Einn skæðasti glæpamaður Mexíkó gómaður í fráveituröri Samúel Karl Ólason skrifar 28. apríl 2026 16:58 Mexíkóar hafa gefið töluvert í þegar kemur að því að berjast gegn glæpasamtökum þar í landi en Donald Trump, Bandaríkjaforseti, hefur beitt Mexíkóa miklum þrýstingi. Skjáskot og AP Mexíkóskir sérsveitarmenn handtóku í gær einn af æðstu leiðtogum Jalisco New Generation Cartel-glæpasamtakanna. Þau eru talin einhver öflugustu glæpasamtök í heimi en, leiðtogi þeirra var felldur í áhlaupi hermanna og lögregluþjóna í febrúar.
Audias Flores, eða „El Jardinero“, var handtekinn í Nayarit í vesturhluta Mexíkó í gær, samkvæmt ráðamönnum þar. Hann þótti um tíma líklegur til að taka við stjórn JNGC (stundum CJNG) þegar Nemesio Oseguera eða „El Mencho“ var felldur í febrúar. Það var þó Juan Carlos Valencia González, sjúpsonur El Mencho og bandarískur ríkisborgari, sem hlaut hnossið, ef svo má segja. Sjá einnig: Bandarískur stjúpsonur El Mencho fékk krúnuna Samkvæmt frétt Reuters var Flores gómaður í El Mirador í Mexíkó. Hermenn sátu þar um bústað en glæpaleiðtoginn var varinn af um sextíu þungvopnuðum mönnum á um þrjátíu pallbílum sem notaðir voru til að mynda varnargarð kringum bústaðinn. Á meðan á umsátrinu stóð stukku glæpamennirnir upp í bílana og keyrðu í mismunandi áttir, til að reyna að villa um fyrir sérsveitarmönnunum. Flores fannst þó skammt frá þar sem hann reyndi að fela sig í röri í fráveituskurði. Sjóher Mexíkó, sem stýrði aðgerðunum, segir að engu skoti hafi verið hleypt af. Aðgerðin í gær er sögð byggja á um nítján mánaða eftirliti með meðlimum JNGC og að henni komu rúmlega fimm hundruð hermenn, sex þyrlur og nokkrar flugvélar. Myndefni af handtökunni, sem tekið var úr þyrlu á svæðinu, hefur verið í dreifingu á samfélagsmiðlum. https://t.co/vFnD3unieL pic.twitter.com/q8Gj4zxLVH— Omar H Garcia Harfuch (@OHarfuch) April 27, 2026 El Mencho hafði nýtt sér það tómarúm sem myndaðist vegna blóðugrar baráttu innan Sinaloa-samtakanna víðfrægu. Bræðurnir Iván Archivaldo og Ovidio Guzmán leiða eina fylkingu innan Sinaloa-samtakanna og hafa þeir barist gegn fylgimönnum Ismael Zambada eða „El Mayo“, sem leiddir eru af Mayito Flaco, syni „El Mayo“. Fylkingar þessar kallast „Los Chapitos“ og „Los Mayos“. Átökin þeirra á milli eru talin hafa grafið töluvert undan Sinaloa-samtökunum sem voru fyrir einungis nokkrum árum stærstu glæpasamtök Mexíkó og eiga í umfangsmiklu smygli á fentanýli til Bandaríkjanna. JNGC eru nú talin stærstu glæpasamtökin í Mexíkó. Trump hótar árásum Í samtali við Reuters segir Carlos Oivio, fyrrverandi starfsmaður fíkniefnaeftirlits Bandaríkjanna (DEA) að handtaka Flores gæti í raun haft meiri áhrif á starfsemi JNGC en dauði El Mencho. Hann segir Flores mjög háttsettan hjá samtökunum og hann hafi stýrt framleiðslu fíkniefna eins og fentanýls í Mexíkó, smyglleiðum til Bandaríkjanna og sölu fíkniefna þar í landi. Um er að ræða gífurlega mikilvægar tekjuleiðir fyrir glæpasamtökin. Yfirvöld í Mexíkó hafa gefið töluvert í þegar kemur að því að sporna gegn starfsemi glæpasamtaka þar í landi. Það hefur að miklu leyti verið gert vegna þrýstings frá ríkisstjórn Donalds Trump í Bandaríkjunum. Forsetinn hefur ítrekað krafist þess að fá að senda hermenn gegn samtökunum í Mexíkó en það hafa yfirvöld þar ekki tekið í mál. Trump hefur einnig gefið til kynna að hann gæti gripið til aðgerða án samþykkis yfirvalda í Mexíkó, þyki honum ljóst að þar sé ekki verið að gera nóg til að sporna gegn smygli fíkniefna til Bandaríkjanna. Flores hefur verið ákærður í Bandaríkjunum fyrir fíkniefnasmygl og aðra glæpi.
Mexíkó Erlend sakamál Bandaríkin Donald Trump Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Tímamót hjá Kvennaathvarfinu Innlent Skuld fyrri eiganda stöðvi ekki skoðun bíls Innlent Fleiri fréttir Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Setja körlum aldurstakmark í frjósemismeðferð Sjá meira