Akranes á að vera eftirsóknarverðasti bærinn: Fersk nálgun með Viðreisn Jón Guðni Guðmundsson skrifar 28. apríl 2026 08:43 Ég heiti Jón Guðni Guðmundsson og fluttist á Akranes fyrir um ári með fjölskyldunni minni, á afmælisdaginn minn 19. apríl. Það hefur verið afar ánægjulegt að aðlagast samfélaginu hér og sérstaklega vil ég hrósa skólakerfinu, sem Skagamenn mega sannarlega vera stoltir af. Við eigum þrjú börn; tvö ganga í Brekkubæjarskóla og hið yngsta er á leikskólanum Teigaseli. Lífið snýst, eins og hjá flestum, um fjölskyldu, vinnu og frístundir. Við völdum Akranes af vandvirkni eftir mikla rannsóknarvinnu á því hvar best væri að ala upp börn. Akranes hefur orð á sér fyrir að vera frábær staður fyrir fjölskyldur, með rólegu umhverfi og sterku skólastarfi sem byggir á fagþekkingu og faglegum vinnubrögðum. Þessu þarf að halda áfram að hlúa að og efla. Það sem hefur alltaf skipt mig mestu máli er að hlusta. Að hlusta á fólk, skilja ólíkar þarfir og finna lausnir sem virka í raunveruleikanum, ekki bara á pappír. Kannski er það ástæðan fyrir því að ég hef frá upphafi stutt Viðreisn. Þar sé ég skýra framtíðarsýn, jarðbundna nálgun og raunhæfar lausnir. Taka ákvarðanir og ganga í verkin. Eins og í öllum samfélögum eru tækifæri til umbóta. Með því að hlusta á íbúa og vinna markvisst úr ábendingum þeirra getum við byggt enn sterkara samfélag. Margir nefna skóla- og leikskólamál, þar sem mikið er vel gert en einnig má bæta, til dæmis með uppbyggingu ungbarnaleikskóla. Aðrir benda á mikilvægi fjölbreyttara atvinnulífs sem dregur fleiri að bænum. Fyrir mér snýst þátttaka í stjórnmálum ekki um háværar yfirlýsingar heldur gildi. Ég vil sjá samfélag þar sem ákvarðanir eru teknar af yfirvegun, með hag fjölskyldna, fyrirtækja og nærsamfélagsins í forgrunni. Ég tel að Viðreisn standi fyrir ábyrgð, framsækni og raunverulegar lausnir. Við í Viðreisn á Akranesi viljum ganga í verkin. Viðreisn á Akranesi setur börn og fjölskyldur í forgrunn og byggir allar ákvarðanir á ábyrgri fjármálastjórn, gagnsæi og gæðum í þjónustu bæjarins. Við komum með ferskan blæ í bæjarmálin með nýja nálgun á gömul vandamál. Við ætlum að framkvæma og við þorum að taka ákvarðanir. Markmiðið okkar er einfalt en krefjandi: Akranes á að vera eftirsóknarverðasta bæjarfélag stórhöfuðborgarsvæðisins til að búa í, ala upp börn, reka fyrirtæki og eldast með reisn. Við trúum því að bærinn geti gert miklu betur en hann gerir í dag og við ætlum að sanna það. Á liðnu kjörtímabili hafa skuldir á hvern íbúa hækkað og nær tvöfaldast. Á sama tíma hafa álögur á íbúa og fyrirtæki aukist verulega; fasteignaskattar á húsnæði hafa hækkað og er þessi þróun ósjálfbær. Við getum ekki haldið áfram að hækka álögur á heimilin og fyrirtækin í bænum án þess að sýna fram á bætta þjónustu á móti. Viðreisn ætlar að stöðva þessa þróun. Við ætlum að koma á ábyrgum fjármálum þar sem hver króna er nýtt af skynsemi. Við viljum ekki hækka álögur, við ætlum þess í stað að gera kerfið okkar skilvirkara. Margar hendur vinna stundum of fá verk í stjórnsýslunni. Við ætlum að greina ferla bæjarins kerfisbundið, eyða flöskuhálsum og nýta stafrænar lausnir til að stytta boðleiðir. Markmiðið er skýrt: Við ætlum að skila peningum íbúa út í þjónustuna. Það gerum við með því að færa fjármagn úr yfirbyggingu og beint inn í skólana okkar, velferðarkerfið og umhirðu bæjarins. Akranes á inni ótrúleg sóknarfæri. Hvort sem það er á Breiðinni, í miðbænum eða á Grundartanga, þá þurfum við bæjarfélag sem þjónustar atvinnulífið í stað þess að þvælast fyrir því. Við ætlum að bjóða hagstætt lóðaverð og stytta afgreiðslutíma leyfa svo nýsköpun og fjölbreytni fái að blómstra. Viðreisn á Akranesi er ferskt og nýtt framboð skipað fólki með ólíkan bakgrunn en sameiginlegan metnað. * Við ætlum að setja börnin í forgrunn allra ákvarðana. * Við ætlum að fara vel með fé íbúa og verja skattfé af ábyrgð. * Við ætlum að byggja upp kraftmikið og öflugt atvinnulíf. * Við ætlum að tryggja velferðarþjónustu sem grípur fólk strax. * Við ætlum að starfa af heiðarleika, gagnsæi og fagmennsku. Við ætlum að byggja sjálfbæran, mannúðlegan og framsækinn bæ fyrir framtíðina. Væri ekki gaman að setja X við C þann 16. maí? Höfundur er oddviti Viðreisnar á Akranesi. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun