Mælti sér mót við barn og réðst á það Árni Sæberg skrifar 5. maí 2026 16:03 Maðurinn réðst á drenginn í Hamraborg í Kópavogi. Vísir/Vilhelm Karlmaður á sextugsaldri hefur verið dæmdur til sextíu daga skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að ráðast á pilt í Hamraborg í Kópavogi í apríl árið 2023. Hann neitaði sök en gekkst við því að hafa mælt sér mót við piltinn til þess að ræða við hann vegna eineltis sem hann sagði piltinn leggja son sinn í.
Í dómi þess efnis, sem kveðinn var upp í lok apríl en birtur í dag, segir að maðurinn hafi verið ákærður fyrir líkamsárás og barnaverndarlagabrot með því að hafa veist með ofbeldi að piltinum með því að taka í úlpu hans og ýta honum niður á bekk og halda honum þannig að bak hans sveigðist aftur yfir bekkinn, tekið hann hálstaki og togað í bæði eyru hans með þeim afleiðingum að hann hlaut yfirborðsáverka á hálsi og baki. Þá hafi honum verið gefið að sök að hafa, á sama tíma, hótað piltinum líkamsmeiðingum og að hann gæti látið hann hverfa með því að henda honum út í hraun. Snöggreiddist við viðbragð piltsins Maðurinn hafi neitað sök en þó greint frá því að hann hefði gert sér sérstaka ferð í Hamraborg, þar sem hann vissi að pilturinn væri staddur, í þeim tilgangi að ræða við hann um fyrri samskipti hans og sonar síns. Hann hafi lýst því að viðbrögð piltsins við komu sína hafi orðið til þess að hann hafi snöggreiðst og misst stjórn á skapi sínu. Hann hafi tekið í úlpu brotaþola og ýtt honum niður á bekk og að bekknum, en hann muni ekki hvort bak brotaþola hafi sveigst yfir bekkinn, líkt og lýst er í ákæru. Þá hefur hann greint frá því að hafa tekið utan um höfuð piltsins í þeim tilgangi, að sögn, að ná augnsambandi við hann. Hann hafi sagst ekki hafa hótað piltinum, en hafi þó lýst því að hafa gert honum ljóst að „þessu yrði bara að linna“ og að ef „þetta“ héldi áfram þá ætti sonur hans eldri bróður. Nokkur vitni að árásinni Í dóminum segir að með vísan til framburðar piltsins og þriggja vitna og skýrslu læknis yrði lagt til grundvallar að maðurinn hefði veist að drengnum, tekið í hann og ýtt honum niður á bekk og haldið honum þannig að bak hans sveigðist aftur yfir bekkinn og tekið hann hálstaki með þeim afleiðingum sem að framan er lýst. Þá þyki sannað að maðurinn hafi hótað piltinum alvarlegum líkamsmeiðingum. Með hliðsjón af þessu verði maðurinn sakfelldur fyrir að hafa beitt piltinn líkamlegu ofbeldi og hótunum, auk þess sem með háttsemi sinni hafi hann sýnt piltinum yfirgang og ruddalegt athæfi auk ógnandi og vanvirðandi framkomu. Háttsemi hans hafi verið til þess fallin að vekja hjá piltinum ótta um líf sitt, heilbrigði og velferð. Refsing hans væri hæfilega metin sextíu daga fangelsi, skilorðsbundið til tveggja ára. Þá skyldi hann greiða allan málskostnað 830 þúsund og miskabætur til handa drengnum, 400 þúsund krónur.
Kópavogur Ofbeldi gegn börnum Dómsmál Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Segir af sér vegna lestarslysa Erlent „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Innlent Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk Innlent Fleiri fréttir Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Sjá meira