Segir þekkt andlit mikið auglýst, jafnvel á kostnað málefna Smári Jökull Jónsson skrifar 8. maí 2026 22:55 Ari Edwald oddviti MIðflokksins, Björg Magnúsdóttir oddviti Viðreisnar, Bjarni Guðjónsson sem situr í 2. sæti hjá Sjálfstæðisflokki og Pétur Marteinsson, oddviti Samfylkingar, voru öll þekkt úr öðrum geirum áður en þau dembdu sér í pólitíkina. Vísir/Vilhelm/Anton Brink Velta má upp hvort flokkar í framboði til sveitastjórna telji þekkt andlit veiti þeim forgjöf þegar koma á skilaboðum til kjósenda. Meira fer fyrir þekktum andlitum í auglýsingum framboða en málefnunum sjálfum.
Kosningaauglýsingar eru áberandi þessa dagana, hvort sem það er á auglýsingaskiltum, í fjölmiðlum eða á samfélagsmiðlum. Í flestum þeirra eru frambjóðendur í forgrunni, en á samfélagsmiðlum eins og Tik Tok fara framboðin mistroðnar slóðir og árangurinn misjafn. Í dag fjarlægði til dæmis Miðflokkurinn í Mosfellsbæ myndband þar sem sjá má ungan mann labba út af kjörstað eftir að hafa kosið MIðflokkinn og kýla mann áður en hann sest upp í bíl. Borið hefur á umræðu að flokkarnir hafi lagt áherslu á að finna frægt fólk til að sitja í sætum ofarlega á framboðslistum. Þar má finna fólk sem þekkt er úr íþróttum, fjölmiðlum, atvinnulífi og menningu. Fólk sem lítið hafði skipt sér af stjórnmálum fram að því. „Við veltum því líka fyrir okkur hvort þetta tengist því að það sé orðið erfiðara að ná í gegn með skilaboð. Að framboðin meti það þannig að þau þurfi nánast að hafa meðgjöf í því að þeirra frambjóðendur séu þekktir af öðrum vettvangi eða séu einhvers konar þekkt andlit fyrir,“ segir Kári Sævarsson, sköpunarstjóri hjá vörumerkjastofunni Tvist. „Nánast engin skilaboð sem eru ekki borin uppi af portrettmynd“ Á samfélagsmiðlum sé erfitt að fanga athygli notanda og fólk bregðist öðruvísi við andlitum heldur en myndum eða orðum. Ari Edwald, Bjarni Guðjónsson, Björg Magnúsdóttir, Þorvaldur Davíð Kristjánsson og Pétur Marteinsson voru öll þekkt af öðrum vettvangi áður en þau hentu sér í stjórnmálin fyrir kosningarnar þann 16. maí. Myndir af þeim prýða nær allar auglýsinga sinna flokka fyrir kosningarnar.Vísir „Það sem okkur hefur þótt einkennandi er í raun og veru þessi ofboðslega mikla fyrirferð á andlitum. Þetta hefur alltaf verið hluti af kosningabaráttu í gegnum tíðina, það hefur verið lögð áhersla á frambjóðendur en núna sýnist okkur þetta vera orðið þannig að það sé eiginlega ekkert nema andlit sem koma frá framboðunum.“ Má að einhverju leyti segja að það séu andlit á kostnað málefna, eða hvað? „Já, ég held það sé alveg óhætt að segja það og það eru nánast engin skilaboð sem eru ekki borin uppi af portrettmynd af frambjóðanda.“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Samfélagsmiðlar Auglýsinga- og markaðsmál Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira