5. maí alþjóðadagur ljósmæðra Unnur Berglind Friðriksdóttir skrifar 5. maí 2026 07:51 Í ár er yfirskriftin: Heimurinn þarfnast milljón fleiri ljósmæðra. Þú eða einhver sem þú þekkir hefur þurft eða mun þurfa á ljósmóður að halda. Eins og staðan er í dag hafa því miður ekki allir aðgang að ljósmæðraþjónustu. Talið er að það skorti eina milljón ljósmæðra í heiminum. Að brúa þetta bil gæti komið í veg fyrir flest dauðsföll mæðra og nýbura, dregið úr óþarfa inngripum og tryggt að konur og kynsegin fólk fái örugga og einstaklingsmiðaða þjónustu. Traust er kjarni ljósmóðurstarfsins: traust sem byggist upp með samfelldri þjónustu, nánum tengslum og fagþekkingu. Á tveggja mínútna fresti deyr kona af fylgikvillum tengdum meðgöngu eða fæðingu. Á 17 sekúndna fresti deyr barn í móðurkviði og á hverju ári deyja 2,3 milljónir nýbura á fyrstu 28 dögum ævinnar. Mörg þessara dauðsfalla mætti koma í veg fyrir. Óþarfa keisaraskurðir eru að aukast á ógnvekjandi hraða án þess að skila betri heilsufarslegum árangri og í sumum tilvikum valda þeir bæði skammtíma- og langtíma fylgikvillum. Á sama tíma heldur ofbeldi gagnvart konum áfram á einum viðkvæmasta tíma lífs þeirra. Um allan heim hefur dregið úr réttindum einstaklinga til kynheilbrigðis. Konur fá ekki þá þjónustu sem þær þurfa og þeim gert erfitt að taka upplýstar ákvarðanir um eigin líkama og framtíð. En það er til lausn: fjölgum ljósmæðrum! Ljósmæður geta stutt við heilsu og þarfir kvenna og kynsegin fólks. Raunar geta ljósmæður veitt 90% af nauðsynlegri þjónustu á sviði kynheilbrigðis, mæðraverndar og heilsu nýbura. Fjölgun ljósmæðra getur dregið úr mæðra – og nýburadauða með því að veita sérhæfða, örugga þjónustu á meðgöngu og við fæðingu. Fjölgun ljósmæðra til að veita samfellda, persónulega og upplýsta þjónustu sem verndar heilsu kvenna. Fjölgun ljósmæðra getur komið í veg fyrir illa meðferð og vanrækslu í fæðingu með því að stuðla að virðingu og mannúð gagnvart konum, byggt á trausti og persónulegri umönnun. Fjölgun ljósmæðra getur eflt kynheilbrigði með því að tryggja aðgengi að getnaðarvörnum, öruggri þjónustu vegna þungunarrofs og upplýstu vali. Setjum þetta í tölur: Ein milljón ljósmæðra til viðbótar gæti komið í veg fyrir 67% mæðradauða, 64% nýburadauða og 65% andvana fæðinga og þannig bjargað 4,3 milljónum mannslífa fyrir árið 2035. Það er kominn tími til að heilsa kvenna verði sett í forgang. Við skorum á stjórnvöld og leiðtoga í alþjóðlegri heilbrigðisþjónustu að fjölga ljósmæðrum, styðja við þær og tryggja sjálfbærni ljósmæðrastéttarinnar um heim allan því að fjárfesting í ljósmæðrum er fjárfesting í heilsu kvenna. Til að gera þetta að veruleika hvetjum við stjórnvöld, sameiginlega, til að: Fjárfesta í ljósmæðrum og viðurkenna þær sem lykilstétt í heilbrigðisþjónustu og innleiða stefnu sem gerir ljósmæðrum kleift að starfa að fullu innan síns starfssviðs og veita fjölskyldum örugga og virðingarríka þjónustu. Tryggja ljósmæðrum menntun, færni og úrræði sem þær þurfa til að veita hágæða þjónustu í valdeflandi starfsumhverfi. Fjárfesta í leiðtogahlutverki ljósmæðra þannig að þær hafi áhrif á ákvarðanir er varða starf þeirra. Skrifaðu undir áskorunina og hjálpaðu okkur að safna einni milljón undirskrifta til að krefjast einnar milljónar ljósmæðra til viðbótar og þeirrar fjárfestingar sem þarf til að láta það verða að veruleika. Ljósmæður sameiginlega um heim allan stefna að því að safna einni milljón undirskrifta, einni fyrir hverja þá ljósmóður sem heimurinn þarfnast. Skrifa undir hér : https://millionmore.org/petition/ Höfundur er formaður Ljósmæðrafélags Íslands. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Mest lesið Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson Skoðun Halldór 26.09.2026 Halldór Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir Skoðun Skoðun Skoðun Er gervigreindin spegill mannkyns Kristján Logason skrifar Skoðun Er Þórarinn Tyrfings nýja framtíð Vogs? Bergþóra Haralds Eiðsdóttir skrifar Skoðun Tólf ára ákvað ég að gera bíó Arnar Benjamín Kristjánsson skrifar Skoðun Hvað segja gögnin í raun um ásakanir á hendur séra Friðriki Theódór S. Halldórsson skrifar Skoðun Það er sárt að tapa kosningum Heimir Már Pétursson skrifar Skoðun Er enn þess virði að leggja á sig langt háskólanám? Gunnar Alexander Ólafsson skrifar Skoðun Engin fjölskylda á að þurfa að standa ein Eydís Ásbjörnsdóttir skrifar Skoðun Þegar reglurnar gilda ekki jafnt Ágúst Karlsson skrifar Skoðun Utanríkisstefna án ábyrgðar? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar Skoðun PISA-skellur en hvað svo? Inga Sæland skrifar Skoðun Hver verndar velferð barna þegar náttúran blandar kynjunum? Jón Þór Ólafsson skrifar Skoðun Einhliða bergmálshellir og heimildir sem hrynja Lilja Benatov Hjartar skrifar Skoðun KEMUR TÓLFAN? Hilmar Jökull Stefánsson skrifar Skoðun Ábyrgðinni má ekki útvista til tækninnar Karen Ósk Nielsen Björnsdóttir skrifar Skoðun Gervigreindin kaupir ekki það sem hún skilur ekki Jens Gunnarsson skrifar Skoðun Fólkið á bak við öruggt flug Elísabet Heiða Valdemarsdóttir skrifar Skoðun Fjöldi opinberra starfsmanna - deilt um keisarans skegg Ingvar Freyr Ingvarsson skrifar Skoðun Stafrænt heilbrigðiskerfið byggt á skilvirkni Hilmar Ingimundarson skrifar Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar Skoðun Reykjalundur endurhæfir – Endurhæfum Reykjalund Svana Helen Björnsdóttir skrifar Skoðun Að ganga út eða ganga inn Indriði Þröstur Gunnlaugsson skrifar Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar Skoðun Aðgerðaáætlunin er til, en hvar stöndum við? Sigurlín Margrét Sigurðardóttir skrifar Skoðun Af indíánum og kúrekum Guðrún Jónsdóttir skrifar Skoðun Icelandair: Hver á flugfélagið og hver vill kaupa það? Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Áskorun til heilbrigðisráðherra Ásgrímur Grétar Jörundsson skrifar Skoðun Samræðusiðfræði og sálgæsla Ása Lind Finnbogadóttir skrifar Skoðun Þegar landsframleiðsla dugar ekki Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fáfræði, fordómar og fimm flokkar Hjálmtýs Lilja Benatov Hjartar skrifar Sjá meira
Skoðun Heiður hússins: Um kynferðisofbeldi í nánum samböndum Hrafnhildur Kjerúlf Sigmarsdóttir skrifar
Skoðun Hvað þarf barn í grunnskóla að kunna til að fá 10 í grunnskóla? Þorsteinn Mar Gunnlaugsson skrifar
Skoðun Gulur september: Helst góð geðheilsa í hendur við góða stjórnun? Katrín Þrastardóttir skrifar