Gleymum ekki hestamönnum og skátum Þorsteinn Hjartarson skrifar 5. maí 2026 12:00 Hveragerði hefur byggt upp sterkt samfélag á grunni útivistar og tengingar við náttúruna. Þar hafa hestamenn og skátar gegnt lykilhlutverki – ekki aðeins fyrir eigin starfsemi heldur fyrir bæinn í heild. Þetta eru hópar sem skapa líf, tengja kynslóðir saman og efla lýðheilsu. En erum við að standa okkur í að styðja við þetta starf? Eftir að hafa lesið skrif Kristjönu Sveinsdóttur, félagsforingja í Stróki, hlýtt á erindi Heiðrúnar Halldórsdóttur, formanns reiðhallarnefndar, og rætt við hestamenn í Dalnum er ljóst að bæjaryfirvöld í Hveragerði þurfa að gera betur. Hér er um að ræða félög sem standa fyrir öflugu barna- og æskulýðsstarfi þar sem kynslóðirnar koma saman. Þegar vilji og samvinna fara saman næst árangur Reynslan sýnir að þegar vilji og samvinna fara saman næst árangur. Uppbygging reiðvega í Hveragerði og Ölfusi upp úr aldamótum er skýrt dæmi um það. Þá tóku sveitarfélögin, ríkið, Vegagerðin, hestamannafélög og ferðaþjónustuaðilar höndum saman og byggðu upp öflugt net reiðleiða sem nýtist enn í dag. Þetta verkefni var ekki tilviljun – heldur markviss ákvörðun um að fjárfesta í innviðum fyrir útivist og náttúruupplifun. Í dag stöndum við frammi fyrir svipaðri áskorun. Þrýstingur á landrými eykst, umferð þyngist og þarfir samfélagsins breytast. Þá er hætta á að starfsemi sem krefst rýmis og skipulags – eins og hestamennska og skátastarf – verði undir. Það má ekki gerast. Varmá Skátar þurfa aðgang að landi, aðstöðu til útivistar og stuðning til að halda úti öflugu barna- og ungmennastarfi. Skátastarf snýst ekki aðeins um útivist heldur um uppeldi, leiðtogahæfni, samvinnu og ábyrgð. Þar læra börn og ungmenni að takast á við áskoranir, bera virðingu fyrir náttúrunni og vinna saman – færni sem nýtist þeim alla ævi. Hestamenn þurfa öruggar reiðleiðir, góða aðstöðu og skýra framtíðarsýn. Hestamennska er ekki síður uppeldis- og heilsueflandi starfsemi sem tengir fólk við náttúruna og styrkir bæði líkama og huga. Þetta eru ekki sérhagsmunir fárra – þetta eru hornsteinar í uppeldi, lýðheilsu og samfélagslegri velferð. Það er því skýr ábyrgð sveitarfélagsins að tryggja þessum félögum raunverulegt rými, aðstöðu og framtíð í skipulagi bæjarins. Við á S-listanum ætlum að tryggja að þessi starfsemi fái þann sess í skipulagi bæjarins sem hún á skilið. Það felur m.a. í sér að: vernda og þróa reiðleiðir og aðstöðu hestamanna tryggja skátum aðgang að landi og góða aðstöðu samræma skipulag þannig að útivist, íbúðabyggð og umferð fari saman líta á útivist og fjölbreytt félagsstarf sem fjárfestingu í lýðheilsu – ekki kostnað. Við höfum gert þetta áður. Nú þurfum við að sýna sama metnað aftur. Ef við ætlum að halda í sérstöðu Hveragerðis sem bæjar þar sem náttúra, útivist og öflugt félagsstarf fara saman, þá megum við ekki gleyma þeim sem hafa byggt það upp. Gleymum ekki hestamönnum og skátum. Höfundur skipar 2. sætið á lista Samfylkingarinnar í Hveragerði. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Skoðun: Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann Skoðun Skoðun Skoðun Litir, form og staðarandi Þórður Már Sigfússon skrifar Skoðun Brexit ekki orsök efnahagsáskorana Breta Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Jörðin er dómkirkjan okkar. Geimurinn er verkstæðið okkar. Árni Sigurðsson skrifar Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar Skoðun Hvenær hættir maður að vera útlendingur? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Viðvörunarljós um farsæld barna má ekki hunsa Steinunn Bergmann skrifar Skoðun Sjö algengar ranghugmyndir um hvali og hvalveiðar Eyþór Eðvarðsson skrifar Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Um líf og dauða, fullveldi og ESB Bjarni Már Magnússon skrifar Skoðun Ný greining: Hvað myndu húsnæðisvextir lækka með ESB og evru? Dagur B. Eggertsson skrifar Skoðun Hvað er í pakkanum? Hannes Lúðvíksson skrifar Skoðun Nýsköpunin sem hverfur inn í skýið Bogi Ragnarsson skrifar Skoðun Þegar kaffið rennur upp á við í Undralandi íslenskrar orðræðu Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Þeir seldu áhættuna sem tækifæri — og sendu þjóðinni reikninginn Baldur Pétursson skrifar Skoðun Traust á lögmönnum er ekki einkamál lögmanna Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Upplýsingar eru ekki ógn, þær eru forsenda Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Heimilislæknar og reglugerðardrög Alma D. Möller skrifar Skoðun Einstaklingurinn og fullveldið Signý Sigurðardóttir skrifar Skoðun Skilvirk núna en ekki ef við göngum í ESB Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Sterkari skólar fyrir öll börn Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Ég hef líka trú á Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun „Áður en við segjum já eða nei“ Hilmar Kristinsson skrifar Skoðun Þjóðarmorð? Finnur Th. Eiríksson skrifar Skoðun Breyttar áherslur í borgarskipulagi Þórarinn Hjaltason skrifar Skoðun Hernaðarbrölt Gestur Valgarðsson skrifar Skoðun Það sem við gefum áfram Sigurður Árni Reynisson skrifar Skoðun Ríkið má ekki skorast undan Þórarinn Ingi Pétursson skrifar Skoðun Gjaldtaka hins opinbera þarf að vera fyrirsjáanleg Stefán Vagn Stefánsson skrifar Skoðun Bandaríkin 250 ára: frelsi, stjórnarskrá og lærdómur fyrir Ísland Júlíus Valsson skrifar Skoðun Getum við gert enn betur? Já í ágúst Elvar Örn Arason skrifar Sjá meira
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun
Skoðun Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson skrifar
Skoðun Aðildarviðræður eru ekki upplýsingaleit heldur undirbúningur að aðild Gunnar Ármannsson skrifar
Stækkun bílaborgarinnar er ekki sjálfgefin - Ný byggð til norðurs kallar á öflugri almenningssamgöngur Stefán Agnar Finnsson Skoðun