Viljum við að fatlað fólk komist um á eigin forsendum? Þuríður Harpa Sigurðardóttir og Harpa Cilia Ingólfdóttir skrifa 19. apríl 2026 14:31 Frá því 2001 hafa sveitarfélögin átt kost á veglegum styrkjum frá ríkinu til úrbóta í aðgengismálum. Þrátt fyrir háværa umræðu um vanfjármögnun í málaflokki fatlaðs fólks fóru tæpar 120 milljónir króna forgörðum á árunum 2021-2024. Eftirspurnin eftir styrkjunum var of lítil. Mikil vitundarvakning í aðgengismálum Við höfum lyft grettistaki í aðgengismálum undanfarin ár. Haraldur Þorleifsson átti frumkvæðið að Römpum upp Ísland átakinu sem var vel stutt af fjölda fyrirtækja, félagasamtaka og einstaklinga ásamt ríkisstjórninni og sveitarfélögum víða um land. Það hefur verið einstaklega ánægjulegt að taka þátt í verkefninu og verða vitni að þeirri vitundarvakningu sem hefur orðið í samfélaginu. Reistir voru 1756 rampar sem hafa gjörbreytt möguleikum fatlaðs fólks á að komast um, sinna daglegum athöfnum og njóta lífsins á við annað fólk. Öll höfum við fengið betri skilning á því hversu hamlandi það er fyrir hreyfihamlað fólk að komast ekki leiðar sinnar og þurfa stöðugt að óska eftir aðstoð við einfalda hluti eins og að komast inn í búðir eða fara út að borða. Nú er komið að sveitarfélögunum Römpum upp Ísland lauk formlega í mars 2025. Það er því afskaplega mikilvægt að sveitarfélögin taki við keflinu og stuðli áfram að bættu aðgengi með öflugum hætti. Sveitarfélögin gegna nú þegar lykilhlutverki í aðgengismálum þar sem þau bera ábyrgð á bæði skipulagsmálum og eftirliti með framkvæmdum. Ríkisstjórnin studdi Römpum upp Ísland með 200 milljóna króna framlagi á fjögurra ára tímabili. Það hefur kannski ekki farið jafn hátt, en sveitarfélögunum standa einnig til boða veglegir styrkir frá Jöfnunarsjóði til úrbóta á aðgengi fyrir fatlað fólk. Ríkið gaf vilyrði fyrir allt að 778 milljónum króna á tímabilinu 2021-2024, sem nýta mátti til að bæta aðgengi að byggingum, almenningssamgöngum, útisvæðum og almannagörðum og einnig til aðlögunar á vinnustöðum fatlaðs fólks. Styrkirnir nema allt að helmingi framkvæmdakostnaðar á móti sambærilegu framlagi sveitarfélaganna. Átakið er unnið í nánu samstarfi við ÖBÍ réttindasamtök. Er aðgengið best fyrir vestan? Framtakið hefur skilað sér í fjölda góðra verkefna, eins og til dæmis bættu aðgengi að skólum og leikskólum, leiksvæðum, útisvæðum, sundlaugum og húsnæði á vegum sveitarfélaganna. Eftirspurnin eftir styrkjunum hefur hins vegar ekki verið næg. Þrátt fyrir að fjöldi sveitarfélaga nýti sér styrkina til fulls hefur hluti fjármagnsins hreinlega gufað upp þar sem sum sveitarfélög og jafnvel heilu landshlutarnir hafa látið liggja á milli hluta að sækja um. Sveitarfélögin á Vestfjörðum áttu til dæmis kost á tæplega 20 milljóna króna styrkjum á tímabilinu 2023-2024 en sóttu sér þá ekki. Kannski eru aðgengismálin bara í skínandi lagi fyrir vestan? Það sama á við um Suðurnesjabæ, sem hefur látið sér 15 milljónir úr greipum renna, en sveitarfélagið hefur ekki sótt um eina einustu krónu í aðgengisstyrki. Samtals misstu Suðurnesjabær, Borgarbyggð, Hvalfjarðarsveit, Grindavíkurbær og sveitarfélögin á Vestfjörðum af styrkjum upp á 46 milljónir á árunum 2023-2024, en ekkert þeirra sótti um styrki á tímabilinu. Fyrstu tvö árin stóðu sveitarfélögunum 363 milljónir til boða, en einungis 309 milljónum var úthlutað. 2023 til 2024 var upphæðin 415 milljónir, en af þeim var 352 milljónum ráðstafað. Samtals hafa sveitarfélögin því orðið af 117 milljónum króna frá árinu 2021 sem nýta hefði mátt til framkvæmda fyrir 234 milljónir eða meira. Það munar um minna. Fjármagn í boði til frekari úrbóta Það þýðir hins vegar ekkert annað en að líta fram á veginn. Við viljum nýta tækifærið í aðdraganda kosninga til að hvetja sveitarfélögin til að fullnýta það fjármagn sem í boði er til úrbóta í aðgengismálum. Í ljósi erfiðrar fjárhagsstöðu sveitarfélaganna hlýtur það að vera eftirsóknarvert að fá fjármagn til framkvæmda sem eru bæði atvinnuskapandi og þjóðhagslega hagkvæmar. Bætt aðgengi á 50% afslætti! Í febrúar 2025 tilkynnti ríkisstjórnin um 464 milljóna króna framlag til úrbóta á aðgengi á árunum 2025-2026. Einungis 111 milljónum hefur verið ráðstafað til þessa og því eru hvorki meira né minna en 353 milljónir eftir í pottinum. Til viðbótar hefur Jöfnunarsjóður fengið heimild til að styrkja sveitarfélög um allt að fimm milljónir króna í tengslum við kaup og uppsetningu á lyftum, sem geta haft gríðarlega þýðingu fyrir aðgengi fatlaðs fólks. Nýtum fjármagnið til fulls Í lokin má kannski vekja athygli á því að á þessu ári standa sveitarfélögunum á Vestfjörðum til boða 18 milljónir króna í styrki, sveitarfélögunum í Borgarfirði 5,5 milljónir og Hvalfjarðarsveit rúmar 4 milljónir. Með réttu aðgengisverkefnunum getur Suðurnesjabær náð sér í rúmlega 8 milljóna króna styrki fyrir lok árs. Jöfnunarsjóður hefur með styrkjunum skapað hvata til úrbóta í aðgengismálum fyrir 2,5 milljarða eða meira. Það er mjög vel að verki staðið, en að sama skapi eru það vonbrigði að tækifærin til að bæta aðgengi séu ekki nýtt til fulls. Þörfin á úrbótum er augljóslega til staðar – líka fyrir vestan. Nýtum fjármagnið til fulls, það er góð stjórnsýsla. Þuríður Harpa Sigurðardóttir, formaður Sjálfsbjargar, landssambands hreyfihamlaðra. Harpa Cilia Ingólfdóttir, sérfræðingur í aðgengismálum og formaður Sjálfsbjargar á höfuðborgarsvæðinu. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Þuríður Harpa Sigurðardóttir Málefni fatlaðs fólks Mest lesið Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson Skoðun Litla beiðnin kemur fyrst, svo sú stóra. Birna Bragadóttir Skoðun Trúum á enn stærra og sterkara Ísland Þórður Snær Júlíusson Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki prufuáskrift Guðbjörg Oddný Jónasdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Hvað gæti ESB-aðild þýtt fyrir almenna íbúa landsbyggðanna? Stefanía V. Gísladóttir skrifar Skoðun Hvönnin í bjarginu Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Hvernig fór síðasti heimsendir? Vilhelm Jónsson skrifar Skoðun Um tjáningu fullveldis Arnór Sighvatsson skrifar Skoðun 25,2% árangur Gísli Garðarsson skrifar Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar Skoðun Stöndum með blaðamönnum Sigríður Dögg Auðunsdóttir skrifar Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar Skoðun Þess vegna segjum við NEI þann 29. ágúst Þorvaldur Þorvaldsson skrifar Skoðun Ég kýs JÁ ! - Hvers vegna? skrifar Skoðun Kveðja til hleðslukvíðans Úlfar Linnet skrifar Skoðun Samkeppnishæfni Íslands Ingvar Þóroddsson skrifar Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar Skoðun Virðir Alþingi úrslit þjóðaratkvæðagreiðslunnar 29. ágúst? Hjörtur Hjartarson skrifar Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar Skoðun Traust er ekki sjálfgefið Hilmar Freyr Gunnarsson skrifar Skoðun Evrópusambandið, skjól frá Bandaríkjunum? Guttormur Þorsteinsson skrifar Skoðun Þegar ríkið tekur reikninginn Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Þögnin rofin um þjóðartekjurnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Falleinkunn heima, en hugurinn í Brussel Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Tökum slaginn fyrir börnin Tótla I. Sæmundsdóttir,Þorbjörg Helga Þorgilsdóttir skrifar Skoðun Óvissan í alþjóðamálum - Hvað ef Norðmenn verða á undan? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hollenska húsnæðislánið Arnór Ingi Finnbjörnsson skrifar Skoðun Borgin þarf ekki kjötexi — hún þarf mælikerfi Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Stríð ESB gegn jöfnuði og velferð Andri Sigurðsson skrifar Skoðun Já núna – til að geta sagt nei síðar Friðrik Björgvinsson skrifar Skoðun Þegar efinn verður þýðingarmeiri en sannleikurinn Guðjón Heiðar Pálsson skrifar Skoðun Sex ýkjur nei-sinna og já-sinna Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Komið gott Oktavía Hrund Guðrúnar Jóns skrifar Skoðun Sjálfstæð þjóð tekur sér sæti við borðið Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir skrifar Sjá meira
Skoðun Hvernig á ég að ákveða hvað ég ætla að kjósa? Ráð frá sálfræðingi samfélagsins Gró Einarsdóttir skrifar
Skoðun Einstakt tækifæri til að auka kaupmátt sem við gætum misst af næstu 30 árin!! Baldur Pétursson skrifar
Skoðun Kaupmáttur eftir húsnæðiskostnað 27% minni en fyrir fimm árum Yngvi Ómar Sigrúnarson skrifar
Skoðun Stöðug króna, afnám verðtryggingar og nýtt hlutverk Íslands í alþjóðlegu fjármálakerfi Eggert Guðmundsson skrifar