Hátt í 40 prósenta aukning í kosningaþátttöku utan kjörfundar Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 11. maí 2026 13:42 Það er brjálað að gera í Hlíðasmára 1 en þar geta kjósendur kosið í utankjörfundaratkvæðagreiðslu. Sýslumaðurinn hefur gripið til ráðstafana til að anna eftirspurninni. Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir að hátt í 30% aukning sé á utankjörfundaratkvæðagreiðslu hjá íbúum á höfuðborgarsvæðinu frá síðustu sveitarstjórnarkosningum 2022.
Á landsvísu er þátttakan jafnvel enn kraftmeiri og nemur aukningin hátt í fjörutíu prósentum á milli kosninga. Sýslumaðurinn býst við enn meiri aukningu næstu daga og hefur gert ráðstafanir til að anna eftirspurn. Í dag eru fimm dagar í sveitarstjórnarkosningar. Íbúar á höfuðborgarsvæðinu hafa verið duglegir við að greiða atkvæði í utankjörfundaratkvæðagreiðslu að Hlíðasmára 1 fyrir þessar kosningar. Sigríður Kristinsdóttir sýslumaður á höfuðborgarsvæðinu heldur fjöldanum sem greiðir atkvæði til haga.„Í lok dags í gær voru 7646 búnir að kjósa hjá okkur, sem er um 29% aukning frá síðustu sveitarstjórnarkosningum sem voru 2022.“ Þetta er mikil aukning, er það ekki? „Jú, þetta er þónokkur aukning og þegar síðan er farið yfir – það er hægt að kjósa hjá öllum sýslumönnum á landinu og í sendiráðum erlendis og það er um 39% aukning í sveitarstjórnarkosningum miðað við sveitarstjórnarkosningarnar 2022.“Sigríður sagðist auk þess búast við enn meiri aukningu næstu daga. Sigríður var spurð hvað hún teldi að væri þess valdandi að svo margir kysu að taka þátt í utankjörfundaratkvæðagreiðslu.„Nú veit maður það ekki alveg en við höfum verið að velta því fyrir okkur hvort það gæti verið að þetta lendi á þeim tíma þar sem er frídagur á fimmtudegi fyrir kjördag og að þetta sé þónokkuð mikil ferðahelgi og margir séu í burtu og ekki í sinni kjördeild og komist ekki þangað og svo er bara þónokkur spenna í mörgum sveitarfélögum í þessum kosningum; hvort meirihlutar séu að falla og annað.“Hvernig lítur þetta út fyrir utan hjá ykkur, er þetta sífellt rennerí þarna í Hlíðarsmára á hverjum degi? „Já, við opnum klukkan tíu á morgnana og erum búin að vera með opið alla daga nema á sumardaginn fyrsta, þá lokuðum við og núna í dag aukum við opnunartímann og erum með opið til klukkan níu á kvöldin, alla daga fram að kjördegi, einnig á uppstigningardag 14. maí og svo er opið hjá okkur á kjördegi klukkan 10-17 fyrir þá sem ekki komast í sína kjördeild. Það er rétt að ítreka það að þeir sem kjósa á höfuðborgarsvæðinu og eru ekki með lögheimili þar þurfa að koma sínu atkvæði til skila til síns sveitarfélags og kjósandinn ber ábyrgð á því“
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Tengdar fréttir Nánast búin með stafrófið Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er hafin og hafa þegar tvö hundruð og þrjátíu manns kosið hjá sýslumönnum og sendiráðum. Frambjóðendur á landinu öllu eru ríflega þrjú þúsund. 20. apríl 2026 13:24 „Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðslu fara vel af stað í húsakynnum sýslumannsins við Hlíðarsmára í Kópavogi. Gott húsnæði með nóg af bílastæðum geri gæfumuninn enda mikilvægt að fólk komist á réttan stað. 18. apríl 2026 15:15 Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Innlent Fleiri fréttir Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Viðreisn tapar fylgi Sjá meira
Nánast búin með stafrófið Utankjörfundaratkvæðagreiðsla fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar er hafin og hafa þegar tvö hundruð og þrjátíu manns kosið hjá sýslumönnum og sendiráðum. Frambjóðendur á landinu öllu eru ríflega þrjú þúsund. 20. apríl 2026 13:24
„Það hafa ekki verið neinir hnökrar hjá okkur“ Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu segir utankjörfundaratkvæðagreiðslu fara vel af stað í húsakynnum sýslumannsins við Hlíðarsmára í Kópavogi. Gott húsnæði með nóg af bílastæðum geri gæfumuninn enda mikilvægt að fólk komist á réttan stað. 18. apríl 2026 15:15