„Þú þarft raunverulega að þjást“ Hjörtur Leó Guðjónsson skrifar 13. maí 2026 23:35 Jökull Elísabetarson var sigrinum feginn. Vísir/Diego Jökull Elísabetarson, þjálfari Stjörnunnar, segir að það hafi verið extra sætt að slá KR úr leik í Mjólkurbikar karla í kvöld, eftir að hafa tapað fyrir KR-ingum í Bestu-deildinni fyrir aðeins fimm dögum síðan.
Stjörnumenn voru með 2-0 forystu í síðustu viðureign þessarra liða í síðustu viku, en máttu þola 2-3 tap eftir þrjú mörk KR-inga í seinni hálfleik. „Mér fannst við spila mjög góðan leik þar þó þeir hafi náð yfirhöndinni á stórum kafla í seinni hálfleik. Mér fannst það samt vera leikur sem við hefðum getað gefið okkur færi á að fá meira út úr, en mér leið ágætlega eftir þann leik,“ sagði Jökull eftir leik kvöldsins. „Auðvitað var erfitt að vera búnir að tapa fjórum í röð eftir þann leik. Það var skrýtin staða að vera í sem hópur, en í dag byrjum við bara að byggja upp mómentum og byggjum ofan á þetta,“ bætti Jökull við. Stjarnan hafði yfirhöndina í fyrri hálfleik í leik kvöldsins, en þurfti að leggjast neðar á völlinn eftir hlé, án þess þó að gfa KR-ingum einhver færi til að tala um. „Munurinn á þessum leik og síðasta er að við vörðumst bara betur í kringum teiginn okkar í dag. Þetta er rosalega vel þjálfað lið og Óskar (Hrafn Þorvaldsson, þjálfari KR) er búinn að gera mjög vel með þennan hóp. Ekki það að það séu ekki góðir leikmenn þarna, en það verður alltaf þannig að það koma kaflar á móti þeim þar sem þú þarft raunverulega að þjást,“ sagði Jökull. „Það var munurinn á leiknum í kvöld og síðast. Þegar við lögðumst neðar þá komust þeir bara ekki í gegnum okkur, en þeir gerðu það síðast. Það er mjög mikill munur á því.“ Þí KR-ingar hafi ekki fengið nein teljandi færi í seinni hálfleik fengu þeir víti undir lok fyrri hálfleiks, sem Árni Snær Ólafsson varði. „Það gefur manni alltaf auka orku að fá svona, ekki lítinn sigur, heldur stóran sigur inni í leiknum, en það breytti samt engri nálgun hjá okkur. Ef við hefðum farið 3-1 eða 4-1 inn í seinni hálfleikinn þá hefðum við samt vitað að hann yrði öðruvísi. Við vissum að þeir myndu taka yfir á einhverjum tímapunkti og að við þyrftum að vera klárir. Þannig það breytti ekkert rosalega miklu í kvöld.“ Þéttari frammistaða en oft áður Þá segir hann mikilvægt að sjá marga leikmenn liðsins skila góðri vakt í kvöld. „Mér fannst einmitt fleiri eiga bara svona mjög góðan leik en hefur verið hjá okkur í síðustu leikjum. Það hafa alveg verið góðir leikir hjá nokkrum og við höfum átt mjög góða leiki, þó við höfum kannski ekki náð að vinna, en í dag fannst mér þetta vera þéttari frammistaða.“ Að lokum vonar hann að sigur kvöldsins sé upphafið að viðsnúningi Stjörnunnar, sem hefur tapað fjórum af fyrstu sex deildarleikjum tímabilsins. „Já, ég held það. Ég er mjög ánægður með það hvernig hópurinn hefur verið frá síðasta leik og maður finnur alveg að það var trú. Það eina sem menn trúðu var að við værum að koma hingað í kvöld og vinna.“ „Þettaer klárlega eitthvað sem við getum tekið með okkur og byggt ofan á. Ég held að við munum fara að sjá fleiri stig fara á töfluna,“ sagði Jökull að lokum
Mjólkurbikar karla Stjarnan KR Mest lesið Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Enski boltinn Wirtz sé búinn að missa trúna Enski boltinn Toppbaráttan í vetur: Vildi spá KR titlinum Körfubolti Bakgarðsáskorunin: Soðnar kartöflur besta nestið Sport Þekkir ekkert annað en pressu Körfubolti Næst ekki í Kane og tvísýnt hvort hann komi Körfubolti Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Fótbolti Býður sig fram á móti Infantino Fótbolti „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Fótbolti Fleiri fréttir Haaland biðlar til stuðningsmanna að standa saman Ceferin ætlar sér að stýra UEFA áfram Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Ber enn örið: „Eitur í æðum mér“ Wirtz sé búinn að missa trúna Varaforsetinn mildar afstöðu sína gagnvart Infantino Eins og óendurgoldin ást „Framkoman eins og við hverja aðra leikmuni“ Enn hryggur tíu árum síðar: „Mun aldrei nokkurn tímann komast yfir þetta“ Heimir þrefalt líklegri en Ísland til að fara á EM Guardiola verður viðstaddur fyrsta heimaleik Manchester City eftir dóminn Manchester City-goðsögn hættir við að hætta Býður sig fram á móti Infantino Tarik framlengir við Víking Leggur skóna á hilluna Andar léttar: Skilorðsbundið bann fyrir njósnirnar Ísland að beygja út af bakdyraleiðinni á EM? Upp um eitt sæti á heimslistanum Rekinn frá Tyrkjum Arteta framlengir við Arsenal Hafnaði Íslandi og er byrjaður með Bandaríkjunum Dregið á föstudag: Sjáðu mörk og fögnuð ungu strákanna okkar Lofsöng Sveindísi: „Tekið gríðarlegum framförum frá því í fyrra“ Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Birkir heldur metinu og eignast aðra dóttur Messi var farinn að hágráta fyrir leik en kvaddi með stæl Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Fagnar stiginu: „Ég var að fíla Eistana“ „Bara lét okkur heyra það í hálfleik“ Sjá meira