Ég er líka að taka fullan þátt í samfélaginu! Alina Vilhjálmsdóttir skrifar 28. apríl 2026 20:30 Ég er orðin þreytt. Ekki á því að vera heimavinnandi með dóttur mína, leika við hana, setja í vélina, taka til, elda og fleira, heldur vegna þessara endalausu útúrsnúninga. Það eru margar konur búnar að stíga fram með skrifum sínum og segjast tala fyrir hagsmunum kvenna – fyrir framtíðinni – á meðan þær tala niður uppeldi, barneignir og konur. Bara það að einhver, þar á meðal ég, skoði nútímasamfélag með gagnrýnandi augum, endurskoði fyrri ákvarðanir sínar og ákvarðanir sem samfélagið þröngvaði á það, þýðir ekki að það vilji fara aftur um 100 ár: í átt að tímum þar sem frelsi kvenna var dregið í efa, þegar konur máttu ekki kjósa, þegar konur áttu bara að vera heima, þegar konur áttu engar skoðanir eða rödd í samfélaginu. Það er svo margt í því hvernig okkar samfélag er uppbyggt sem við völdum ekki eða enginn kaus á beinan hátt, sem var valið fyrir okkur af forfeðrum og formæðrum okkar. Litlir en áhrifamiklir hlutir eins og það að fólk sé hætt að koma í heimsókn, að það þurfi að vera 2 á heimilinu sem eru að vinna til að halda því uppi, aukinn einmanaleiki og þunglyndi, áreiti, skilnaðir, lág fæðingartíðni og fleira. Barnasvæðum fer minnkandi, því að börnum fer fækkandi og kvenfélögum fer líka fækkandi. Ég held að margir (og þar á meðal ég) upplifi ákveðið valdaleysi, eins og lítið af því sem maður gerir eða segir hafi áhrif á umhverfi manns. Eins og sú staða sem er í dag sé ekki sú framtíð sem maður hefði kosið sjálfum sér og fjölskyldunni sinni. Hví telja þá svo margir að það sé rangt að horfa til baka, á þá þætti sem virkuðu vel eða breytingar sem voru gerðar sem maður er ekki sammála? Hví lætur fólk eins og það aðeins í boði að vera með rörsýn beint áfram, annars vilji maður bókstaflega fara aftur í tímann? Allt eða ekkert! Eigum við ekki, sem mannkyn, að læra af mistökum okkar? Því stundum sér maður í baksýnisspeglinum að maður hefur tekið ranga stefnu eða ákvörðun og maður tekur það til baka eða stígur nokkur skref til baka eins og oft er sagt. Ég held að það sé ekki gott að líta aldrei til baka heldur bara áfram. Þess vegna, þegar ég segi að ég vilji breytingar og stíga nokkur skref til baka, er ég (og held ég að flestir sem eru sammála skoðun minni) ekki að segja að ég vilji bókstaflega fara til baka heldur vil læra af mistökum okkar sem mannkyn, hvaða breytingar voru góðar, hvaða breytingar voru slæmar, hvað fór kannski fram hjá okkur og laga það. Því ekki er öll þróun alltaf til góðs, en enginn vill taka þau réttindi sem konur hafa unnið til baka. Femínistar tala oft um val, val kvenna til að vinna eða vera heima, en síðan í sömu setningu tala þeir gegn sjálfum sér og fara að tala um atvinnuþátttöku, laun og annað sem tengist atvinnulífinu. Ef kona velur að vera lengur heima eftir fæðingu þá er hún að skaða tölfræðina. Ef kona velur að vinna á kvöldin, svo að hún geti verið meira með börnunum og fengið ókeypis leikskólapláss, þá er það vandamál því hún ætti ekki að þurfa að gera það og veit greinilega ekkert hvað hún er að gera. Það er svo mikil mótsögn því að þið viljið hífa upp konur – en bara þegar kemur að atvinnulífinu. Ég held að setning Þorgerðar Katrínar rammi þetta svo vel inn: “Að sama skapi þótti mér gott, og í raun nauðsynlegt, að komast aftur út á vinnumarkaðinn, taka fullan þátt í samfélaginu að nýju samhliða því sem ég sinnti fjölskyldunni. ” Ég er ekki að vinna, ég er BARA að hugsa um heimilið og barnið. En ég er líka fullur þátttakandi í samfélaginu! Ég hef líka virði, ég tek þátt með því að skapa líf, skapa heilbrigða og örugga einstaklinga. Virði kvenna er ekki bundið við þátttöku á vinnumarkaði. Það er líka vinna að sinna fjölskyldunni. Það er kannski ekki nóg og nauðsynlegt fyrir alla – en það er nauðsynlegt fyrir mig. Innlegg formanni BSRB, Sonju á Facebook er líka gott dæmi um þetta. Hún segir „Mér skilst að umræðuefni dagsins séu konur sem séu svo óhamingjusamar þrátt fyrir meint jafnrétti..“ en í framhaldi af því nefnir hún 8 punkta um kynbundið ofbeldi (sem er alvöru vandamál og ég dreg það ekkert í efa) og 12 punkta um atvinnu og þreytu. Þetta er mikil mótsögn og lítið valfrelsi, Þorgerður. Það er mótsögn að segja að það sé valfrelsi – en ekki ef þig langar að vera heima og fá heimgreiðslur. Það er valfrelsi – en ekki ef þig langar ekki að senda krakkann þinn á leikskóla. Það er valfrelsi – en ekki ef þú vilt taka allt fæðingarorlofið sjálf. Það eru konur í þessu samfélagi sem vilja ekki vinna, sem vilja setja fjölskylduna í fyrsta sæti og það er sorglegt að mörgum konum finnist ÞAÐ vera sorglegt og mikið áhyggjuefni. Því hvernig er atvinnuþátttaka og kynjamunur að setja börnin, geðheilsu og framtíðina í fyrsta sæti? Ég er orðin þreytt á því að sumar konur segi öðrum konum hvernig þær eiga að lifa, hvað þær eiga að velja, hvað er nauðsynlegt. Það er frábært að konur geti kosið, að þær geti menntað sig og unnið, að þær fái fæðingarorlof. En þær þurfa ekki að vinna til að taka fullan þátt í samfélaginu! Ég er ekki að vernda þingmann sjálfstæðisflokksinns og ætla mér ekki að kjósa þá, en það er ekkert að því að spyrja hvort við séum dottin of djúpt ofan í holu einstaklingshyggjunnar: þar sem það eina sem skiptir máli er hamstrahjólið, peningar, status, utanlandaferðir, samfélagsmiðlar og að fara í ræktina… en ekki fjölskyldan, samfélagið og barneignir. Það á ekki bara við um konur, það á við um alla og allt samfélagið. Höfundur er ekki í neinum flokki heldur heimavinnandi 32 ára móðir. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun