Tónlistarborgin eflist! Skúli Helgason skrifar 17. apríl 2026 07:00 Samstarfsflokkarnir í borgarstjórn undir forystu Samfylkingarinnar leggja mikla áherslu á öflugt menningarlíf og undir okkar forystu hafa framlög til menningarmála aukist jafnt og þétt. Þannig hafa heildarstyrkir til sjálfstæðra listamanna og listhópa hækkað þrívegis á kjörtímabilinu eftir að hafa staðið í stað næstu 7 ár þar á undan. Þá hafa framlög til Listahátíðar í Reykjavík og Tjarnarbíós hækkað auk samstarfssamninga við aðila eins og Nýlistasafnið, Mengi, Kling og Bang, Dansverkstæðið og fleiri aðila. Framlög til listaverkakaupa hafa sömuleiðis hækkað hjá Listasafni Reykjavíkur sem er mikilvæg forsenda þess að safnið geti sinnt með sóma sínu hlutverki við miðlun samtímamyndlistar. Úrbótasjóður tónleikastaða endurreistur Undanfarin misseri hefur tónleikastöðum í miðborginni fækkað og var það kveikjan að því að menningar- og íþróttaráð setti af stað spretthóp í nóvember til að snúa vörn í sókn.Spretthópurinn skilaði tillögum sínum í lok febrúar og lagði þar m.a. til að svokallaður Úrbótasjóður tónleikastaða yrði endurreistur en hann var settur á stofn 2020 til þriggja ára og hefur verið kallað eftir sambærilegum stuðningi síðan verkefninu lauk. Með samþykkt menningar- og íþróttaráðs og staðfestingu borgarráðs verður sjóðurinn nú endurreistur með 10 milljóna króna framlagi og geta þá minni og meðalstórir tónleikastaðir sótt um fjármagn til að bæta aðstöðu og búnað til að renna frekari stoðum undir tónleikahaldið. Öðrum tillögum spretthópsins m.a. um að einfalda leyfisveitingakerfi hefur verið vísað til skrifstofu borgarstjórnar til frekari meðferðar þar með talið tillögu um að tónleikastaðir verði viðurkenndir sem mikilvægir menningarinnviðir, sem taka þurfti tillit til við uppbyggingu nýrrar starfsemi í viðkomandi hverfum. Ný æfingaaðstaða fyrir ungar hljómsveitir Mikil þörf er á auknu rými til æfinga fyrir hljómsveitir ungra tónlistarmanna og hefur því kalli nú verið svarað með samstarfi Tónlistarborgarinnar Reykjavík við úti félagsins Haus sem rekur Hafnarhaus í Tryggvagötu og Hlemm. Haus að Laugavegi 114-116 við Hlemm. Þar verður nú með stuðningi borgarinnar byggð upp æfingaaðstaða sem mun geta rúmað 12 til 18 hljómsveitir ungs tónlistarfólks. Boðið verður upp á fjögur æfingarými fyrir hljómsveitir tónlistarfólks á aldrinum 15-30 ára og sömuleiðis verður á staðnum sameiginleg aðstaða með sviði og upptökuveri. Staðsetningin við Hlemm hentar vel, þar sem samgöngur eru góðar og hljómsveitir munu starfa í skapandi og listrænu umhverfi. Á efri hæðum hússins er vinnuaðstaða fjölda listamanna, auk þess sem Myndlistarskólinn í Reykjavík er staðsettur í næsta nágrenni. Tónlistarborgin mun leggja til 2 milljónir króna í verkefnið og væntir góðs árangurs af verkefninu samhliða því að halda áfram að vinna að tryggja framtíð Tónlistarþróunarmiðstöðvarinnar sem hefur sinnt vel því hlutverki undanfarin ár að mæta þörfum hljómsveita fyrir æfingar og sköpun. Samtök smærri tónleikastaða verða til Það er óvænt en afar ánægjuleg hliðarafurð af vinnu spretthópsins að smærri tónleikastaðir tóku sig saman og stofnuðu Samtök smærri tónleikastaða sem munu vinna að sameiginlegum hagsmunamálum. Það ýtir svo undir bjartari tíð í geiranum að nýlega hafa tveir tónleikastaðir opnað með merka sögu, annars vegar Austurbæjarbío og Tónabíó auk þess sem hyllir undir endurreisn Café Rosenbergs í Naustunum við Tryggvagötu. Sól tónlistarborgarinnar í Reykjavík er því tekin að rísa