Hafi aldrei átt að taka á móti svona miklu rusli Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. maí 2026 06:52 Frá stöð Sorpu á Dalvegi. Vísir/Vilhelm Stöðvar Sorpu í Kópavogi og í Breiðholti áttu aldrei að taka á móti svo miklu rusli og voru hættar að ráða við verkefnið. Þess vegna taka stöðvarnar ekki lengur við stærra rusli, líkt og timbri og húsgögnum en samskiptastjóri Sorpu segir að þetta eigi að auka flæði á stöðvunum og bæta þjónustu. Íbúi í Kópavogi sem hafði samband við fréttastofu sá farir sínar ekki sléttar þegar hann ætlaði með timbur á grenndarstöð Sorpu við Dalveg. Þar var honum tjáð að stöðin tæki ekki lengur á móti timbri og var hann sendur á stöð Sorpu við Sævarhöfða. Baldur Guðmundsson blaðamaður lýsti sömu reynslu í skoðanagrein á Vísi, þegar laugardagsferð hans á Sorpu Dalvegi lauk í langri bílaröð við Sorpu á Sævarhöfða. „Rifjum upp markmið þessara breytinga, að „einfalda móttöku, stytta biðtíma og bæta nýtingu á svæðunum.“ Ég er ekki viss um að starfsfólkið sem vinnur á Sævarhöfða sé sammála því að markmiði Sorpu um að einfalda móttöku hafi verið náð,“ skrifar Baldur í grein sinni á Vísi. „Ég get sjálfur vottað um að þetta er ekki til þess fallið að stytta biðtíma og mér er til efs að nokkur geti með góðri samvisku kvittað undir það að þessi tilhögun sé til þess fallin að bæta nýtingu á svæðunum.“ Auki flæðið Breytingarnar tóku gildi í Jafnaseli og á Dalvegi þann 31. mars. Í tilkynningu frá Sorpu í mars sagði að verið væri að breyta og bæta. „Þann 31. mars munu endurvinnslustöðvar okkar á Dalvegi og í Jafnaseli fækka flokkum til að bæta flæði. Við munum taka við helstu flokkum frá heimilum en ekki lengur við framkvæmdarusli. Við bendum á endurvinnslustöðvarnar á Sævarhöfða og Breiðhellu.“ Gunnar Dofri Ólafsson samskiptastjóri Sorpu segist í samtali við Vísi hafa samúð með ósáttum. Staðan sé hinsvegar sú að stöðvarnar tvær hafi verið hættar að ráða við verkefnið. Þær hafi verið byggðar til að taka á móti átta ruslaflokkum árið 1991 en hafi verið farnar að taka á móti fjörutíu flokkum, með tilheyrandi álagi. Gunnar Dofri segir fólk nú fljótara í gegnum stöðvar Sorpu í Kópavogi og í Breiðholti. Vísir/Ívar „Nú höfum við farið með þær í þrjátíu, þá flokka sem tengjast helst heimilisrekstri en hitt er stórir þungir hlutir, líkt og timbur, múrbrot og ónýt húsgögn,“ segir Gunnar. Hann segir mikið álag hafa verið á stöðvunum áður. „Á Dalvegi var til að mynda oft löng bílaröð sem náði alveg út á hringtorg og skapaði þannig hættu. Við getum ekki staðið fyrir því.“ Hann segir að ákvörðunin hafi ekki bara vakið upp neikvæð viðbrögð, íbúar í Breiðholti hafi lýst yfir ánægju með aukinni skilvirkni. „Fólk finnur fyrir þessari breytingu, að núna eru þessar stöðvar þess eðlis að þú getur farið þar hraðar í gegn, ef þú ert með lítið rusl, ert að henda pappír eða plasti, fara með raftæki eða spilliefni þá ertu fljótari inn og út.“ Eftirfarandi flokkar verða teknir út við Dalveg og Jafnasel og þurfa íbúar á höfuðborgarsvæðinu að fara með þá flokka á stórar endurvinnslustöðvar: Málað timbur Ómálað timbur Hjólbarðar Flísar Hreinlætistæki Rúðugler Gifs Möl og sandur Heyrúlluplast Grófur úrgangur eins og ónýt húsgögn og rúmdýnur Stórir málmhlutir eins og ónýt reiðhjól og gasgrill Mesti álagspunkturinn núna Gunnar Dofri segist ekki óttast að fólk muni veigra sér við því að fara á Sorpu þegar það heyri tíðindi af breytingum á þjónustunni. Hann vonist frekar til þess að umfjöllunin verði til hins gagnstæða. „Svo er staðan sú að það hefur verið rosalega mikið álag á stöðvarnar okkar síðustu fjórar vikur, þá sérstaklega um helgar. Núna er samfélagið að vakna til lífsins og fólk farið að taka til í geymslunni, fara í garðinn og allt þetta,“ segir Gunnar Dofri. Því sé mesta álagið á stöðvunum á þessum tíma ársins en það muni róast aftur niður í sumar. „Ef þú vilt ekki bíða í röð þá er best að koma snemma á daginn og ef þú átt tök á, maður veit það er krefjandi fyrir fólk í vinnu, en ef þú átt tök á því þá er líka gott að koma á virkum dögum þegar það er minna að gera, en helgarnar núna í apríl og maí eru rosalega þungar.“ Sorpa Reykjavík Kópavogur Sorphirða Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Sjá meira
Eftirfarandi flokkar verða teknir út við Dalveg og Jafnasel og þurfa íbúar á höfuðborgarsvæðinu að fara með þá flokka á stórar endurvinnslustöðvar: Málað timbur Ómálað timbur Hjólbarðar Flísar Hreinlætistæki Rúðugler Gifs Möl og sandur Heyrúlluplast Grófur úrgangur eins og ónýt húsgögn og rúmdýnur Stórir málmhlutir eins og ónýt reiðhjól og gasgrill
Sorpa Reykjavík Kópavogur Sorphirða Mest lesið Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Innlent Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Innlent Drykkurinn komi úr flösku ráðherra Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Einbreiðar brýr við Berufjörð og Reyðarfjörð líklega næstar Innlent Jákvætt ef stjórnvöld séu loksins farin að horfast í augu við stöðuna Innlent „Það er brjálað að gera með stóru B-i“ Innlent Facebook og tengdir miðlar liggja niðri Innlent Tímafrek verkefni kennara, umferðaröryggi í Hvalfirði og stemningin á Spáni Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Fleiri fréttir Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sólmyrkvinn ógnar fjarskiptum og Mærudagar ganga í garð Úttekt landlæknis á Hraunbúðum: Fagmenntað starfsfólk langt undir lágmarksviðmiðum „Ef við fáum enga ferðamenn, verðum við að skjóta hundana“ Ekið á dreng á hjóli og aðrir fluttir á slysadeild eftir hjólaslys Á sjúkrahús eftir að hafa flogið af mótorhjólinu Eldur kviknaði á Fiskislóð Reið en þakklát fyrir lífsbjörgina Sjá meira