Körfubolti

Spilar ekki með lands­liðinu vegna forræðis­deilu

Ingvi Þór Sæmundsson skrifar
Luka Doncic klæðist ekki slóvenska landsliðsbúningnum í sumar.
Luka Doncic klæðist ekki slóvenska landsliðsbúningnum í sumar. getty/Stefanos Kyriazis

Luka Doncic, leikmaður Los Angeles Lakers, mun ekki leika með slóvenska körfuboltalandsliðinu í sumar þar sem hann stendur í forræðisdeilu.

Doncic og slóvenska fyrirsætan Anamaria Goltes slitu trúlofun sinni fyrr á þessu ári. Þau höfðu verið par í áratug og eiga tvær dætur saman.

„Ég elska dætur mínar meira en allt og þær verða alltaf í fyrsta sæti í mínu lífi,“ skrifaði Doncic á Instagram þar sem hann greindi frá þeirri ákvörðun sinni að spila ekki með slóvenska landsliðinu í sumar.

„Þar sem ég vinn að því að fá sameiginlegt forræði yfir dætrum mínum hef ég neyðst til að taka erfiða ákvörðun um að ferðast og spila með slóvenska landsliðinu eða vera með dætrum mínum í sumar. Því miður hefur verið erfitt fyrir mig að sjá þær undanfarna átta mánuði. Ég hef gefið allt mitt til að spila fyrir Slóveníu og ég er vonsvikinn að geta ekki spilað fyrir þjóð mína í sumar. En núna eru dætur mínar og skyldur mínar sem faðir í forgangi.“

Goltes og dætur þeirra Doncic eru heima í Slóveníu og hann átti ekki kost á því að hafa þær hjá sér í Bandaríkjunum meðan á tímabilinu í NBA stóð.

„Ég elska dætur mínar meira en nokkuð annað og ég hef gert allt sem ég get svo þær geti verið hjá mér í Bandaríkjunum yfir tímabilið en það hefur ekki verið mögulegt. Svo nýlega tók ég þá erfiðu ákvörðun að slíta trúlofun minni,“ sagði Doncic í yfirlýsingu til ESPN í mars.

Yngri dóttir Doncic og Goltes, Olivia, fæddist í desember á síðasta ári. Doncic var viðstaddur fæðinguna í Slóveníu og á fæðingardeildinni óskaði hann eftir að taka eldri dóttur sína, Gabrielu, með þegar hann færi aftur til Bandaríkjanna. Goltes varð ekki við þeirri beiðni, þau rifust og samkvæmt ESPN hringdi hún í kjölfarið á lögregluna. Engir eftirmálar urðu þó af því.

Doncic ku ekki hafa séð dætur sínar síðan í desember en hann freistar þess að fá sameiginlegt forræði yfir þeim.

Lakers féll úr leik í undanúrslitum Vesturdeildar NBA fyrir Oklahoma City Thunder í nótt. Meistarar OKC unnu einvígi liðanna, 4-0.

Doncic lék ekkert með Lakers í úrslitakeppninni vegna meiðsla aftan í læri.

Doncic var stigahæstur í NBA í vetur með 33,5 stig að meðaltali í leik. Hann tók einnig 7,7 fráköst og gaf 8,3 stoðsendingar. Doncic hefur leikið með Lakers frá því í febrúar í fyrra en félagið fékk hann þá í skiptum frá Dallas Mavericks.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×