Öruggt húsnæði fyrir alla Guðmundur Ingi Þóroddsson skrifar 25. apríl 2026 10:00 Friðhelgi og öryggi heimilisins eru ein af okkar dýpstu grunnþörfum og algjör forsenda fyrir hamingju og vellíðan barnanna okkar. Þrátt fyrir þetta ríkir grafalvarlegur húsnæðisskortur í Reykjavík. Þessi skortur bitnar harðast á þeim sem minnst mega sín, ungu fólki, barnafjölskyldum, öryrkjum, fötluðu fólki og eldri borgurum. Það er forgangsmál Flokks fólksins að breyta þessu. Þróun húsnæðismála í Reykjavík hefur verið stórum hópi sérlega erfið undanfarin ár. Mistök hafa verið gerð í áherslum og allt of lítið byggt af hagkvæmum íbúðum. Húsaleiga er víða orðin stærsti útgjaldaliður fjölskyldna og tekur til sín allt að 70 prósent af ráðstöfunartekjum. Þetta hefur leitt til þess að efnaminni foreldrar neyðast stundum til að leita skjóls í húsnæði sem er óviðunandi. Margt efnaminna fólk er á vergangi og þarf sífellt að færa sig um set. Þetta veldur kvíða og vanlíðan hjá börnum sem þurfa ítrekað að flytja, slíta upp rætur og hafa áhyggjur af því hvort þau eignist vini á nýjum stað. Börn þurfa öryggi til að geta vaxið og dafnað. Misskiptingin í borginni er mikil. Efnameira fólk getur stutt börn sín til fyrstu kaupa á húsnæði á sama tíma og ungt fólk úr tekjuminni fjölskyldum situr fast heima hjá foreldrum. Í dag bíða um sex hundruð manns eftir félagslegu húsnæði og á annað hundrað eftir sértæku úrræði fyrir fatlað fólk. Sumir á biðlistanum eru orðnir fullorðnir einstaklingar, jafnvel á fertugsaldri og búa enn hjá öldruðum foreldrum sínum vegna úrræðaleysis borgarinnar. Flokkur fólksins hefur skýra sýn á hvernig leysa má þennan vanda. Það verður að ráðast í stórfellda uppbyggingu á hagkvæmu húsnæði. Til að mæta uppsafnaðri þörf þarf að útvíkka vaxtamörk borgarinnar og ryðja land fyrir nýjar byggingarlóðir, eins og Flokkur fólksins hafði forystu um í Úlfarsárdal. Hraða verður lagningu Sundabrautar sem opnar fyrir uppbyggingu á nýjum byggingarsvæðum eins og á Geldinganesi, Gunnunesi, Álfsnesi og Kjalarnesi. Við verðum að brjóta land og byggja. Jafnframt ætlum við að vinda ofan af þeirri ofurþéttingu byggðar sem ráðið hefur för á umliðnum árum. Ómarkviss þétting hefur víða leitt til þess að innviðir eru sprungnir og sumir þéttingarreitir eru orðnir að skuggabyggðum. Flokkur fólksins leggur áherslu á mannvæna hönnun, græn svæði, ríkar kröfur um birtu og hljóðvist. Einnig verður að tryggja að nýjum íbúðum fylgi nægjanlegur fjöldi bílastæða, að lágmarki eitt stæði á hverja íbúð. Flokkur fólksins mun taka markvisst á lóðabraski komist hann til áhrifa. Lóðir eiga að nýtast til raunverulegrar uppbyggingar en ekki til spákaupmennsku. Við munum setja skýrar reglur og tímamörk á uppbyggingu og þrengja reglur um endursölu óbyggðra lóða. Íbúðir eiga að vera heimili fyrir fólk, en ekki fjárfestingarvara. Til að tryggja að allir eigi þak yfir höfuðið munum við efla Félagsbústaði, fjölga félagslegum íbúðum og vinna á biðlistum. Það er nauðsynlegt byggja upp öflugt félagslegt húsnæðiskerfi í samvinnu við ríkið og stofna ný innviðafélög með lífeyrissjóðum til að byggja upp skóla, leikskóla og og aðra innviði eins og götur og lagnir í nýjum hverfum. Þá fögnum við þeirri stefnumörkun ríkisstjórnarinnar að íbúðalánakjör verði sambærileg því sem þekkist í nágrannalöndum okkar. Ef Flokkur fólksins fær umboð til að leiða meirihluta í borgarstjórn Reykjavíkur verður húsnæðisöryggi sett í algeran forgang. Í stað þess að einblína á gæluverkefni munum við tryggja að fólk hafi leiðir til að búa í borginni okkar. Reykjavík á að vera fyrir alla, ekki bara suma. Höfundur er oddviti Flokks fólksins í Reykjavík. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Guðmundur Ingi Þóroddsson Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Halldór 04.07.2026 Halldór Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið Skoðun Skoðun Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Skoðun Húsnæðiskaupmáttur Eggert Sigurbergsson skrifar Skoðun Hef trú á Arnari Ögmundur Jónasson skrifar Skoðun Börn eiga ekki að bíða meðan kerfið rífst Guðmundur Ármann skrifar Skoðun Júlí - mánuður fötlunarstolts Freyja Haraldsdóttir ,Jana Birta Björnsdóttir skrifar Skoðun Níutíu ár af sameiginlegu öryggi Ragnar Þór Ingólfsson skrifar Skoðun Var þetta sýndarsamráð? Sigurborg Kr. Hannesdóttir skrifar Skoðun Hvað vitum við í ágúst? Staðreyndir og möguleikar Íslands Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Töpum við fullveldinu ef við göngum í ESB? Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Samningurinn sem allir hafa lesið skrifar Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Sjá meira