Heilbrigðara Ísland Victor Guðmundsson skrifar 8. maí 2026 07:30 Það hefur verið áhugavert að fylgjast með umræðunni um heilsu og líðan síðustu mánuði og ár. Álag, streita, kulnun og andleg vanlíðan eru orð sem heyrist sífellt oftar bæði innan vinnustaða, skólakerfisins og heilbrigðiskerfisins. Á sama tíma sjáum við aukna umræðu um veikindadaga, manneklu og álag á starfsfólk víða í samfélaginu. Nú þegar sveitarstjórnarkosningar eru framundan er líka eðlilegt að spyrja hvernig samfélag við viljum byggja upp til framtíðar og hvaða sess heilsa og líðan fólks á að hafa í þeirri framtíðarsýn. Þegar þessi umræða fer af stað leitum við oft lausna þegar vandamálið er orðið stórt. Þegar fólk er farið að sofa illa, missa orkuna, upplifa streitu eða jafnvel detta út af vinnumarkaði - en kannski þurfum við sem samfélag að færa fókusinn aðeins framar. Fjárfestum í fólkinu okkar Við vitum í dag að heilsa snýst ekki eingöngu um að meðhöndla sjúkdóma. Hún snýst líka um að skapa aðstæður þar sem fólk getur haldið heilsu. Svefn, hreyfing, næring og andleg líðan eru ekki aukaatriði heldur grunnstoðir samfélagsins okkar, starfsgetu og lífsgæða. Það er auðvelt að líta á forvarnir sem kostnað, sérstaklega þegar horft er til rekstrar hjá fyrirtækjum eða sveitarfélögum. Raunin er þó líklega sú að það er mun dýrara að bregðast alltaf við of seint. Þegar fólk nær ekki að hlaða batteríin, er undir langvarandi álagi eða fær ekki stuðning fyrr en vandinn er orðinn stór, hefur það áhrif langt út fyrir einstaklinginn sjálfan. Það hefur áhrif á fjölskyldur, vinnustaði, börn og samfélagið allt. Heilsa sem samfélagslegt verkefni Á síðustu árum virðist viðhorfið til heilsu starfsfólks vera að breytast hjá fleiri fyrirtækjum, sveitarfélögum og stofnunum. Í auknum mæli er heilsa farin að vera hluti af umræðunni um sterkan mannauð og heilbrigt samfélag - ekki eingöngu einkamál hvers einstaklings. Þessi hugsun ætti heldur ekki að vera pólitísk, heldur ætti hún að sameina okkur. Sama hvaða flokkar sitja við stjórnvölinn þá hlýtur eitt af mikilvægustu verkefnum framtíðarinnar að vera að skapa samfélag þar sem fólki líður betur, hefur meiri orku og getur lifað heilbrigðara lífi til lengri tíma. Bjartari framtíð Núna er sumarið framundan og margir nýta þennan tíma til að hreyfa sig meira, hugsa betur um heilsuna og endurhlaða sig eftir langan vetur. Kannski er þetta líka góður tími fyrir okkur sem samfélag til að endurhugsa hvernig við nálgumst heilsu almennt. Kannski liggur framtíðin ekki bara í fleiri úrræðum þegar fólk veikist, heldur líka í því hvernig við hjálpum fólki að halda heilsu áður en vandamálin verða stór. Sjálfur hef ég síðustu misseri fengið að taka þátt í spennandi heilsuverkefnum þar sem verið er að vinna með fyrirtækjum og sveitarfélögum, en þar má nefna Vestmannaeyjabæ og Hafnarfjarðarbæ sem hafa sýnt það í verki að heilsa starfsfólks skiptir öllu máli. Þar hefur fókusinn verið heildræn nálgun á heilsu með meiri áherslu á forvarnir, fræðslu og einstaklingsmiðaða eftirfylgni. Áhuginn sem ég hef séð síðustu mánuði gefur sannarlega tilefni til bjartsýni. Ef við viljum sterkara Ísland til framtíðar þurfum við fyrst og fremst heilbrigðara Ísland, þar sem heilsa fólksins okkar er mikilvægasti innviður samfélagsins. Höfundur er læknir og einn af stofnendum heildrænu heilsuþjónustunnar Lifeline Health. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Victor Guðmundsson Mest lesið Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson Skoðun Skoðun Skoðun UT-mál Reykjavíkurborgar Haukur Arnþórsson skrifar Skoðun Er Ísland tilbúið fyrir dánaraðstoð? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Þolendur sem vitni í eigin málum Inga Valgerður Henriksen Bergdal skrifar Skoðun Maðurinn sem treysti þjóðinni, en ekki lengur Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Mælanlegt sjálfstæði þjóðar Sigurður Friðleifsson skrifar Skoðun Af hverju er netöryggisfræðsla grunninnviður? Margrét Valgerður Helgadóttir skrifar Skoðun Ferðaþjónustan er ekki endalaus tekjulind fyrir ríkissjóð Björn Ragnarsson skrifar Skoðun Hlustum á börn – líka þegar þau eru ósammála okkur Tótla I. Sæmundsdóttir skrifar Skoðun Stærsta hópverkefni Íslands Einar Örn Einarsson skrifar Skoðun Úr gráu yfir í grænt með hjálp 50.000 trjáa Margrét Rós Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Er Ísland að undirbúa nemendur fyrir framtíðina? Íris Þóra Birgisdóttir skrifar Skoðun Laugavegur 1: Húsvernd á villigötum Þórður Magnússon skrifar Skoðun Hræðslubandalag elítunnar í fílabeinsturninum Sveinn Atli Gunnarsson skrifar Skoðun Mikilvægi Fjarðarheiðarganga Steinar Björgvinsson skrifar Skoðun Prófessorinn, hagfræðingurinn og fullveldið Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Varnarsamningurinn og fullveldið Jóhannes Hraunfjörð Karlsson skrifar Skoðun Já, áfram Ísland! Óli Rúnar Ástþórsson skrifar Skoðun Þegar allt verður forgangsmál Hjálmar Bogi Hafliðason skrifar Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar Skoðun Takk, en NEI takk Jón Pétur Zimsen skrifar Skoðun Reyndi að hindra að Ísland nyti réttlætis Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Upptaka evru áhættusöm fyrir lítil hagkerfi Kristinn Sv. Helgason skrifar Skoðun Reikningsdæmi handa Ögmundi Arnar Sigurðsson skrifar Skoðun Eilífðar smáblóm... Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir skrifar Skoðun „Eigðu sjálfur þinn helvítis tjakk!“ Ólafur Hauksson skrifar Skoðun Komið með skólabörnin í heimsókn á gamla leikskólann Elína Hallgrímsdóttir skrifar Skoðun Að tala tungum tveim Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Hver á íslenska fánann? Berglind Guðmundsdóttir skrifar Skoðun Huh eða ro? Freyja Rut Emilsdóttir skrifar Skoðun Vaðlaheiðargöng: greiðsluvilji er allt sem þarf Hilmar Gunnlaugsson skrifar Sjá meira
Skoðun Sjálfstætt Grænland hefði bæði víðtækari rétt og meiri möguleika en Ísland innan ESB Júlíus Valsson skrifar