Barcelona getur tryggt sér titilinn gegn Real Madrid Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 4. maí 2026 12:01 Lamine Yamal og Kylian Mbappé í fyrri deildarleik Barcelona og Real Madrid á þessu tímabili. Madrídingar unnu hann, 2-1. getty/David Ramos Í 97 ára sögu spænsku úrvalsdeildarinnar hefur titilinn aldrei unnist í leikjum Barcelona og Real Madrid, El Clasico, en það gæti breyst um næstu helgi.
Barcelona vann 1-2 útisigur á Osasuna á laugardaginn. Þar með var ljóst að liðið yrði meistari ef Real Madrid misstigi sig gegn Espanyol í gær. Það gerðist ekki því Real Madrid vann 0-2 sigur með tveimur mörkum frá Vinícius Júnior. Barcelona er með ellefu stiga forskot á Real Madrid en liðin mætast á Nývangi næsta sunnudag. Ef Börsungar ná í stig í leiknum tryggja þeir sér titilinn gegn erkifjendum sínum, eitthvað sem stuðningsmönnum þeirra myndi eflaust ekki leiðast. Ef Barcelona nær í stig gegn Real Madrid um næstu helgi verður liðið Spánarmeistari annað árið í röð og 29. sinn alls. Barcelona er með 88 stig og fjórir leikir eru eftir. Börsungar geta því alls fengið hundrað stig. Aðeins tvö lið hafa afrekað það: Real Madrid 2011-12 og Barcelona 2012-13. Svo lengi sem Barcelona kastar Spánarmeistaratitlinum ekki frá sér á ótrúlegan hátt stendur Real Madrid uppi titlalaust eftir tímabilið. Real Madrid vann fyrri deildarleikinn gegn Barcelona á þessu tímabili, 2-1. Kylian Mbappé og Jude Bellingham skoruðu mörk Madrídinga en Fermín López mark Börsunga.
Spænski boltinn FC Barcelona Real Madrid CF Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira