Lækkun gjalda: skref í rétta átt, en enn langt í land Valborg Ösp Árnadóttir Warén skrifar 5. maí 2026 10:32 Gjaldskrár hjá Fjarðabyggð hafa nú verið lækkaðar um 3% frá og með 1. maí. Það er skref í rétta átt og skiptir máli að sveitarfélagið bregðist við aðstæðum og leiti leiða til að létta undir með íbúum. Á sama tíma er erfitt að horfa fram hjá því að slík skref verða sérstaklega áberandi þegar stutt er í kosningar. Lækkunin nær til nokkurra gjaldaflokka og takmarkast því ekki við einn þjónustuflokk. Vonandi munu sem flestir íbúar finna raunverulega fyrir lækkuninni. Það sem má þó ekki gleymast í þessari umræðu er samhengi síðasta árs. Í byrjun árs 2025 voru leikskólagjöld fyrir átta stunda vistun hækkuð verulega eða um tæp 40%. Sú ákvörðun kom aðeins örfáum mánuðum eftir að sveitarfélög, þar á meðal Fjarðabyggð, höfðu undirgengist skuldbindingar í tengslum við kjarasamninga um að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf, sérstaklega gagnvart barnafólki. Þegar horft er til þessarar þróunar verður boðuð 3% lækkun á leikskólagjöldum að teljast fremur lítið skref til baka. Hún vegur engan veginn upp á móti þeim miklu hækkunum sem barnafjölskyldur urðu fyrir á síðasta ári. Staðreyndin er einföld: þetta er ekki leiðrétting, þetta er táknræn aðgerð. Ef ætlunin er að standa með barnafólki þarf að gera það af alvöru, með skýrum og afgerandi breytingum sem fólk finnur raunverulega fyrir. Við í Samfylkingunni og annað félagshyggjufólk í Fjarðabyggð viljum gjaldskrá sem er sanngjörn, fyrirsjáanleg og raunverulega léttir undir með barnafjölskyldum, ekki táknrænar lækkanir. Ef íbúar eiga raunverulega að finna mun á gjaldskránni, þá þurfa skrefin að vera stærri. Höfundur skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson Skoðun Skoðun Skoðun Krónuhagkerfið og kostnaður heimilanna Sigurður Kristinn Pálsson skrifar Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Sjá meira
Gjaldskrár hjá Fjarðabyggð hafa nú verið lækkaðar um 3% frá og með 1. maí. Það er skref í rétta átt og skiptir máli að sveitarfélagið bregðist við aðstæðum og leiti leiða til að létta undir með íbúum. Á sama tíma er erfitt að horfa fram hjá því að slík skref verða sérstaklega áberandi þegar stutt er í kosningar. Lækkunin nær til nokkurra gjaldaflokka og takmarkast því ekki við einn þjónustuflokk. Vonandi munu sem flestir íbúar finna raunverulega fyrir lækkuninni. Það sem má þó ekki gleymast í þessari umræðu er samhengi síðasta árs. Í byrjun árs 2025 voru leikskólagjöld fyrir átta stunda vistun hækkuð verulega eða um tæp 40%. Sú ákvörðun kom aðeins örfáum mánuðum eftir að sveitarfélög, þar á meðal Fjarðabyggð, höfðu undirgengist skuldbindingar í tengslum við kjarasamninga um að stilla gjaldskrárhækkunum í hóf, sérstaklega gagnvart barnafólki. Þegar horft er til þessarar þróunar verður boðuð 3% lækkun á leikskólagjöldum að teljast fremur lítið skref til baka. Hún vegur engan veginn upp á móti þeim miklu hækkunum sem barnafjölskyldur urðu fyrir á síðasta ári. Staðreyndin er einföld: þetta er ekki leiðrétting, þetta er táknræn aðgerð. Ef ætlunin er að standa með barnafólki þarf að gera það af alvöru, með skýrum og afgerandi breytingum sem fólk finnur raunverulega fyrir. Við í Samfylkingunni og annað félagshyggjufólk í Fjarðabyggð viljum gjaldskrá sem er sanngjörn, fyrirsjáanleg og raunverulega léttir undir með barnafjölskyldum, ekki táknrænar lækkanir. Ef íbúar eiga raunverulega að finna mun á gjaldskránni, þá þurfa skrefin að vera stærri. Höfundur skipar 3. sæti á lista Samfylkingarinnar og annars félagshyggjufólks í Fjarðabyggð.
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun