Íslendingar mótmæla við skála Rússa á Feneyjatvíæringnum Kjartan Kjartansson skrifar 6. maí 2026 11:44 Frá mótmælum Pussy Riot og FEMEN við rússneska skálann á Feneyjatvíæringnum í morgun. AP/Luca Bruno Félagar í íslensk-rússnesku gjörningasveitinni Pussy Riot tóku höndum saman við úkraínska femínista og mótmæltu við opnun rússneska skálans á Feneyjatvíæringnum í dag. Þátttaka Rússa í hátíðinni hefur verið afar umdeild.
Rússar taka þátt í listahátíðinni í Feneyjum í fyrsta skipti frá því að allsherjarinnrás þeirra í Úkraínu hófst árið 2022. Evrópusambandið dró til baka fjárstuðning sinn við hátíðinna vegna ákvörðunar stjórnenda hennar um að bjóða Rússum og dómnefnd sem átti að úthluta Gullljóninu, kvikmyndaverðlaunum hátíðarinnar, sagði af sér í mótmælaskyni. Mótmæli Pussy Riot og Femen, úkraínskrar femínistahreyfingar sem er aðallega þekkt fyrir berbrjósta mótmælendur, lokuðu í reynd fyrir aðgang að rússneska skálanum í um hálftíma í morgun, að sögn AP-fréttastofunnar. Mótmælendurnir hrópuðu meðal annars „list Rússlands er blóð“ og „óhlýðnist“ og sprengdu reyksprengjur með bleikum, bláum og gulum reyk. Mótmælendur héldu á stórum borða sem á stóð andfasíska slagorðið „No pasarán“ á spænsku, þeir munu ekki hafa betur í lauslegri þýðingu.AP/Luca Bruno Nadya Tolokonnikova, einn stofnenda Pussy Riot, segir við AP, segist hafa reynt að ná tali af skipuleggjendum hátíðarinnar án árangurs. Hún hafi þurft að villa á sér heimildir til þess að komast inn á sýninguna. Hún segir að aðeins list eftir rússneskt andófsfólk sem hafi verið fangelsað fyrir „fáránlegar sakir“ ætti að vera til sýnis. „Þau búa til lista og ég vil að sú list standi fyrir Rússland vegna þess að þau eru raunverulegt andlit Rússlands,“ segir Tolokonnikova sem fékk íslenskan ríkisborgararétt í fyrra. Áður höfðu þær Mariia Alekhina og Liudmila „Lucy“ Shtein, félagar Tolokonnikovu í Pussy Riot, fengið ríkisborgararétt hér á landi. Meðlimir Pussy Riot hafa verið handteknir og fangelsaðir fyrir list sína og andóf gegn ríkisstjórn Vladímírs Pútín í gegnum tíðina.
Ítalía Feneyjatvíæringurinn Rússland Úkraína Innrás Rússa í Úkraínu Andóf Pussy Riot Tengdar fréttir Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Evrópusambandið ætlar að hætta að styrkja ítölsku listahátíðina Feneyjartvíæringinn vegna ákvörðunar stjórnenda hennar að bjóða rússneskum listamönnum. Þetta verður í fyrsta skipti sem Rússar taka þátt eftir að innrás þeirra í Úkraínu hófst af fullum þunga árið 2026. 22. apríl 2026 07:45 Mest lesið Sé ekki „stóri maðurinn“ sem lagði á ráðin um „að sjálfsmorða hann“ Innlent Hættu við ADHD-greiningu vegna vímuefnaneyslu barnsins Innlent Kristrún skýtur fimmtíu milljarðana niður Innlent Hækka verð hádegismatar eldri borgara um sjötíu prósent Innlent Færsla vínbúðarinnar „galin“ en skemmdi ekki miðbæinn Innlent Stolinn bíll fannst úti í á Innlent Tek mark á því að þetta sé fallegasta hús Íslands Innlent „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Erlent Allt gert til að stöðva birtinguna Innlent Hafi aldrei farið í Reykholt Innlent Fleiri fréttir Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Hótar að gera Hormússundið að bandarísku yfirráðasvæði Tugir látnir eftir stóran jarðskjálfta Prófessor sakaður um ritstuld fannst látinn Önnur lestin af sporinu á innan við sólarhring Sjá meira
Hætta að styrkja Feneyjartvíæringinn vegna þátttöku Rússa Evrópusambandið ætlar að hætta að styrkja ítölsku listahátíðina Feneyjartvíæringinn vegna ákvörðunar stjórnenda hennar að bjóða rússneskum listamönnum. Þetta verður í fyrsta skipti sem Rússar taka þátt eftir að innrás þeirra í Úkraínu hófst af fullum þunga árið 2026. 22. apríl 2026 07:45