svo um munar! Næsta verkefni er svo að leggja drög að eflingu tónlistarnáms í borginni sem við jafnaðarmenn viljum setja í forgang á komandi árum. Nánar um það í komandi grein. Höfundur er borgarfulltrúi Samfylkingarinnar og formaður menningar- og íþróttaráðs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skúli Helgason Samfylkingin Reykjavík Tónleikar á Íslandi Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir Skoðun Halldór 17.10.2026 Halldór Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir Skoðun Skoðun Skoðun Þegar samþykki virðist verða að ábyrgð brotaþola Herdís Ósk Sveinbjörnsdóttir. skrifar Skoðun ÁTVR, Ölgerðin og breyttir tímar Jón Páll Haraldsson skrifar Skoðun Gilda engin lög um óvígða sambúð? Eva Hauksdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin sker niður þjónustu við börn Lilja Dögg Alfreðsdóttir skrifar Skoðun Vill fólk að allir leikir skipti máli? Jón Fannar Árnason skrifar Skoðun Bannað að gagnrýna konur – það er kvenfyrirlitning Íris Erlingsdóttir skrifar Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar Skoðun Styðjum Kúbu, verjum byltinguna, Bandaríkin burt með krumlurnar! Gylfi Páll Hersir skrifar Skoðun Þjóðaröryggi, fæðuöryggi og almannahagsmunir Ingibjörg Davíðsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Darwin og samkynhneigðin Ásgeir M Rudolfsson skrifar Skoðun Upprætum fátækt á Íslandi! Anna Margrét Bjarnadóttir,Steinunn Þóra Árnadóttir skrifar Skoðun Uppnám í Uppsveitum Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Bætur fyrir lögregluaðgerðir lítið kynntar Bjarni Þór Sigurbjörnsson skrifar Skoðun Verjum það sem við höfum – byggjum upp það sem þarf Guðmundur Haukur Jakobsson skrifar Skoðun EES-samningurinn: Tími til kominn að endurmeta stöðu Íslands? Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Þroskahjálp 50 ára: Yfirfærslan 2011 – horft yfir veginn Gerður Aagot Árnadóttir skrifar Skoðun Gervigreind skýrsla gervigreindrar ríkisstjórnar Kristján Logason skrifar Skoðun Gráðugir hótelgestir sem borða rafmagn Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Skattahækkanir sem beinast gegn Suðurlandi Ásta Stefánsdóttir skrifar Skoðun Hvað myndi ég ráðleggja átján ára ungmenni í dag? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Þegar netöryggi verður samfélagsöryggi Margrét V. Helgadóttir skrifar Skoðun Skráum hjartastuðtækin því hver mínúta skiptir máli! Alma D. Möller skrifar Skoðun Er gervigreind til góðs eða bara á blaði? Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Hver á að halda í hönd þeirra sem greinast með Alzheimer ? Ásta Kristín Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Múlaþing ber ábyrgð Magnús Guðmundsson skrifar Skoðun Aldrei fullmótaður Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar Sjá meira
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun
Skoðun Mannleg reisn á ekki að vera munaður – um aðstæður fólks sem leitar eftir mataraðstoð Sunna Lind Adessa skrifar
Skoðun Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson skrifar
Skoðun Að njóta menningar og læra af henni – hvað er uppbyggileg réttvísi? Kristín Skjaldardóttir ,Þóra Sigfríður Einarsdóttir skrifar
Skoðun Hver ákveður hvort heyrnarlaus sjúklingur þarf túlk? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar
Skoðun Nikótínpúðar og rafrettur – endurbætt löggjöf í þágu barna og ungmenna María Heimisdóttir skrifar
Hvers vegna starfa 632 starfsmenn ríkisins við að selja áfengi fyrir Ölgerðina? Lúðvík Bergvinsson Skoðun