri aðferðafræði við gerð fjármálaáætlana hjá borginni og löngu tímabæru aðhaldi í stærsta útgjaldalið borgarinnar, launum. Eftir að Framsóknar nýtur ekki lengur við í meirihlutanum hefur á ný verið haldið á vit hentistefnu í fjármálum borgarinnar, hentistefnu sem ætla má að sé háð duttlungum borgarstjóra. Því spurði ég mig ítrekað; af hverju ekki að láta í sér heyra á opinberum vettvangi og reyna að hafa áhrif á þeim sviðum þar sem styrkleikar mínir liggja? Ég trúi því að það sem ég hef fram að færa geti skipt máli við að bæta þjónustu Reykjavíkurborgar við borgarana en jafnframt vil ég leggja mig fram um að taka til í rekstri borgarinnar. Af hverju ekki að bjóða sig fram í það hlutverk? Höfundur er í fjórða sæti á lista Framsóknar í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson Skoðun Loftbrú og Ölfusárbrú eru mikilvægari en börn Grímur Atlason Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson Skoðun Skoðun Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar Skoðun Það sem allir vilja hafa – en enginn vill sjá S. Hjörtur Guðjónsson skrifar Skoðun Burt með bölvað ofstækið Hjörtur Magni Jóhannsson skrifar Skoðun Tíu ár af skattfrjálsri ráðstöfun Daði Már Kristófersson skrifar Skoðun Farsælt ferðalag fólks og villts fisks Ingvi Örn Þorsteinsson skrifar Skoðun Til hamingju, Runólfur! Ragnar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Heilsugæslan miðaldra Hildur Svavarsdóttir skrifar Skoðun Afföll í laxeldi Kristján Ingimarsson skrifar Skoðun Peptíð og íþróttir Birgir Sverrisson skrifar Skoðun Stórsókn eða stór orð? Álfhildur Leifsdóttir,Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Skógrækt er þjóðaröryggismál Auður Elva Kjartansdóttir skrifar Skoðun Hægrisveiflan hættulega Samúel Guðmundsson skrifar Skoðun Á ykkar vakt! Hjálmtýr Heiðdal skrifar Skoðun Tímamót fyrir notendur – samningur SÍ og SÁÁ Kristín I. Pálsdóttir skrifar Skoðun Ólafur, gæsin og gulleggin Kjartan Björgvinsson skrifar Skoðun Eftirlit, útvistun og ábyrgð í velferðarþjónustu Þórhallur Guðmundsson skrifar Skoðun Það hefðu allir gott af því að greiða sín eigin laun Geir Kristinsson skrifar Skoðun Tjáningarfrelsið við Bústaðaveg Þorvaldur Víðisson skrifar Skoðun Nokkur orð um röflritun Kristján Logason skrifar Skoðun Alnetið er dautt! Lengi tóri lýðræðið! Geir Sigurður Jónsson skrifar Skoðun Til hvers ætlum við að virkja? Andrés Kristjánsson skrifar Skoðun Ríkið ákveður – sveitarfélögin borga – skólarnir framkvæma Sævar Helgason skrifar Skoðun Hagræðing Hildar á sannleikanum Kári Sigurðsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar Skoðun Að taka á móti myrkrinu Þuríður Santos Stefánsdóttir skrifar Skoðun Ábyrg sýn í málefnum útlendinga Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar Skoðun Þjóðarátak í uppbyggingu hjúkrunarheimila Jónína Björk Óskarsdóttir skrifar Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar Skoðun Keðjusagarstjórnmál Atli Bollason skrifar Skoðun Hvað verður um vinnuna eftir uppsagnir? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Brjóstaskimun enn mikilvæg? Anna Kristín Höskuldsdóttir,Helga Tryggvadóttir,Inga Reynisdóttir,Ólöf Kristjana Bjarnadóttir,Þórður Tryggvason skrifar
Skoðun Við skorum á ríkisstjórnina að standa við fyrirheitin og tryggja framtíð Skipholts 37 Hópur listafólks skrifar
Skoðun Krabbameinsmeðferð lokið en hvað svo? Óttinn við að endurgreinast Þorri Snæbjörnsson skrifar