Jokic rekinn út úr húsi og Denver á bjargbrúninni Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 26. apríl 2026 10:33 Nikola Jokic var vísað af velli fyrir að ýta Jaden McDaniels. getty/AAron Ontiveroz Minnesota Timberwolves vantar aðeins einn sigur í viðbót gegn Denver Nuggets til að komast í undanúrslit Vesturdeildar NBA. Nikola Jokic var rekinn af velli í leik liðanna í nótt.
Undir blálok leiksins, þegar Úlfarnir voru fjórtán stigum yfir, setti Jaden McDaniels niður sniðsskot. Það fór illa í Jokic sem bjóst við að McDaniels myndi láta tímann renna út. Jokic hljóp í áttina að McDaniels og stjakaði við honum. Í kjölfarið sauð upp úr. Jokic var á endanum sendur í sturtu ásamt Julius Randle, leikmanni Minnesota. Jokic skoraði 24 stig í leiknum í nótt, tók fimmtán fráköst og gaf níu stoðsendingar. Tensions were high at the end of Game 4 between the Nuggets and Timberwolves 😳Both Nikola Jokic and Julius Randle were ejected for unsportsmanlike conduct. pic.twitter.com/U7Pg8ULO1J— ESPN (@espn) April 26, 2026 „Leikurinn var búinn og úrslitin ráðist. Árið 2026 gerist svona lagað ekki lengur. Svona lagað gerðist á 9. áratugnum þegar lið héldu áfram að skora. En svona er hann,“ sagði David Adelman, þjálfari Denver, eftir leikinn sem Minnesota vann, 112-96. Úlfarnir eru 3-1 yfir í einvíginu. Ayo Dosunmu var stigahæstur í liði Minnesota með 43 stig en það er það mesta sem varamaður hefur skorað í úrslitakeppni NBA í fimmtíu ár. Dosunmu hitti úr þrettán af sautján skotum sínum, þar af öllum fimm þriggja stiga skotunum, og nýtti öll tólf vítaskotin sín. AYO DOSUNMU GIVES WOLVES 3-1 LEAD WITH NIGHT FOR THE AGES.🔥 43 PTS, most he's scored in NBA🔥 13-17 FGM, 5-5 3PM, 12-12 FTM🔥 68 PTS in Games 3+4Dosunmu is the first player since Steph Curry in 2016 to score 40+ off the bench in the NBA Playoffs presented by @Google! pic.twitter.com/myApdo2aRg— NBA (@NBA) April 26, 2026 Meistarar Oklahoma City Thunder náðu 3-0 forystu í einvíginu við Phoenix Suns með 109-121 sigri í nótt. Shai Gilgeous-Alexander skoraði 42 stig fyrir OKC og hitti úr fimmtán af átján skotum sínum. Dillon Brooks skoraði 33 stig fyrir Suns. New York Knicks jafnaði metin í einvíginu gegn Atlanta Hawks í Austurdeildinni í 2-2 með sigri í fjórða leik liðanna, 98-114. OG Anunoby skoraði 22 stig fyrir Knicks og Karl-Anthony Towns var með þrefalda tvennu; tuttugu stig, tíu fráköst og tíu stoðsendingar. CJ McCollum skoraði sautján stig fyrir Haukana. Þá sigraði Orlando Magic Detroit Pistons, 113-105, og er 2-1 yfir í rimmu liðanna. Paolo Banchero og Desmond Bane skoruðu 25 stig hvor fyrir Orlando en Cade Cunningham var atkvæðamestur hjá Detroit með 27 stig og níu stoðsendingar.
NBA Mest lesið Liverpool má ekki taka á móti Real Madrid í Meistaradeildinni Fótbolti Ótrúlega ósáttur við Val: „Hafa skilið mann eftir einan í myrkrinu“ Handbolti Dönsk landsliðsstjarna dæmd Fótbolti Hundrað metra met Bolt „fallið“ Sport Golfáhrifavaldar í klandri vegna umdeildrar auglýsingar Golf Andri Lucas sjóðandi heitur og skorar í hvaða treyju sem er Enski boltinn Heiðursmannasamkomulag var svikið: „Kom okkur á óvart“ Handbolti Raheem Sterling ákærður Enski boltinn Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Handbolti Lögð í einelti sem barn en varð dýrasti leikmaður heims Enski boltinn Fleiri fréttir „Gripur sem safnarar bíða alla ævi eftir“ Reese rífur í sig metin Haukar fá risavaxinn liðsauka Fyrrverandi NBA leikmanni hent út úr húsi á kvennaleik Tindastóll tekur slaginn aftur í Evrópukeppni Kynlífsleikföngum aftur kastað inn á völlinn ÍR semur við sænsk-bandarískan bakvörð Strákarnir réðu ekki við Finnana Ísland tapaði fyrir Portúgal „Þurfum að gera skítaverkin betur en andstæðingurinn“ Sextán ára nýliði í landsliðinu: „Við erum að velja þær af því þær eru svo góðar“ ÍR semur við bandarískan bakvörð Íslenskan öll að koma til hjá nýliða landsliðsins „Takk fyrir mig körfubolti“ Pablo Bertone aftur í Val Keflavík heldur áfram að styrkja sig Hópurinn klár fyrir næsta skref að HM Berglind Katla valin í A-landsliðið aðeins 16 ára Yfir milljón í boði á nýrri íslenskri mótaröð Keflavík bætir við sig Bandaríkjamanni Krakkarnir bjuggu til sögulegt sumar fyrir íslenskan körfubolta Stjarnan fær 208 sentímetra miðherja Strákarnir sekúndum frá gullinu eftir frábæra frammistöðu „Hann var fyndinn, hann var hávær og hann var alltaf að grínast“ Strákarnir í úrslitaleikinn og upp í A-deild eftir risasigur Sló tvo leikmenn í andlitið og lét vísa áhorfanda út „Hinn fullkomni keppnismaður“ leggur skóna á hilluna Keyrðu yfir Svartfellinga undir lokin og undanúrslitin bíða Gætu rekið íslenska ríkissjóðinn fyrir kaupverðið á Lakers Sturla Böðvarsson til KR Sjá meira