Yamal felldi tár en ætti að ná HM Sindri Sverrisson skrifar 23. apríl 2026 11:32 Lamine Yamal meiddist í gærkvöld og var bersýnilega miður sín. Getty/Joan Valls Lamine Yamal fór meiddur og tárvotur af velli í sigri Barcelona gegn Celta Vigo í gærkvöld. Hann spilar ekki meira með Börsungum á tímabilinu.
Yamal skoraði sigurmark leiksins úr vítaspyrnu á 40. mínútu en meiddist svo seint í uppbótartíma fyrri hálfleiks. Læknir Barcelona-liðsins, Ricard Pruna, gaf strax til kynna að Yamal gæti ekki haldið áfram leik og fótboltastjarnan unga var bersýnilega miður sín þegar hann fór af velli, þó án aðstoðar. Um meiðsli aftan í læri er að ræða og hefur Barcelona nú gefið út að Yamal spili ekki meira með liðinu á leiktíðinni. Það ætti þó ekki að koma að sök fyrir liðið sem er með níu stiga forskot á Real Madrid í titilbaráttunni. The tests carried out have confirmed that first-team player Lamine Yamal has a hamstring injury in his left leg (biceps femoris muscle).The player will follow a conservative treatment plan. Lamine Yamal will miss the remainder of the season, and he is expected to be available… pic.twitter.com/8UU4Bg9bDh— FC Barcelona (@FCBarcelona) April 23, 2026 Spánverjar óttuðust hins vegar að meiðslin gætu þýtt að Yamal missti af HM í sumar en samkvæmt tilkynningu Barcelona er stefnan sett á að hann verði klár í slaginn á mótinu. Fyrsti leikur Spánverja er 15. júní, eftir aðeins sjö og hálfa viku, og því ekki mikill tími til stefnu fyrir Yamal til að komast aftur á fulla ferð. Takist það er svo sannarlega mögulegt að hann verði besti maður mótsins, aðeins 18 ára gamall. 12:05 Greinin var uppfærð eftir tilkynningu frá Barcelona.
Spænski boltinn Mest lesið Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn „Ekki bara handbolti, heldur lífið líka“ Handbolti Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Fleiri fréttir Eyjakonur þétta vörnina Vandræðalega slakar Valskonur: „Til skammar“ Allir íslensku Evrópuleikirnir á Sýn Sport Sjáðu tvennu Hansen og markið sem var tekið af Vinnandi Víkingar og veikar Valskonur Sir Alex um Keegan: Ég bar gríðarlega virðingu fyrir honum Stoðsendingakóngur HM sakaður um ógreitt meðlag Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Sjá meira