Við vitum betur – en gerum ekki nóg Eva Einarsdóttir skrifar 24. apríl 2026 07:47 Ársskýrslan er ekki einungis yfirlit yfir fortíðina. Hún er viðvörun fyrir framtíðina. Lestur ársskýrslu er eins og að horfa í baksýnisspegil. Ársskýrsla Amnesty International fyrir árið 2025 er nýkomin út og fjallar, eðli máls samkvæmt, um stöðu mannréttinda og atburði liðins árs. Nú þegar árið 2026 er gengið í garð með sívaxandi ofbeldi og mannréttindabrotum vaknar spurningin: Hvað ætlum við sem samfélag að gera við þær upplýsingar sem við búum yfir? Ef við værum í raun að horfa í baksýnisspegilinn – og draga lærdóm af því sem við sjáum – værum við þá ekki á betri stað? Hvað veldur því að ríki heims leyfa Ísrael að fremja hópmorð, án raunverulegrar fordæmingar og viðbragða? Hvar er mannúðar- og verndarskjöldur alþjóðasamfélagsins? Af hverju hafa ríki samþykkt alþjóðleg mannréttindalög og sáttmála, komið á fót mannréttinda- og alþjóðlegum dómstólum sem eiga að standa vörð um mannréttindi, mannúð og réttlæti – ef þau standa samt hjá þegar mest á reynir? Ný ársskýrsla Amnesty sýnir að þetta eru ekki einstök frávik fárra einræðisherra. Skýrslan dregur upp mynd af heimi þar sem mannréttindi eru æ oftar virt að vettugi og ríki grafa jafnvel undan því alþjóðlega kerfi sem á að vernda borgarana. Þetta er ekki tilviljun. Þetta er þróun sem við sjáum víða og í lýðræðisríkjum sem hafa gengist undir hinar ýmsu mannréttindaskuldbindingar. Sem formaður Íslandsdeildar Amnesty get ég ekki lesið slíka skýrslu án þess að spyrja: Hvar liggur ábyrgðin? Hún liggur ekki aðeins hjá stjórnvöldum og alþjóðastofnunum, heldur líka hjá okkur sem samfélagi. Hjá okkur sem kjósum, sem mótmælum, sem látum í okkur heyra – eða veljum að gera það ekki. Mannréttindi eru ekki sjálfgefin. Þau viðhalda sér ekki sjálf. Þau standa og falla með vilja okkar til að verja þau – í orði og verki. Ársskýrslan er því ekki aðeins yfirlit yfir fortíðina. Hún er viðvörun fyrir framtíðina – og prófsteinn á nútímann. Hún upplýsir okkur ekki einungis um hvað hafi gerst, heldur hvetur ríki til umbóta og einstaklinga til aðgerða. Við vitum betur, við höfum séð þessa þróun áður.Spurningin er hvort ríki ætli að bregðast við – eða halda áfram að horfa í baksýnisspegilinn án þess að breyta um stefnu. Höfundur er formaður Íslandsdeildar Amnesty. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mannréttindi Mest lesið Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Ársskýrslan er ekki einungis yfirlit yfir fortíðina. Hún er viðvörun fyrir framtíðina. Lestur ársskýrslu er eins og að horfa í baksýnisspegil. Ársskýrsla Amnesty International fyrir árið 2025 er nýkomin út og fjallar, eðli máls samkvæmt, um stöðu mannréttinda og atburði liðins árs. Nú þegar árið 2026 er gengið í garð með sívaxandi ofbeldi og mannréttindabrotum vaknar spurningin: Hvað ætlum við sem samfélag að gera við þær upplýsingar sem við búum yfir? Ef við værum í raun að horfa í baksýnisspegilinn – og draga lærdóm af því sem við sjáum – værum við þá ekki á betri stað? Hvað veldur því að ríki heims leyfa Ísrael að fremja hópmorð, án raunverulegrar fordæmingar og viðbragða? Hvar er mannúðar- og verndarskjöldur alþjóðasamfélagsins? Af hverju hafa ríki samþykkt alþjóðleg mannréttindalög og sáttmála, komið á fót mannréttinda- og alþjóðlegum dómstólum sem eiga að standa vörð um mannréttindi, mannúð og réttlæti – ef þau standa samt hjá þegar mest á reynir? Ný ársskýrsla Amnesty sýnir að þetta eru ekki einstök frávik fárra einræðisherra. Skýrslan dregur upp mynd af heimi þar sem mannréttindi eru æ oftar virt að vettugi og ríki grafa jafnvel undan því alþjóðlega kerfi sem á að vernda borgarana. Þetta er ekki tilviljun. Þetta er þróun sem við sjáum víða og í lýðræðisríkjum sem hafa gengist undir hinar ýmsu mannréttindaskuldbindingar. Sem formaður Íslandsdeildar Amnesty get ég ekki lesið slíka skýrslu án þess að spyrja: Hvar liggur ábyrgðin? Hún liggur ekki aðeins hjá stjórnvöldum og alþjóðastofnunum, heldur líka hjá okkur sem samfélagi. Hjá okkur sem kjósum, sem mótmælum, sem látum í okkur heyra – eða veljum að gera það ekki. Mannréttindi eru ekki sjálfgefin. Þau viðhalda sér ekki sjálf. Þau standa og falla með vilja okkar til að verja þau – í orði og verki. Ársskýrslan er því ekki aðeins yfirlit yfir fortíðina. Hún er viðvörun fyrir framtíðina – og prófsteinn á nútímann. Hún upplýsir okkur ekki einungis um hvað hafi gerst, heldur hvetur ríki til umbóta og einstaklinga til aðgerða. Við vitum betur, við höfum séð þessa þróun áður.Spurningin er hvort ríki ætli að bregðast við – eða halda áfram að horfa í baksýnisspegilinn án þess að breyta um stefnu. Höfundur er formaður Íslandsdeildar Amnesty.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar