Kosningaspá Vísis: Stöðugleiki að komast á fylgi í borginni Kjartan Kjartansson skrifar 14. maí 2026 11:03 Pétur Marteinsson úr Samfylkingu og Hildur Björnsdóttir úr Sjálfstæðisflokki í kappræðum Sýnar 13. maí. Vísir/Vilhelm Sjálfstæðisflokkurinn er enn með yfirburði í nýuppfærðri kosningaspá Vísis fyrir borgarstjórnarkosningarnar í Reykjavík en hreyfing á fylgi virðist hafa stöðvast. Engar markverðar breytingar eru á líkum frambjóðenda að ná kjöri. Fylgi framboðanna í Reykjavík er að mestu leyti óbreytt í nýjustu könnun Maskínu sem greint var frá í gærkvöldi. Vísir stendur fyrir kosningaspá í samstarfi við Baldur Héðinsson stærðfræðing og hefur hún verið uppfærð miðað við könnun Maskínu. Sjálfstæðisflokkurinn, sem hefur verið á mikilli siglingu frá því í janúar, mældist áfram langstærstur með 28 prósent fylgi, Sjálfstæðisflokkurinn er nú með um átta prósentustiga forskot á Samfylkinguna sem mælist nú með tæp tuttugu prósentustig. Samfylkingin nær smá viðspyrnu eftir að fylgi flokksins hrapaði um hátt í tíu prósentustig frá því í vetur. Miðflokkurinn rétti úr kútnum frá sinni lélegustu könnun Maskínu og bætti við sig 2,6 prósentustigum. Vinstrið dalaði um prósentustig og Samfylkingin bætti við sig tæpur tveimur stigum milli kannana. Sjö sjálfstæðismenn, fimm samfylkingarmenn Engar þessara breytinga hafa teljandi áhrif á líkur einstakra frambjóðenda að ná kjöri frá síðustu uppfærslu kosningaspárinnar fyrir viku. Sjálfstæðisflokkurinn er áfram í kjörstöðu að ná inn sjö mönnum og eygir möguleikann á þeim áttunda. Bjarni Fritzson, áttundi maður á listanum, á nú 47 prósent líkur á að ná inn, svo gott sem þær sömu og fyrir viku. Samfylkingin stefnir á fimm menn kjörna en sjötti maðurinn, Bjarnveig Birta Bjarnadóttir, sjötti maður á lista flokksins, á innan við þriðjungslíkur á kjöri. Óbreytt staða að mestu milli Viðreisnar, Vintrisins og Miðflokksins Helsta baráttan fyrir þessar kosningar hefur verið um hvernig sæti skiptast á milli Viðreisnar, Vinstrisins og Miðflokksins sem gæti haft ráðandi áhrif á hvers konar meirihluti verður myndaður að kosningum loknum. Flokkarnir hafa keppst um að ná inn þremur mönnum í borgarstjórn. Litlar breytingar hafa orðið á kosningaspánni milli vikna þar. Vinstrið á áfram mestar líkur á að ná inn þremur fulltrúum. Stefán Pálsson, þriðji maður Vinstrisins, mælist með 73 prósent líkur en þær voru komnar upp í áttatíu prósent í síðustu útgáfu spárinnar. Borgarstjórn Reykjavíkur kosningaspá 14. maí Líkur Þorvaldar Davíðs Kristjánssonar, þriðja manns á lista Viðreisnar, eru svo gott sem óbreyttar frá því fyrir viku. Hann á 58 prósent líkur á kjöri. Útlit er því enn fyrir að Viðreisn verði í lykilstöðu varðandi hvort vinstri eða hægri meirihluti verður myndaður eftir kosningar. Horfur Lárusar Blöndal, þriðja manns á lista Miðflokksins, hafa aðeins batnað. Spáin gefur honum nú rétt rúmlega fimmtungslíkur á kjöri en þær voru komnar niður í tólf prósent í síðustu viku. Framsókn, Sósíalistar og Píratar gætu náð inn Af minni framboðunum á Framsóknarflokkurinn mestar líkur á að ná inn manni í Einar Þorsteinssyni, oddvita sínum og fyrrverandi borgarstjóra. Hann er nú með 76 prósent líkur á að ná kjöri, svipuðum og í síðustu útgáfu kosningaspárinnar. Sósíalistar og Píratar hafa rúmlega sextíu prósent líkur hvor á að ná inn manni. Innan við helmingslíkur eru enn að Guðmundur Ingi Þóroddsson nái inn fyrir Flokk fólksins. Það er þó framför frá því í síðustu viku þegar Guðmundur Ingi var talinn eiga rúmlega fjórðungslíkur á kjöri. Oddvitar Okkar borgar og Góðs dags eru taldir hafa á bilinu eins til tveggja prósenta líkur á að ná kjöri. Hvaða meirihlutar eru mögulegir? Hér að neðan geta lesendur skoðað mögulega meirihluta og líkurnar á hverjum og einum samkvæmt kosningaspá Vísis. Sem stendur eru til dæmis 17 prósent líkur á að Sjálfstæðisflokkurinn, Miðflokkurinn og Framsóknarflokkurinn geti myndað meirihluta til hægri. Á móti eru 36 prósent líkur á að Sjálfstæðisflokkurinn, Viðreisn og Framsókn geti myndað meirihluta. Ef litið er yfir á vinstri vænginn eru 26 prósent líkur á að Samfylkingin geti myndað þriggja flokka meirihluta með Viðreisn og Vinstrinu. Píratar og Sósíalistar gætu bæst í hópinn og þá nálgast líkurnar 50 prósent. Góðar líkur eða 77 prósent eru á því Sjálfstæðisflokkurinn og Samfylkingin gætu myndað meirihluta. En miðað við kappræður gærkvöldsins má telja ólíklegt að sú yrði niðurstaðan. Hér að neðan er svo skýring á kosningaspánni. Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri. Kosningaspá Vísis Skoðanakannanir Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Okkar borg Góðan daginn Sósíalistaflokkurinn Vinstrið Flokkur fólksins Vinstri græn Samfylkingin Viðreisn Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira
Um kosningaspána: Kosningaspá Baldurs Héðinssonar byggir á niðurstöðum skoðanakannana. Þeim er gefið vægi út frá þremur þáttum; hversu margir svara könnun, hversu langt er frá því könnunin var gerð og hver stendur að henni. Útkoman er spá um hlutfall atkvæða sem hver flokkur hlýtur. Í framhaldinu hermir kosningaspáin 100.000 sýndarkosningar þar sem flökt er á fylgi. Fyrir hverja niðurstöðu er borgarstjórnarsætum úthlutað. Þær hermanir gefa svo mat á líkum hvers frambjóðanda að ná kjöri.
Kosningaspá Vísis Skoðanakannanir Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Reykjavík Sjálfstæðisflokkurinn Framsóknarflokkurinn Miðflokkurinn Okkar borg Góðan daginn Sósíalistaflokkurinn Vinstrið Flokkur fólksins Vinstri græn Samfylkingin Viðreisn Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Játar að hafa logið til um nauðgun Hrákinn endaði í andliti og auga Breytt vinnubrögð sköpuðu núning milli forstjóra og stjórnar Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Ábendingar borist um skemmdarverkin Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife „Takk fyrir vinskapinn, elsku Lárus“ Sé ekki spurning um að finna Lúðvík heldur sækja hann Tíst Ólafs Ragnars hafi verið mun alvarlegra „Skítapakk, spurning að maka þessu á bílinn næst“ „Það er svolítið seint í rassinn gripið“ Vilja leyfa eldri borgurum að ráða sér au pair Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Flestir neita sök og umfangsmikil réttarhöld í vændum Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Manndrápsmál, eltihrellir og söguleg kaup Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Gekk á milli bíla og braut rúður Fjölmenni í héraðsdómi Þriðjungur til Þórs og KA en rúmt prósent í menninguna Hreyfingar mælast og aukin vöktun Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Skattlagning á erlenda tæknirisa enn til skoðunar Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Skikkaður í varðhald í tengslum við manndráp í Breiðholti Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Leiddur fyrir dómara vegna mannsláts Göngustígar greiða leið um falda perlu við Stykkishólm Hafna nær öllum sem vilja troða upp á Airwaves Sjá meira