Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir skrifar 27. apríl 2026 08:22 Sjávarútvegurinn hefur verið talsvert í umræðunni að undanförnu vegna fyrirhugaðrar þjóðaratkvæðagreiðslu um inngöngu í Evrópusambandið. Mikið hefur verið rætt um hvort varanlegar undanþágur ( opt - outs ) séu í boði en nú hefur verið staðfest af ESB sjálfu að einungis tímabundnar undanþágur eða svokallaðar sérlausnir séu í boði sem breyta engu um það að valdið fer til sambandsins. En skiptir sjávarútvegurinn ennþá svona miklu máli - kynnu einhverjir að spyrja - eru tekjur okkar af ferðaþjónustunni ekki orðnar mun meiri en af sjávarútvegi? Fyrir það fyrsta þá er sjávarútvegurinn nauðsynleg lífæð og lifibrauð fólks sem býr hringinn í kringum landið. Fjöldi fólks kemur að margvíslegum störfum sem tengjast sjávarútvegi og sjósóknin leiðir ekki aðeins af sér bein störf heldur einnig fjölda afleiddra starfa, meðal annars í hátæknigeiranum, verðmætasköpun í landinu, gjaldeyristekjur og tekjur fyrir ríkissjóð. Sjávarútvegurinn er önnur stærsta stoðin þegar kemur að útflutningstekjum Íslands og er atvinnugreinin því afar mikilvæg þegar kemur að tekjuöflun þjóðarinnar. Hvað ferðaþjónustuna varðar þá er þar vá fyrir dyrum. Skertur kaupmáttur almennings - bæði vestan hafs og í Evrópu vegna orkukreppunnar er verulegur. Innan ESB eru birgðir af þotueldsneyti á þrotum. Flugfélagið Lufthansa tilkynnti í síðustu viku að það myndi fella niður 200 þúsund flugferðir alveg fram í október. Óvissa varðandi flugferðir - auk skerts kaupmáttar - hefur gert það að verkum að stór hluti evrópubúa stefnir á að ferðast með bíl í sumarfríinu þetta árið í stað þess að fljúga. Það er því viðbúið að tekjur okkar af ferðaþjónustu fari að dragast saman. Stjórnvöld þurfa þar af leiðandi að standa öflugan vörð um aðrar tekjujöflunargreinar okkar. Og síðast - en ekki hvað síst - er vert að minnast á fæðuöryggi. En fæðuöryggi er orð sem við eigum eftir að heyra æ oftar í fréttum af heimsmálunum á næstu mánuðum. Financial Times birti ekki bara eina heldur tvær greinar um fæðuöryggi í síðustu viku. Það er nefninlega ekki einungis olían sem hefur í gegnum tíðina streymt um Hormuzsund - heldur áburður líka. En um tuttugu prósent þess áburðar sem framleiddur er í heiminum kemur frá Persaflóa. Með notkun áburðar getur jörðin brauðfætt þær rúmlega 8 milljarða manna sem búa í heiminum. Án áburðarnotkunar dregst öll uppskera verulega saman þannig að jörðin getur einungis brauðfætt um 2 milljarða manna að mati prófessors Jiang Xueqin. Meðan eldsneytishækkanir birtast strax við bensíndæluna - birtist fæðuskorturinn síðar og varir jafnframt lengur. Ríkisstjórnir ýmissa landa eru þegar farnar að gera ráðstafanir varðandi hækkandi matvælaverð og minna fæðuframboð næsta haust. Í ræðu sem Christine Lagarde, seðlabankastjóri ESB, flutti á 75 ára afmæli samtaka þýskra banka ( Association of German Banks/ Bundesverband deutscher Banken ) í Berlín 20. apríl síðastliðinn nefndi hún að mögulega þyrfti að koma til matarskömmtunar ( food rationing ) ef átökin við Persaflóa myndu dragast á langinn. Óneitanlega setti hroll að mörgum við tilhugsunina um að skammtanir á matvælum gætu verið framundan innan sambandsins. Fullt forræði okkar Íslendinga yfir allri 200 mílna landhelgi okkar er mikilvægur liður í því að tryggja bæði gjaldeyristekjur þjóðarinnar sem og fæðuöryggi þegar fram líða tímar. Fari valdið yfir sjávarútvegsauðlindinni til Brussel missum við forræðið yfir þessari verðmætu matarkistu sem er allt umhverfis landið okkar. Af framangreindu er ljóst að stjórnvöld hér á landi þurfa að bregðast strax við þeim áskorunum sem blasa við vegna orkukreppunnar og minnkandi fæðuöryggis í heiminum. Nú þegar ein mesta efnahagskreppa síðari ára er í hraðri uppsiglingu er ekki tíminn til að halda allri stjórnsýslunni nánast í gíslingu við upptöku og aðlögun að öllu regluverki ESB samhliða viðræðum um inngöngu í það. Stjórnvöld þurfa að snarskipta um stefnu, snúa sér frá inngöngu í sambandið og einhenda sér í það að tryggja orku- og fæðuöryggi þjóðarinnar sem allra best fyrir komandi efnahagskreppu. Annað væri vítavert ábyrgðarleysi. Höfundur er tónlistarkona. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Þjóðaratkvæðagreiðsla um ESB-viðræður Mest lesið Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir Skoðun Lýðræðislegur fasisti í Evrópu Hermann Stefánsson Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo Skoðun Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir Skoðun Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson Skoðun Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur? Unnur Pétursdóttir Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir Skoðun Kynferðisofbeldi gegn börnum – við þurfum að gera betur Sigurþóra Bergsdóttir Skoðun Hreinskilni í leikskólamálum Elín Anna Baldursdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Rangárþing í atvinnusókarsvæði höfuðborgarsvæðisins Inger Erla Thomsen skrifar Skoðun Hverskonar borg viljum við? Bolli Héðinsson skrifar Skoðun Röskun hafstrauma er þjóðaröryggismál Jóna Þórey Pétursdóttir skrifar Skoðun Öryggi og gæði í leikskólum – ábyrgð okkar Gunnþórunn Valsdóttir skrifar Skoðun Fagmennska og valddreifing í þágu íbúa Hveragerðis Lárus Jónsson skrifar Skoðun Lýðræðislegur fasisti í Evrópu Hermann Stefánsson skrifar Skoðun Hvar er næsti háskóli? Sjúkrahús? Alþjóðaflugvöllur? Unnur Pétursdóttir skrifar Skoðun Frelsi foreldra eða forsjárhyggja ríkisins? Bergþór Ólason skrifar Skoðun Kynferðisofbeldi gegn börnum – við þurfum að gera betur Sigurþóra Bergsdóttir skrifar Skoðun Mikilvæg uppbygging nýs golfvallar í landi Hafnarfjarðar Kolbrún Magnúsdóttir skrifar Skoðun Frí tómstund fyrir þitt barn? Sara Björg Sigurðardóttir skrifar Skoðun Í skólanum er skemmtilegt að vera - eða hvað? Hanna Dóra Markúsdóttir skrifar Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Sjávarútvegur, fæðuöryggi og þróun heimsmála Þollý Rósmundsdóttir skrifar Skoðun Hreinskilni í leikskólamálum Elín Anna Baldursdóttir skrifar Skoðun Almannarómur um gervigreind Óttar Kolbeinsson Proppé skrifar Skoðun Amma mætti á þing kennara Meyvant Þórólfsson skrifar Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar Skoðun Ekki bara barnvænt sveitarfélag í kosningabaráttu Leyla Ósk Jónsdóttir skrifar Skoðun Frá auðlindaforskoti til þekkingarforskots Sigurður Atli Jónsson skrifar Skoðun Schengen - hvað færir það okkur? Aðalstein Júlíus Magnússon skrifar Skoðun Af hverju treystir Reykjavík ekki atvinnulífinu? Róbert Ragnarsson skrifar Skoðun Óvissa í aðfangaöflun landbúnaðar Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Neitunarvaldið Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Mitt heimili, mín rödd Joanna Marcinkowska skrifar Skoðun Óásættanleg seinkun — hvalirnir munu borga fyrir það Arne Feuerhahn skrifar Skoðun Viltu ekki bara fá þér kött? Signý Jóhannesdóttir skrifar Skoðun Vekjum Vífilsstaði - Úr biðstöðu í bæjarbrag Jón Bjarni Steinsson skrifar Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Um borgarlínur í Skandinavíu Þórarinn Hjaltason skrifar Sjá meira
Skoðun Af hverju skiptum við stundum um tungumál þegar við þurfum þess ekki? Valerio Gargiulo skrifar
Skoðun Skugginn sem eltir: Þegar einelti fullorðinna fær að þrífast Ólafur Björn Guðmundsson skrifar
Skoðun „Sælla er að gefa en þiggja“ – Hvað getum við lagt til innan ESB? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar