Börn á krossurum á gangstéttum höfuðborgarsvæðisins Hjörvar Sigurðsson skrifar 15. júní 2026 08:02 Nýliðna helgi var ég gangandi út úr verslun Bónus þegar ég var næstum keyrður niður af svörtum krossara. Það munaði sentímetrum. Hann var á eflaust u.þ.b. 60 km/klst. Ökumaðurinn var unglingur og ekki í hefðbundnum hlífðarfatnaði. Ég horfði á eftir honum keyra niður gangstéttina þar sem hann prjónaði með vinum sínum. Þetta er ekki einsdæmi - undanfarna mánuði hef ég orðið var við vaxandi fjölda unglinga á svörtum krossurum á gangstéttum höfuðborgarsvæðisins. Það er iðulega hópur slíkra móturhjóla í hóp fyrir framan Smáralindina. Ég sé þá reglulega fyrir utan KFC nálægt heimili mínu. Og að sjálfsögðu fyrir utan Bónus. Mér þykir áhugavert hversu lítil umræða hefur verið um þessa þróun. Er lögreglan hætt að skipta sér af svona löguðu? Ég keyrði sjálfur um á krossara þegar ég var krakki og unglingur - aldrei hefði mér dottið í hug að keyra þá um gangstéttir bæjarins. Það var stutt vegalengd frá heimili mínu yfir á malarvegina burt frá bænum og maður óttaðist alltaf að vera gómaður þessa mínútu sem tók að keyra út úr bænum. Það var ekki að ástæðulausu enda skipti lögreglan sér af. Ég man vel eftir umræðunni þegar vespurnar urðu vinsæll faramáti meðal unglinga og þegar rafmagnshlaupahjólin tóku við af þeim. Er fólk bara búið að gefast upp? Er ekki nóg með það að á göngustígum þurfi maður að eiga von á því að rafmagnshjól þjóti frammúr manni á 40 km/klst eða 35 kg hlaupahjól ekið af fólki í misgóðu ástandi heldur eigum við nú að gefa eftir göngustígana níðþungum krossurum á 60-80 km/klst? Ég kalla vinsamlegast eftir umræðu um þetta og átaki meðal lögreglunnar. Ég kalla eftir því að foreldrar sem kaupi 60 kg rafmagnskrossara handa börnum án þess að tryggja að hjólið verði ekki notað innanbæjar séu tjargaðir og fiðraðir á torgi bæjarfélagsins á föstudagskvöldum. Ef ég á að enda í rafmögnuðum hjólastól, lamaður fyrir neðan háls, þá þætti mér vænt um að það sé vegna einhvers aðeins virðulegra en að vera keyrður niður af barnungum dreng á móturhjóli í þykjustuleik þess eðlis að hann sé einhver gengisstrákur í Chicago árið 2023. Náið stjórn á börnunum ykkar. Höfundur er tölvunarfræðingur og vill helst ekki verða klessa á gangstéttinni. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Umferðaröryggi Hjörvar Sigurðsson Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Nýliðna helgi var ég gangandi út úr verslun Bónus þegar ég var næstum keyrður niður af svörtum krossara. Það munaði sentímetrum. Hann var á eflaust u.þ.b. 60 km/klst. Ökumaðurinn var unglingur og ekki í hefðbundnum hlífðarfatnaði. Ég horfði á eftir honum keyra niður gangstéttina þar sem hann prjónaði með vinum sínum. Þetta er ekki einsdæmi - undanfarna mánuði hef ég orðið var við vaxandi fjölda unglinga á svörtum krossurum á gangstéttum höfuðborgarsvæðisins. Það er iðulega hópur slíkra móturhjóla í hóp fyrir framan Smáralindina. Ég sé þá reglulega fyrir utan KFC nálægt heimili mínu. Og að sjálfsögðu fyrir utan Bónus. Mér þykir áhugavert hversu lítil umræða hefur verið um þessa þróun. Er lögreglan hætt að skipta sér af svona löguðu? Ég keyrði sjálfur um á krossara þegar ég var krakki og unglingur - aldrei hefði mér dottið í hug að keyra þá um gangstéttir bæjarins. Það var stutt vegalengd frá heimili mínu yfir á malarvegina burt frá bænum og maður óttaðist alltaf að vera gómaður þessa mínútu sem tók að keyra út úr bænum. Það var ekki að ástæðulausu enda skipti lögreglan sér af. Ég man vel eftir umræðunni þegar vespurnar urðu vinsæll faramáti meðal unglinga og þegar rafmagnshlaupahjólin tóku við af þeim. Er fólk bara búið að gefast upp? Er ekki nóg með það að á göngustígum þurfi maður að eiga von á því að rafmagnshjól þjóti frammúr manni á 40 km/klst eða 35 kg hlaupahjól ekið af fólki í misgóðu ástandi heldur eigum við nú að gefa eftir göngustígana níðþungum krossurum á 60-80 km/klst? Ég kalla vinsamlegast eftir umræðu um þetta og átaki meðal lögreglunnar. Ég kalla eftir því að foreldrar sem kaupi 60 kg rafmagnskrossara handa börnum án þess að tryggja að hjólið verði ekki notað innanbæjar séu tjargaðir og fiðraðir á torgi bæjarfélagsins á föstudagskvöldum. Ef ég á að enda í rafmögnuðum hjólastól, lamaður fyrir neðan háls, þá þætti mér vænt um að það sé vegna einhvers aðeins virðulegra en að vera keyrður niður af barnungum dreng á móturhjóli í þykjustuleik þess eðlis að hann sé einhver gengisstrákur í Chicago árið 2023. Náið stjórn á börnunum ykkar. Höfundur er tölvunarfræðingur og vill helst ekki verða klessa á gangstéttinni.
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar