Styrkjum heilsubæinn Hveragerði Maria Araceli og Berglind Ósk Guttormsdóttir skrifa 22. apríl 2026 07:30 Hveragerði hefur lengi verið þekkt fyrir að vera heilsubær, staður þar sem nálægðin við náttúruna skapar kjöraðstæður fyrir vellíðan fólks. Það er einmitt þessi nálægð sem laðar marga að Hveragerði, þar á meðal okkur sem skrifum þessa grein. Ekki þarf að fara langt til að komast út í náttúruna. Fossflötin, Hamarinn, Reykjafoss, Reykjafjall og Reykjadalur eru allt hluti af daglegu lífi okkar og þessi svæði, og fleiri til, bjóða upp á fjölbreytta möguleika til útivistar. Rannsóknir hafa sýnt að útivera hefur jákvæð áhrif á einbeitingu og almenna líðan fólks og vinnur gegn streitu. Þá stuðlar dvöl úti í náttúrunni að betra jafnvægi líkamans og hugarró. Hveragerði hefur margt að bjóða, en á sama tíma lifum við í veruleika þar sem hraði, áreiti og stöðug stafræn tenging setja mark sitt á daglegt líf. Þó við séum sífellt tengd tækninni upplifa margir minni tengsl sín á milli, einmanaleiki eykst og þá verður nærumhverfið sífellt mikilvægara. Það eru mörg tækifæri til að nýta grænu svæðin okkar betur og skapa enn meiri hvata fyrir íbúa til að njóta þeirra reglulega. Þrátt fyrir að margir fari í göngutúra úti í náttúrunni er hægt er að styðja betur við fjölbreytta notkun útivistarsvæða fyrir alla aldurshópa. Hvað er heilsubær í raun? Heilsubær snýst ekki eingöngu um það að hafa aðgang að fallegri náttúru eða góðum útivistarsvæðum, það er þó alltaf mikilvægur grunnur. Þetta snýr einnig að því hvernig við nýtum umhverfið okkar, hvernig við stuðlum að jákvæðum samskiptum fólks og hvort samfélagið sjálft hvetur til athafna sem ýta undir vellíðan íbúanna. Heilsubær er staður þar sem líkamleg, andleg og félagsleg heilsa fara saman. Þar sem börn fá að vaxa og dafna í umhverfi sem styður þau. Einnig þar sem fullorðnir hafa rými til að anda og eldri borgarar geta tekið virkan þátt í samfélaginu við góðar aðstæður til hreyfingar og samveru. Í því ljósi er náttúran ekki aðeins umhverfi, heldur lykilþáttur í daglegri lýðheilsu sem stuðlar að tengslum, ró og jafnvægi. Svæðið undir Hamrinum býr yfir miklum möguleikum. Þar nýtur falleg náttúra sín í skjólsælu umhverfi og myndar sterkan grunn til frekari uppbyggingar. Með einfaldri og náttúrulegri þróun má gera svæðið enn aðgengilegra og betur nýtanlegt fyrir alla íbúa og gesti sem sækja Hveragerði heim. Ef horft er til að mynda á Kjarnaskóg á Akureyri má sjá gott dæmi um hvernig skógurinn hefur verið þróaður sem fjölbreytt útivistarsvæði fyrir alla aldurshópa. Vel upplýstir og merktir göngu- og hjólastígar, leiksvæði og góð grillaðstaða skapa upplifun sem hvetur fólk til að koma og staldra við. Í Hveragerði eru sambærileg tækifæri til staðar. Með einföldum aðgerðum, svo sem grillum, skjólgóðum setusvæðum og fjölbreyttri leik- og afþreyingaraðstöðu, má efla svæðið undir Hamrinum verulega. Mikilvægt er að tryggja gott aðgengi þannig að bæði börn og eldra fólk geti notið þess. Með því að efla notkun svæðisins undir Hamrinum og annarra náttúrusvæða í Hveragerði má skapa lifandi rými sem styðja við samveru og útiveru og veita mikilvægt mótvægi við hraða nútímans. Slík uppbygging styrkir lífsgæði íbúa og eflir jafnframt stöðu Hveragerðis sem áfangastaðar. Þannig birtist heilsubærinn í daglegu lífi og styður við heilsu og vellíðan til framtíðar. Höfundar skipa þriðja og fimmta sæti S-listans í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Hveragerði Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson Skoðun Ef Ísland gengur í Evrópusambandið flyt ég til Danmerkur Benedikt Jóhannesson Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson Skoðun Þarftu að vita mikið um ESB til að kjósa 29. ágúst? Árný Elínborg Ásgeirsdóttir Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir Skoðun Skoðun Skoðun Nei er ókei Ágúst Valves Jóhannesson skrifar Skoðun Hvað ef? Pétur B. Sveinsson skrifar Skoðun Húsnæðisvextir lækka ekki sjálfkrafa með evru Magnús B. Jóhannesson skrifar Skoðun Mun ESB hjálpa við vegagerð á Íslandi? Jón Þorvaldur Heiðarsson skrifar Skoðun Við erum í partíinu en megum ekki velja lag Árni Páll Jónsson skrifar Skoðun Með öllum mjalla? Steingrímur Jónsson skrifar Skoðun Fyrsti steinninn úr múrnum – af hverju ég segi já Brynhildur Heiðar- og Ómarsdóttir skrifar Skoðun Hræðsluáróður og staðreyndir um orkuauðlindir Jóhann Páll Jóhannsson skrifar Skoðun Til hvers var þá barist? Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Skynsamleg röð hlutanna Jón Steindór Valdimarsson skrifar Skoðun Græða fyrirtæki á verðbólgu? Konráð S. Guðjónsson skrifar Skoðun Hvað er það sem við eigum eftir að sjá? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Tækifæri fyrir íslenskan landbúnað í ESB Svavar Halldórsson skrifar Skoðun Hagsmunir Reykvíkinga og loðfíllinn í Ráðhúsinu Pétur Marteinsson skrifar Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Því er ekki betur vandað til verka? Fanný Gunnarsdóttir skrifar Skoðun Hvaða samningsrammi gildir? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Gullasninn Guðjón Þórir Sigfússon skrifar Skoðun Samningaviðræður um Evrópusambandsaðild, já eða nei? Magnús Tumi Guðmundsson skrifar Skoðun SFS, hagsmunir og sannleikurinn Þórólfur Matthíasson skrifar Skoðun Daði í baði Bjarnheiður Hallsdóttir skrifar Skoðun Hégómi Haukur Eggertsson skrifar Skoðun Við getum þetta sjálf – en hver græðir á því? Margrét Högnadóttir skrifar Skoðun Þarf fimm háskólagráður til að segja já? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Já, já eða nei Þorsteinn Bergsson skrifar Skoðun Hvar má sleppa taumnum? Sigvaldi Einarsson skrifar Skoðun Um sameiginleg verðmæti og veikleika stjórnkerfisins Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Nei við hindrunum - Ákvarðanir um Ísland á Íslandi Guðmundur Fertram Sigurjónsson skrifar Skoðun Ísland á eilífa hagsmuni en ekki eilífa bandamenn Lára Herborg Ólafsdóttir skrifar Skoðun Lífeyrissjóðirnir og aðalfundur Icelandair Kjartan Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hundruð milljarða ávinningur fyrir fólk og fyrirtæki - þess vegna segi ég já til að sjá Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir skrifar