„Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Sólrún Dögg Jósefsdóttir skrifar 1. maí 2026 09:00 „Biðlistinn – Kjósum eitthvað annað, Biðlistinn – Allt í röð og óreglu, Biðlistinn – Velkomin í röðina,“ eru meðal slagorða nýja „framboðsins“. Aðsend Vegfarendur um Austurstræti hafa í morgun orðið varir við það sem virðist kosningamiðstöð framboðs að nafni Biðlistinn. Sú er þó ekki raunin þar sem um herferð á vegum Öryrkjabandalags Íslands er að ræða. „
Engin eftirspurn er eftir nýju framboði, Biðlistanum, sem tilkynnt hefur verið um undir slagorðinu „Kjósum eitthvað annað.“,“ segir í fréttatilkynningu frá ÖBÍ. Þá segir að Biðlistinn sé hluti vitundarvakningar ÖBÍ sem sett er fram til að vekja athygli á stöðu fatlaðs fólks í samfélaginu, skyldum sveitarfélaga til að tryggja réttindi þess fjölmenna hóps, bæði lögbundnum og sjálfsögðum, og á löngum biðlistum sem blasa við þúsundum Íslendinga. Metnaðarfull átök Öryrkjabandalagsins hafa undanfarin ár vakið athygli. Í október kom bandalagið fyrir svokallaðri fátæktargildru fyrir utan Alþingishúsið til þess að vekja athygli á alþjóðlegum baráttudegi gegn fátækt. Þá eru nokkur ár síðan félagið stóð fyrir gjörningi sem það kallaði „blankarán“ fyrir utan höfuðstöðvar stóru viðskiptabankanna þriggja. Markmið þess átaks var að vekja athygli á bágum kjörum fatlaðs fólks, skorti á húsnæðisöryggi og skertu aðgengi þess að heilbrigðisþjónustu. „Áralöng bið eftir lögbundinni þjónustu er ekki náttúrulögmál og við hjá ÖBÍ hvetjum frambjóðendur og kjósendur til að standa saman að því að vinda ofan af biðlistum. Stöndum vörð um réttindi fatlaðs fólks í sveitarstjórnarkosningunum. 80% landsmanna ætla að kjósa framboð sem vilja bæta þjónustu við fatlað fólk, samkvæmt könnun sem Gallup vann fyrir ÖBÍ í vor. Það er nefnilega engin eftirspurn eftir Biðlistanum, hvorki í kosningunum né í raunveruleikanum,“ er haft eftir Ölmu Ýr Ingólfsdóttur formanni ÖBÍ í fréttatilkynningu um Biðlistann.
Félagsmál Málefni fatlaðs fólks Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Fleiri fréttir Sé óásættanlegt að vændiskaupendur hafi sloppið með sekt „Hann hótaði að drepa okkur“ Hinn látni hafi átt óvini vegna fíkniefnaviðskipta Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Sjá meira