Tveir bankar spá stýrivaxtahækkun þrátt fyrir kólnun hagkerfis Berghildur Erla Bernharðsdóttir skrifar 13. maí 2026 13:10 Jón Bjarki Bentsson forstöðumaður Greiningar Íslandsbanka og Una Jónsdóttir aðalhagfræðingur Landsbankans en báðir bankarnir spá hækkun stýrivaxta á fundi Seðlabankans í næstu viku. Bæði Landsbanki og Íslandsbanki spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta í næstu viku. Verðbólguþróun og hækkandi verðbólguvæntingar munu vega þyngra en kólnun hagkerfisins. Aðalhagfræðingur Landsbankans segir það vegna hækkana á eldsneyti. Ef ekki hefði komið til lækkana á virðisaukaskatti væri ástandið verra.
Gangi spár greiningardeildar Landsbankans og Greiningar Íslandsbanka eftir munu stýrivextir hækka úr 7,5 prósentum í 7,75 prósent á miðvikudaginn í næstu viku og verða þá á sama stað og fyrir ári. Í spá Íslandsbanka kemur fram að vextirnir geti jafnvel hækkað um 0,5 prósent. Ástæðan sé óhagstæð verðbólguþróun, lakari verðbólguhorfur og hækkun á verðbólguvæntingum sem muni vega þyngra en kólnun hagkerfisins. Una Jónsdóttir, aðalhagfræðingur Landsbankans, er á svipuðum nótum. „Verðbólga og sérstaklega verðbólguvæntingar hafa reynst mjög þrálátar. Það er auðvitað hægt að rekja þetta til olíuverðshækkana einna helst, sem að hafa smitað hingað heim. Þó að sem sagt ákvarðanir Seðlabankans hér hafi kannski ekki beint mikil áhrif á olíuverðshækkanir, þá getur það haft áhrif á verðbólguvæntingarnar,“ segir Una. Aðgerðir hafi temprað verðbólgu en ekki nóg Ríkisstjórnin lækkaði virðisaukaskatt á eldsneyti um mánaðamótin til að bregðast við verðhækkunum á olíu vegna stríðsátaka við Persaflóa. Una segir að það hafi haft nokkur áhrif en ekki nóg. „Aðgerðirnar eru til þess að tempra aðeins verðbólguna, en hækkanirnar eru bara það miklar erlendis frá að það veldur verðbólguþrýstingi. Þannig að þó að það sé verið að grípa til einhverra aðgerða þá er það ekki nóg,“ segir Una. Kólnandi hagkerfi Verðbólga hjaðnaði lítillega í apríl. Una segir að verðbólgan hefði minnkað meira ef bensín og aðrar innfluttar vörur hefðu ekki hækkað um 0,62% frá síðasta fundi peningastefnunefndar Seðlabankans. Hún segir greinilegt að hagkerfið sé á niðurleið. Kólnun hagkerfis „Við sjáum að hagkerfið er að kólna. Það eru margir hagvísar sem benda í þá átt. Það hefur hægt mjög á kortaveltu og velta samkvæmt virðisaukaskattsskýrslum sýndi samdrátt á fyrstu mánuðum árs. Sjáum það að raunverð íbúða er að lækka,“ segir hún. Aðspurð um hvort hækkun stýrivaxta hafi jákvæð áhrif á afkomu fjármálastofnana svarar Una: „Það er nú bara allur gangur á því. Þetta er nú flóknara samband en svo,“ segir Una.
Fjármálafyrirtæki Seðlabankinn Ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur Mest lesið Hafi loks slíðrað sverðin Innlent Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Innlent Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Innlent „Það er bara mjög sorglegt“ Innlent Operation Matrix: Fjölmörg burðardýr fluttu inn minnst 100 kíló af kókaíni Fréttir Stjórnendur Sorpu slegnir Innlent Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Innlent Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Erlent Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Innlent Umferðarslys í Bolungarvík Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar einnig látið sig vanta í atkvæðagreiðslur Kvikumagnið undir Svartsengi orðið mun meira en áður Frestur til miðnættis að taka afstöðu til tillögu ríkissáttasemjara Umferðarslys í Bolungarvík Kennarar boðaðir á fund hjá sáttasemjara „Miður að við séum komin á þennan stað“ „Það er bara mjög sorglegt“ Skringileg túlkun á regnbogafánanum og aukið eftirlit í Grindavík Hafi loks slíðrað sverðin Ökumenn beðnir um að aka sérstaklega varlega Starfsmenn séu eltir heim og lífi þeirra ógnað Útgrátin og brotin frammi fyrir öllum Ósáttir sendlar bjóða Wolt fram aðstoð sína Lét maka vinna fyrir sig í skólanum Stjórnendur Sorpu slegnir Landsbankamálið gæti kostað ríkið hundruð milljóna Veltir fyrir sér hvort Viðskiptaráð haldi að Íslendingar séu hálfvitar Heimir Már biðst afsökunar á orðum sínum Wolt kærir hótanir til lögreglu Boðið upp á bólusetningar í apótekum í fyrsta sinn „Mínar skoðanir skipta í þessu máli litlu“ Höskuldur tapaði aftur fyrir Magnúsi „Hafðu kjarnorkuvopnin tilbúin“ Vill loka Stuðlum og opna nýtt úrræði Telur ekki að verið sé að víkja frá gildandi samningi Ætla að brenna rusl og skapa orku Kjarasamningar kennara í uppnámi Bein útsending: Peptíð, töfralausn eða heilsufarsleg áhætta? „Burt með bölvað ofstækið“ Flóttamannaleið opin á ný eftir bílveltu Sjá meira