Skýringar manns sem vildi „endurvekja þýsku sturturnar“ héldu ekki vatni Jón Þór Stefánsson skrifar 19. apríl 2026 20:32 Maðurinn fær hundrað þúsund króna sekt vegna ummælanna sem birtust á Facebook. Vísir/Vilhelm/Getty Karlmaður var á dögunum dæmdur í Héraðsdómi Reykjaness fyrir hatursorðræðu vegna ummæla sem hann lét falla á Facebook við frétt Vísis. Hann hlaut fyrir vikið hundrað þúsund króna sekt. Ummælin birti maðurinn á þjóðhátíðardegi Íslendinga, 17. júní, árið 2023 við frétt Vísis þar sem bæjarfulltrúi í Reykjanesbæ sagði bæinn kominn langt „yfir þolmörk í móttöku flóttafólks“ og að töluverður órói væri í bænum vegna þess. Athugasemd mannsins var eftirfarandi: „Það þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk. Grikkirnir kunna að fara með þessar rottur og berja þær til hlýðni svo þær hugsa ekki einusinni um að reyna að komast yfir landamærin þar. Þeir voru aldrei spurðir hvort þeir vildu taka á móti mússunum og skilja að rett einsog þú býður ekki rottum að sofa inná gafli hjá þér þá viltu ekki heldur fá þessi mannlegu meindýr inna á golf til þín sem eru ekki að flýja neitt nema letina í sér og slæmt efnahagskerfi & hugsa bara um að leggjast á kerfið og láta sig svo hverfa þegar kistan er tóm hvort sem það er mússarnir eða pakkið frá Venesúela.“ Það voru samtökin Solaris sem lögðu fram kæru vegna málsins, en það var síðan Lögreglustjórinn á Suðurnesjum sem höfðaði málið. Í ákæru lögreglunnar segir að ummæli mannsins hafi falið í sér ógnun, smánun, háð og rógburð á opinberum vettvangi í garð ótiltekins hóps manna vegna þjóðernisuppruna, kynþáttar og trúarbragða Í dómnum er aldrei tekið skýrum orðum fram hvernig ákæruvaldið eða dómurinn sjálfur túlkar orð mannsins um þýsku sturturnar, en þó er nokkuð ljóst að hann eigi að hafi með umræddum orðum sínum verið að vísa í helför nasista. Maðurinn sjálfur vildi þó meina annað. Sagðist hafa átt við þýskar gæðasturtur Í skýrslutöku hjá lögreglu í upphafi síðasta árs viðurkenndi maðurinn að hafa skrifað athugasemdina, en kvaðst saklaus af sakargiftum. Hann hefði einungis verið að lýsa skoðun sinni og hún ekki beinst að neinum ákveðnum hópi manna. Hann sagðist hafa verið að fjalla um staðreyndir sem hann hefði lesið um. Aðspurður um hvað hann hafi átt við með því að endurvekja þurfi „þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk“ kvaðst hann hafa verið að vísa til þess að Þjóðverjar framleiði gæðasturtur. Þá sagði hann að setja þyrfti hælisleitendur sem kæmu hingað til lands í sturtu enda væru „þeir líklegast með flær og annað á sér eftir langan flótta“. Maðurinn vildi meina að hann hefði ekkert á móti flóttafólki sem væri virkilega að flýja raunverulega ógn, en sagði þó hælisleitendur flakka milli landa án ástæðu til að komast á „socialinn“. Hann tók fyrir að hafa hótað eða ógnað fólki með ummælum sínum, og að ekki væri um hatursorðræðu að ræða. Við aðalmeðferð málsins var maðurinn spurður nánar út í ummæli sín um þýskar sturtur, þá tók hann fram að hann hefði unnið sem dúkari í húsnæði Útlendingastofnunar og að þar hefði þurft að setja fólk sem hingað kæmi í sturtur til þess að hreinsa af því flær og fleira. Hann sagði sturturnar þar hafa verið frá þýska framleiðandanum GROHE. Mikill ólíkindablær yfir útskýringunum Dómnum þótti mikill ólíkindablær yfir þessari skýringu mannsins á þýsku sturtunum. Það var jafnframt mat dómsins að hann hafi gengið lengra en honum er heimilt samkvæmt stjórnarskrárvörðu tjáningarfrelsi. Mat dómsins var að ummælin hafi falið í sér fordómafullan rógburð, smánun og fordæmingu í garð þeirra sem ummælin beindust að. „Loks verður að leggja til grundvallar að það sé bæði nauðsynlegt og samrýmanlegt lýðræðishefðum að takmarka þá tjáningu sem hér um ræðir, en ummæli ákærða voru gróflega móðgandi og alvarleg og til þess fallin að hafa skaðleg áhrif á þá hópa sem fyrir urðu. Verður áengan hátt séða ð þau teljist réttlætanleg sem innlegg í opna þjóðfélagsumræðu,“ sagði í dómnum. Í janúar 2023 hlaut maðurinn þrjátíu daga skilorðsbundinn dóm fyrir að ráðast á konu. Sú refsing hefur þó ekki áhrif á þennan dóm héraðsdóms, sem komst að þeirri niðurstöðu að maðurinn skyldi greiða 100 þúsund króna sekt eða sæta fangelsi í átta daga. Lögreglumál Dómsmál Tjáningarfrelsi Flóttafólk á Íslandi Hælisleitendur Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira
Athugasemd mannsins var eftirfarandi: „Það þarf að fara endurvekja þýsku sturturnar aftur á þetta helvítis pakk. Grikkirnir kunna að fara með þessar rottur og berja þær til hlýðni svo þær hugsa ekki einusinni um að reyna að komast yfir landamærin þar. Þeir voru aldrei spurðir hvort þeir vildu taka á móti mússunum og skilja að rett einsog þú býður ekki rottum að sofa inná gafli hjá þér þá viltu ekki heldur fá þessi mannlegu meindýr inna á golf til þín sem eru ekki að flýja neitt nema letina í sér og slæmt efnahagskerfi & hugsa bara um að leggjast á kerfið og láta sig svo hverfa þegar kistan er tóm hvort sem það er mússarnir eða pakkið frá Venesúela.“
Lögreglumál Dómsmál Tjáningarfrelsi Flóttafólk á Íslandi Hælisleitendur Mest lesið Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Innlent Tvö lík fundin eftir að snjóðflóð lenti á búðum Erlent Yfirgefa heimili sín og flykkjast í neyðarskýlin Erlent Forseti Serbíu segir af sér í skugga mótmæla Erlent Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Innlent Stutt geti verið í kosningar Innlent Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Innlent Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Innlent Meintu hryðjuverkamennirnir lengi undir eftirliti Erlent Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Innlent Fleiri fréttir Lögregla kölluð til vegna rifrildis í Konukoti Bregðast við skipulögðum árásum og hótunum Góðkunningi lögreglunnar grunaður um líkamsárás Stutt geti verið í kosningar Boðar fyrstu lögin og reglurnar gagnvart gervigreind Eldur á Hellu Slökkvilið kallað út í Hafnarfjörð Segir merkilegt að einkaskilaboð séu rædd á Alþingi Beitti úðavopni á vegfarendur Sextán ára unglingar sóttir í bæinn eftir afskipti lögreglu Svara verði í hvaða umboði skilaboðin voru send Maður á sextugsaldri með áverka á höfði eftir árás ungmenna Verður gervigreindin mennskari eða fólk eins og gervigreind? Efnahagsmálin, SÁÁ og skítapotturinn á Sprengisandi Skemmtistað lokað í miðborginni vegna fjölda ungmenna Söfnuðu 32 milljónum fyrir langveik börn Tómas kominn aftur til starfa Siðferðislegir hugleysingjar neiti að semja um frið Þyrlan lenti við Hörpu Daði spreytir sig í Gettu betur Ráðherra hafi hrakið hana úr starfi: „Ég mun aldrei gleyma svipnum á Ragnari“ Umdæmin mishrifin af fækkun embætta Tugir mættir til þess að mótmæla ríkisstjórninni Buxnalaus Lalli olli glundroða Þyrlan sótti slasaðan knapa Heimsfræg Twitch-stjarna olli örtröð í miðbænum Fagnar fækkun lögregluembætta og deilt um málverk af Danakonungi Átján kíló af kókaíni undir fölskum botni Eftirlitið fellur á herðar foreldra Loka hringveginum við Jökulsárlón Sjá meira