Það sem skiptir raunverulega máli Guðbjörg Ingunn Magnúsdóttir skrifar 17. apríl 2026 08:01 Miðvikudaginn 15. apríl ávarpaði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra þing Kennarasambands Íslands þar sem hún ræddi meðal annars stöðu skólakerfisins og þær áskoranir sem blasa við. Margt í máli hennar endurspeglar raunveruleika sem foreldrar, kennarar og nemendur þekkja vel: Allt of fjölmennir bekkir, auknar þarfir barna með greiningar og sífellt fjölbreyttari nemendahópur sem krefst markviss stuðnings. Það sem stendur sérstaklega upp úr er áhersla menntamálaráðherra á að fækka nemendum í bekkjum, efla þjónustu við börn með sérþarfir og styrkja íslenskukennslu fyrir börn af erlendum uppruna með auknum móttökudeildum. Þetta eru mikilvæg skref í rétta átt en þau duga ekki ein og sér. Við í Flokki fólksins teljum að lykillinn liggi í snemmtækri íhlutun og öflugu samstarfi við foreldra. Grípa fyrr – ekki seinna Það gerist allt of oft að ekki er gripið inn í fyrr en vandinn er orðinn mikill og erfiðara að eiga við hann. Börn sem eiga í náms- eða félagslegum erfiðleikum þurfa stuðning strax, ekki eftir mánuði eða ár á biðlista. Sama á við um börn sem fá greiningu og þurfa að bíða eftir úrræðum. Það er ferli sem getur verið bæði flókið og yfirþyrmandi fyrir fjölskyldur. Við viljum tryggja að þegar fyrstu merki um vanda koma fram verði strax brugðist við, innan skólans, í samstarfi við fagfólk og með virkri aðkomu foreldra. Foreldrar í lykilhlutverki Enginn þekkir barnið betur en foreldrar þess. Þess vegna leggjum við áherslu á að efla samstarf við foreldra með markvissri foreldrafræðslu og uppeldisráðgjöf innan skólanna. Foreldrar þurfa ekki bara upplýsingar, þeir þurfa verkfæri. Þegar barn glímir við erfiðleika eða fær greiningu þarf að styðja bæði barnið og foreldrana. Með réttum stuðningi geta foreldrar haldið áfram vinnunni heima, styrkt barnið sitt og orðið virkir þátttakendur í lausninni. Skóli fyrir alla í raun Flokkur fólksins telur nauðsynlegt að auka íslenskukennslu fyrir börn af erlendum uppruna. Við leggjum jafnframt áherslu á að börnin fái tækifæri til að taka þátt í skólasamfélaginu, í íþróttum, listgreinum og félagslífi. Tungumálið lærist ekki aðeins í kennslustofu, heldur ekki síður í samskiptum og þátttöku. Þess vegna er mikilvægt að efla frístundastarf allra barna. Þetta gildir einnig um börn með sérþarfir. Þau eiga ekki bara rétt á þjónustu, þau eiga rétt á að tilheyra samfélagi jafningja sinna. Sameiginlegt verkefni Til að ná raunverulegum árangri þurfum við að ganga lengra en nú er gert. Við þurfum að byggja kerfi sem bregst snemma við, styður fjölskyldur og tryggir að enginn verði út undan. Grunnskólinn er ekki bara menntastofnun, hann er grunnur að framtíð barna okkar. Þar eigum við ekki að spara. Það er mikilvægt að ríki, sveitarfélög, fagfólk og foreldrar taki höndum saman. Þannig næst mesti árangurinn. Þetta er fjárfesting sem skilar sér. Hún skilar sér auðvitað mest í framtíð barnanna okkar, fjölskyldna og samfélagsins alls. Þetta er það sem raunverulega skiptir máli. Höfundur er í 3. sæti framboðslista Flokks fólksins í Reykjavík og er grunnskólakennari. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar