Geðheilbrigðisvandi, taktu númer…. Elín Anna Baldursdóttir skrifar 4. maí 2026 06:46 Þegar barn slasast eða veikist fær það yfirleitt viðeigandi þjónustu. En hvað grípur barn sem glímir við kvíða, depurð eða hegðunarvanda? Svarið er: biðlisti eða ekkert. Ég hef starfað sem sálfræðingur í áratug og þekki ekkert annað en biðlista, hvort sem það er vegna sálfræðimeðferðar eða greininga. En þetta þarf ekki að vera svona. Fyrsta skrefið til að draga úr vandanum er að auka forvarnir og aðgengi að lágþröskuldaúrræðum. Þetta fallega íslenska orð lágþröskuldaúrræði þýðir einfaldlega það að börn geti fengið hjálp fljótt og auðveldlega, án langs biðtíma eða flókinna ferla. Geðheilbrigðisvandi er eitt algengasta heilbrigðisvandamál barna og unglinga og um helmingur allra geðraskana koma fram fyrir 18 ára aldur. En vandinn er ekki sjáanlegur miðað við algengi. Ekki eru til beinar rannsóknir eða upplýsingar um stöðu geðheilbrigði barna og unglinga í Hafnarfirði. En þegar tekin eru saman ýmis gögn eru merki um vandann nokkuð augljós. Aðeins 63% stelpna í 10. bekk telja sig hafa góða andlega heilsu, samanborið við 82% á höfuðborgarsvæðinu og 25% segjast hafa skaðað sig viljandi á síðasta ári. Þunglyndislyfjanotkun barna er hærri en annarsstaðar á höfuðborgarsvæðinu. Heilsugæsluheimsóknir vegna geð- og atferlisraskana eru fleiri í Hafnarfirði en annars staðar á höfuðborgarsvæðinu Biðlistar hjá sálfræðingum við skóla- og heilsugæslu í greiningu og meðferð barna skipta mánuði og jafnvel ár. Ríkisendurskoðun hefur bent á að meirihluti barna og unglinga á Íslandi sem þurfa sérhæfða geðheilbrigðisþjónustu fá hana ekki. Geðheilbrigðisvandi hefur áhrif á nám, vináttu og framtíð barna. Börn með góða andlega heilsu eru líklegri til að ljúka framhaldsnámi og verða virkir þátttakendur í samfélaginu. Að veita barni viðeigandi þjónustu snemma dregur úr kostnaði vegna dýrari meðferðar og inngripa síðar. Góðu fréttirnar eru þær að lausnin er til staðar Sálfræðimeðferð er samkvæmt klínískum leiðbeiningum fyrsta meðferð við flestum geðrænum vanda barna og hún virkar. Meira en helmingur barna sem fær meðferð nær bata. Rannsóknir hafa sýnt árangur af því þegar börn fá hjálp snemma, líkurnar á bata eru mun meiri og það kemur í veg fyrir alvarlegri vanda síðar. Það sem er enn betra er að flestir foreldrar myndu velja sálfræðimeðferð sem fyrstu meðferð stæði það til boða. Einnig virðast ungmennin sjálf kalla eftir þessu þar sem Ungmennaráð Hafnarfjarðar hefur óskað eftir aukinni fræðslu um geðheilbrigði í skólum. Bjóðum börnum og fjölskyldum þeirra upp á lausnir Börn sem fá hjálp snemma fá möguleika á betra lífi. Það er hagkvæmara fyrir okkur að grípa börnin fyrr, það skilar heilsteyptari einstaklingum auk þess að draga úr kostnaði og álagi á mennta- og félagslegakerfið. Samfylkingin í Hafnarfirði ætlar að auka aðgengi að lágþröskuldaúrræðum og forvörnum. Það er mikilvægt að tryggja að öll börn fái þjónustu óháð efnahag og félagslegri stöðu. Við viljum fleiri sálfræðinga í skóla, aukið aðgengi í lágþröskuldaúrræði, meiri áherslu á forvarnir og að við hættum að láta börnin bíða. Setjum börn og unglinga í forgang í kosningunum þann 16.maí í Hafnarfirði og kjósum Samfylkinguna. Höfundur er sálfræðingur og frambjóðandi Samfylkingarinnar í Hafnarfirði Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Börn og uppeldi Geðheilbrigði Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun