Silja sagði spurningu Einars fáránlega: „Það þýðir ekki að bendla okkur við þetta“ Jón Þór Stefánsson skrifar 14. maí 2026 08:27 Silja Sóley Birgisdóttir og Einar Þorsteinsson tókust á í kappræðum Sýnar. Vísir/Vilhelm Silja Sóley Birgisdóttir, oddviti Sósíalista í borginni, sagði spurningu Einars Þorsteinssonar, fyrrverandi borgarstjóra og oddvita Framsóknar, um Norður-Kóreu heimsókn félagsmanns Sósíalista vera fáránlega. Hún sagði ekki hægt að bendla flokkinn við ríki líkt og Norður-Kóreu, og að spurning Einars væri „strámaður“.
Þetta kom fram í kappræðum oddvitanna í borginni á Sýn í gærkvöldi. Umrætt atvik átti sér stað í liðnum þar sem hver frambjóðandi fær að spyrja annan frambjóðanda út í eitthvað málefni. „Ég er bara forvitinn um eitt: Sósíalistar, það var einhver í ykkar hópi, í stjórninni, sem fór til Norður-Kóreu í heimsókn,“ sagði Einar. Þar vísaði hann til Norður-Kóreu heimsóknar Kristins Hannessonar, fulltrúa í kosningastjórn Sósíalistaflokksins sem hann fór í síðasta haust. Kristinn, sem er jafnframt aðalritari Vinafélags Íslands og Kóreu, greindi á sínum tíma frá því að hann hefði tekið smálán til að fjármagna ferðina til að sækja málþing í tilefni áttatíu ára afmælis Verkamannaflokks landsins. „Mig langar svo að draga fram öfgarnar í pólitíska ritrófinu sem er að birtast okkur hérna. Hvað voruð þið að gera í Norður-Kóreu? Og hvernig var?“ spurði Einar Silju „Vá! Þetta er fáránleg spurning,“ sagði Silja Sóley og hló lítillega. „Þetta er breiðfylking af fólki, og ég get ekki svarað fyrir einhvern einn mann sem ákvað að gera eitthvað einu sinni í fríi út frá sínum áhugamálum,“ bætti hún við. Einar sagðist þá hafa séð upplýsingar tengdri þessari umræddu ferð á Facebook-síðu Sósíalista. Silja sagði svo ekki geta verið. Silja Sóley tók þá fram að Sósíalistaflokkurinn styddi ekki við eitthvað eitt ríki. „Við viljum bara íslenskan sósíalisma, og það þýðir ekki að bendla okkur við þetta. Þetta er algjör strámaður,“ vildi Silja meina. „Ég sá bara mynd af manninum,“ sagði Einar og Silja svaraði um hæl. „Hann gerir bara það sem hann vill í sínum frítíma. Hann endurspeglar ekki allan flokkinn. Þetta er breiðfylking.“ Allar spurningar oddvitanna og svör má sjá að neðan. Silja fékk liðsauka frá Ara Silja fékk þá stuðning úr óvæntri átt. Ari Edwald, oddviti Miðflokksins, sagði að einstaklingar yrðu að svara fyrir sín eigin orð, og virtist þar með vísa aftur í umræðu sem hafði átt sér stað fyrr í kappræðunum þegar spjótin beindust að honum vegna umræðu um regnbogafána í skólum. Lesa má nánar um það hér. „Flokkar svara ekki fyrir einstaklinga úti í bæ sem eru að gjamma einhverja vitleysu eða gera eitthvað,“ sagði hann. Kappræður Sýnar má sjá í heild sinni í spilaranum hér að neðan.
Borgarstjórn Sveitarstjórnarkosningar 2026 Sósíalistaflokkurinn Framsóknarflokkurinn Norður-Kórea Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira