Nefndin sammála Ólafi Ragnari um skipun forsetaritara Lovísa Arnardóttir skrifar 16. apríl 2026 13:34 Forseti þarf að funda með formönnum flokka í aðdraganda stjórnarmyndunar. Hér er Halla áður en hún fundaði með formönnum í desember árið 2024. Vísir/Vilhelm Meirihluti stjórnskipunar- og eftirlitsnefndar leggur nú til að forseti skipi sjálfur forsetaritara og það til fimm ára. Í frumvarpinu var upprunalega lagt til að forsætisráðherra myndi skipa forsetaritara. Ólafur Ragnar Grímsson, fyrrverandi forseti Íslands, gagnrýndi þetta harðlega og sagði það aðför að sjálfstæði embættisins að forsætisráðherra fengi þetta hlutverk.
Nefndin virðist sammála því og hefur nú lagt fram breytingartillögu þess efnis. Í tillögunni segir að nefndin hafi fjallað um málið og fengið til sín gesti frá embætti forseta Íslands og forsætisráðuneyti. Í frumvarpinu eru lagðar til ýmsar breytingar á forsetaembættinu og er þar einnig að finna tillögu um ráðningu aðstoðarmanns forseta. Þar er einnig að finna tillögur um breytingar á launum forseta og lögum um Stjórnarráð Íslands. Í breytingartillögunni segir að þær breytingar sem lagðar séu til lúti að forsetaritara, að forseta verði heimilt að ráða sér aðstoðarmann, greiðslum til handhafa forsetavalds og heimild forsætisráðherra til að setja umgjörð um samhæfingu á tilteknum sviðum. Nefndin hafi því fyrst og fremst fjallað um það atriði frumvarpsins sem snýr að skipun, hlutverki og launakjörum forsetaritara sem nánar verður gerð grein fyrir í áliti þessu. Nefndin gerir ekki athugasemdir við önnur atriði frumvarpsins. Sé einstakt embætti Frumvarpinu var dreift á Alþingi í desember og fór til fyrstu umræðu í janúar á þessu ári og fór eftir það til umfjöllunar hjá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd. Í umfjöllun nefndarinnar segir að forsetaembættið sé um margt einstakt. „Forseti er æðsti embættismaður ríkisins og þjóðhöfðingi og jafnframt eini embættismaðurinn sem kjörinn er beint af þjóðinni. Í almennri umræðu er forseta í senn ætlað að vera sameiningartákn þjóðarinnar og að vera hafinn yfir pólitísk ágreiningsmál en á sama tíma ákveðinn „öryggisventill“ í stjórnkerfinu,“ segir í nefndarálitinu. Ákvæði stjórnarskrár og almennra laga séu að sama skapi fáorð um störf og hlutverk embættisins og því hafi embættið mótast og þróast að nokkru leyti af nálgun þess sem gegnir embættinu á hverjum tíma. „Þó að skiptar skoðanir kunni að vera um stjórnskipulegt og stjórnmálalegt hlutverk forseta hefur framkvæmdin ótvírætt leitt í ljós að staða embættisins er mikilvæg gagnvart stjórnskipaninni og í huga þjóðarinnar. Að mati nefndarinnar er því brýnt að staðinn sé vörður um sjálfstæði embættisins og hlúð að því. Þá telur nefndin einnig mikilvægt í ljósi þeirra miklu breytinga sem orðið hafa á starfsháttum og eðli embættisins og aukinnar starfsemi þess bæði innan lands og utan, að það hafi burði til að stækka í takt við tímann og breyttan heim,“ segir í álitinu. Endurskoði biðlaun Því telur nefndin tímabært að ákvæði um biðlaun verði tekið til endurskoðunar og að það sé rétt að skoða verði hvort þeir sem hafi gegnt embættinu njóti ákveðinna kjara utan almennra biðlauna og þá sérstaklega þegar þessir einstaklingar sjá ekki fram á að taka við öðru starfi sambærilegu að virðuleika. Nefndin leggur svo fram breytingartillögu þar sem segir að þó svo að forsetaritari sé embættismaður sé starf hans að mörgu leyti sérstakt og þess eðlis að það eigi ekki beina hliðstæðu innan stjórnkerfisins. „Forsetaritari gegnir hlutverki skrifstofustjóra embættisins og ber sem slíkur ábyrgð á fjármálum, mannauði og rekstri þess. Í ljósi smæðar skrifstofunnar falla einnig undir hans starfssvið ýmiss konar erindrekstur og útréttingar. Þá annast hann samskipti við Alþingi, ráðuneyti og fjölmiðla. Hann gegnir einnig mikilvægu hlutverki þegar kemur að samskiptum við alþjóðleg embætti og stofnanir. Hafa ber í huga að embættinu fylgja sömu skyldur og öðrum embættum þjóðhöfðingja. Ólíkt því sem þekkist erlendis, þar sem verkum kann að vera deilt á margar hendur, þá sinnir forsetaritari þeim flestum. Það er því ljóst að um afar krefjandi og fjölbreytt starf getur verið að ræða,“ segir í tillögunni og að þar með séu þó ekki upptalin verkefni forsetaritara. Hann sé einnig helsti trúnaðarmaður forseta Íslands, talsmaður hans og erindreki. Forseti þurfi að geta reitt sig á ritarann Í þessu trúnaðarsambandi, þar sem sérstaða starfsins birtist með skýrustum hætti, þurfi að hafa í huga að forseti Íslands verði aldrei undanskilinn hinu stjórnmálalega sviði, þó að skiptar skoðanir kunni að vera um stjórnmálalegt hlutverk embættisins. Forseti geti synjað lagafrumvarpi staðfestingar og áhrif hans geti verið mikil við myndun ríkisstjórna. Því geti komið upp, og hafi komið upp, aðstæður þar sem forseti og forsætisráðherra eigi í missætti og í slíkum aðstæðum þurfi forseti oft að reiða sig á forsetaritara. Samband þeirra þurfi því að vera traust. „Trúnaðarsamband forseta Íslands og forsetaritara er því lykilatriði í farsælu starfi forseta Íslands,“ segir í tillögunni og að gestir hafi reifað fyrir nefndinni þau sjónarmið að breytingarnar sem voru áætlaðar, um að forsætisráðherra skipaði forsetaritara, gætu haft áhrif á þetta trúnaðarsamband og að mati nefndarinnar þurfi forseti að hafa ráðandi hlutverk þegar kemur að skipun forsetaritarans þótt eitthvað samstarf væri við forsætisráðherra. Þá segir nefndin fullt tilefni til að skýra vel stöðu og verksvið ritarans, sérstaklega í ljósi þess að í frumvarpinu sé gert ráð fyrir að forseti geti einnig ráðið sé aðstoðarmann. Nefndin leggur því til þá breytingu á frumvarpinu að forseti, ekki forsætisráðherra, skipi forsetaritara. Ákvæðið myndi þá vera svona: Forsetaritari stýrir skrifstofu embættisins, ræður annað starfslið, er ábyrgur fyrir rekstri embættisins og skipuleggur starfsemi þess. Forseti skipar forsetaritara til fimm ára í senn.
Forseti Íslands Stjórnsýsla Alþingi Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Ólafur Ragnar Grímsson Mest lesið Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Innlent Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Innlent Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Erlent Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Innlent „Kisur eru að missa fæturna“ Innlent Héldu námskeið um heiðursofbeldi Innlent Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl Innlent Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Innlent Fleiri fréttir Staðfesta tveggja ára dóm fyrir nauðgun eftir þorrablót Útilokar ekki verkfall eftir útspil sem kom eins og þruma úr heiðskíru lofti Þristurinn gefinn Flugsafni Íslands Héldu námskeið um heiðursofbeldi Árekstur á Vesturlandsvegi tefur umferð „Kisur eru að missa fæturna“ Veruleikinn breyttur eftir ofsaakstur á ónýtum bíl ChatGPT trónir á toppnum Hafi reynt að myrða kærustu sína í sumar Fengu ráðgjafa til að greina fjárhagsstöðuna fyrir uppsagnirnar „Svolítið sárt í hjartanu að hafa enga söngvakeppni“ Hirti sagt upp störfum hjá Hagstofunni Sonur þingmannsins ákærður Á þriðja tug sagt upp hjá Hafnarfjarðarbæ „Akkilesarhæll á vinnu gagnvart þessum hópum“ Feginn að verðbólga stendur í stað og meirihluti mótfallinn þátttöku í Eurovision Til Ilulissat á Airbus með nýjum flugvelli Biðin á Landspítalanum styttist til muna Segir fólk geta verið nýrnaveikt árum saman án þess að vita Rukka erlenda nemendur um milljónir Nýja Ölfusárbrúin hægt en örugglega dregin yfir ána Notkun ólöglegra peptíða „rússnesk rúlletta“ Frumvarp kynnt um afnám æviráðningar Bein útsending: Kynnir aðgerðaáætlun gegn fátækt barna Sögðu öllum upp á Hjálpartækjamiðstöð SÍ Blöskraði biðin í björgun við Stuðlagil og barðist fyrir námskeiði Hópamyndun og hótanir unglinga við félagsmiðstöð í Kópavogi Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis „Mér finnst það alvarlegt“ Sjá meira