Fótbolti

„Inga­son sýningin“ í öruggum sigri Brann

Ágúst Orri Arnarson skrifar
Kristall Máni Ingason er sjóðheitur um þessar mundir.
Kristall Máni Ingason er sjóðheitur um þessar mundir.

Kristall Máni Ingason skoraði og lagði upp mark í 3-1 sigri Brann gegn Fredrikstad.

Brann hefur nú unnið tvo leiki í röð með Kristal Mána fremstan í flokki en hann skoraði þrennu í síðasta leik og fylgdi þeirri frábæru frammistöðu vel eftir. Fram að því hafði Brann gengið illa í upphafi tímabils en liðið er nú komið upp í 5. sæti norsku deildarinnar.

Í textalýsingu Verdens Gang er leiknum lýst sem „Ingason sýningunni“ en Kristall Máni átti frábæran leik gegn Fredrikstad í dag og byrjaði strax með látum.

Hann skoraði á 6. mínútu leiksins og lagði síðan upp mark fyrir Joachim Soltvedt um miðjan seinni hálfleik. Kristall var nálægt því að skora sjálfur annað mark í upphafi seinni hálfleiks en skaut yfir af stuttu færi.

Bard Finne skoraði svo þriðja markið í uppbótartíma, rétt áður en Fredrikstad lagaði stöðuna með sárabótarmarki.

Brann hefur nú unnið þrjá af síðustu fjórum leikjum í deild og bikar. Næsta verkefni verður hins vegar mjög erfitt, á útivelli gegn Bodö/Glimt í bikarkeppninni. Spennandi verður að sjá hvort Kristall haldi áfram að draga vagninn fyrir Brann.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×