Krýsuvíkursamtökin 40 ára Valdimar Víðisson skrifar 24. apríl 2026 09:32 Í gær, á sumardaginn fyrsta, var einstaklega ánægjulegt að taka þátt í hátíðarhöldum í tilefni af 40 ára afmæli Krýsuvíkursamtakanna. Dagurinn var glæsilegur í alla staði, byrjað var á fallegri og vel sóttri afmælishátíð og síðar um kvöldið voru frábærir styrktartónleikar þar sem velvildin og stuðningurinn við þetta mikilvæga starf var áþreifanlegur. Fjörutíu ár eru merk tímamót í sögu hvers félags eða stofnunar. Saga Krýsuvíkursamtakanna er saga um hugsjón, þrautseigju, fagmennsku og djúpa trú á manneskjuna. Þar hefur í fjóra áratugi verið unnið ómetanlegt starf fyrir fólk sem þarf stuðning til að byggja líf sitt upp að nýju. Slíkt starf verður ekki metið til fulls í tölum eða skýrslum. Gildi þess birtist fyrst og fremst í mannslífum, í bata, í reisn, í von og í nýjum tækifærum. Við í Hafnarfirði erum stolt af því að eiga í góðu og traustu samstarfi við Krýsuvíkursamtökin. Starfsemin er mikilvægur hluti af þeirri samfélagslegu keðju sem þarf að vera sterk þegar fólk tekst á við erfiðar áskoranir og leitar leiða til bata. Áhrif starfsins ná langt út fyrir einstaklinginn sjálfan. Þau snerta fjölskyldur, vini, vinnustaði og samfélagið allt. Þess vegna skiptir miklu máli að sveitarfélög, félagasamtök og fagfólk vinni saman að raunhæfum lausnum sem styrkja fólk til sjálfstæðis, bata og aukinna lífsgæða. Það er því sérstaklega ánægjulegt að framundan eru mikilvæg uppbyggingaráform í samstarfi Hafnarfjarðarbæjar og Krýsuvíkursamtakanna. Þar má nefna fyrirhugaða stækkun húsnæðisins í Krýsuvík sem mun bæta aðstöðu og skapa enn betri skilyrði fyrir áframhaldandi þróun starfsins. Þá hefur einnig verið hafið samtal um uppbyggingu áfangaheimilis í samstarfi við samtökin. Slíkt úrræði getur orðið afar mikilvægt skref fyrir fólk sem er að fóta sig á ný þar sem brúin frá meðferð yfir í daglegt líf skiptir sköpum. Á þessum tímamótum er mikilvægt að þakka öllum sem hafa lagt Krýsuvíkursamtökunum lið í gegnum tíðina, stofnendum, starfsfólki, stjórn, bakhjörlum, samstarfsaðilum og ekki síst þeim einstaklingum sem hafa sýnt hugrekki í sinni eigin vegferð til bata og endurreisnar. Innilega til hamingju með 40 ára afmælið. Megi Krýsuvíkursamtökin áfram eflast og dafna, samfélaginu öllu til heilla. Höfundur er bæjarstjóri Hafnarfjarðar. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Valdimar Víðisson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Hvað kostar samfélag? Orri Jónsson Skoðun Skoðun Skoðun Viðskiptaráð stimplar sig út Andri Snær Magnason skrifar Skoðun Kristrún: Rektu Daða Má fjármálaráðherra Einar Steingrímsson skrifar Skoðun Götu hvað? Ebba Margrét Magnúsdóttir skrifar Skoðun Afmælisdagur á ekki að tefja skólagöngu Hrönn Stefánsdóttir skrifar Skoðun Fimm mýtur um vændi Drífa Snædal skrifar Skoðun Hvað kostar að gera vinnustað mannlegri? Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Líknarslæving, dánaraðstoð og rétturinn til að velja Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Vegna eða „vegna“ ferðamanna Ragnar Lúðvík Jónsson skrifar Skoðun Gervigreind, til góðs?Gervigreind, til góðs? Ketill Berg Magnússon skrifar Skoðun Ert þú gervigreindarsóði? Marín Jónsdóttir skrifar Skoðun Smjörklípa Þorgerðar Hjörvar Sigurðsson skrifar Skoðun Þegar undantekningarnar verða að stefnu Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Foreldraupplifun Sólný Pálsdóttir skrifar Skoðun Til varnar tímanum Eva Harðardóttir,Katrín Ólína Pétursdóttir skrifar Skoðun Forsætisráðherra endurskrifar söguna og snýr staðreyndum á hvolf Pétur Óskarsson skrifar Skoðun Það á að vera gott að eldast á Íslandi Ólafur Þór Gunnarsson,Regína Ásvaldsdóttir skrifar Skoðun Hver reiknar raunverulegan kostnað hagræðingar? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Einkunnakvarði er ekki námsmat! Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Áframhaldandi skilningsleysi nýliða Kristín Helga Schiöth skrifar Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar Skoðun Er að eignast barn samfélagsleg busun? Stefnir Húni Kristjánsson skrifar Skoðun Jöfn laun eiga ekki að ráðast af tilviljun Kolbrún Halldórsdóttir skrifar Skoðun Bannað að plata Ágúst Elvar Bjarnason skrifar Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar Skoðun Látum Loftbrúna vera Sindri S. Kristjánsson skrifar Skoðun Öryggi í umferð framtíðarinnar Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun „Við“ skiptaráð Dofri Hermannsson skrifar Skoðun Bláskógaskatturinn hefur áhrif víða Sveinn Ægir Birgisson skrifar Skoðun Skrýtnir útreikningar og fjármálalæsi Ásgeir Daníelsson skrifar Skoðun Er mynstrið þitt nægilega djúpt? Ágúst Mogensen skrifar Sjá meira
Skoðun Gervigreindin getur séð allt. En hver getur séð það sem hún sér? Júlíus Einar Júlíusson skrifar
Skoðun Kvennaknattspyrnan á Íslandi – á meðan Evrópa sækir fram stöndum við í stað Ólafur Thorarensen skrifar