Kona bankaði upp á en inn ruddust tveir menn Agnar Már Másson skrifar 14. maí 2026 11:22 Árásin átti sér stað í Salahverfi í Kópavogi. Mynd úr safni. Vísir/Vilhelm Lögreglan rannsakar rán og minniháttar líkamsárás í Salahverfi í Kópavogi í nótt þar sem kona og tveir menn eru sögð hafa ráðist á mann inni á heimili hans. Konan er sögð hafa bankað upp á en þegar húsráðandinn opnaði dyrnar ruddust inn tveir karlmenn sem réðust á hann og rændu hann.
Maður var í gærkvöldi handtekinn grunaður um líkamsárás og rán, eins og greint var frá á Vísi í morgun. Hann var vistaður í fangaklefa og er málið nú í rannsókn. Skúli Jónsson, aðstoðaryfirlögregluþjónn hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, segir í samtali við Vísi að klukkan 18.23 hafi húsráðandi í Lómasölum í Kópavogi hringt í 112 þar sem hann hafi tilkynnt um líkamsárás á heimili sínu. „Þetta er minniháttar líkamsárás,“ segir Skúli og útskýrir að tveir menn á fertugsaldri verði kærðir fyrir að ráðast á manninn. Gerendur og þolendur þekkist. „Það er bankað þarna heima hjá honum – einhver kona sem hann þekkir er að banka – síðan ryðjast inn einhverjir tveir menn inn til hans. Þeir rændu hann einhverjum hlutum og eitthvað af því er komið í leitirnar.“ Vitni hafi séð til fólksins, tveggja manna og einnar konu, koma hlaupandi frá íbúðinni og hoppa upp í einhvern bíl en lögregla náði að hafa uppi á öðrum manninum, sem hefur verið handtekinn en var svo látinn laus í morgun að lokinni skýrslutöku. Enn sé verið að leita að hinum manninum. Þolandi árásarinnar sagðist þekkja mennina, að sögn Skúla, sem kveðst þó ekki vita hvert tilefni árásarinnar hafi verið. Málið sé til rannsóknar hjá miðlægri rannsóknardeild.
Kópavogur Lögreglumál Mest lesið Draumurinn að rætast fyrir Demókrata Erlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Bein útsending: Tölur berast frá kjörstöðum vestanhafs Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Innlent Reynslumikill flugmaður við stjórnina Erlent Þrír handteknir fyrir rán Innlent Fleiri fréttir Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Fjögurra bíla árekstur við N1 í Ártúnsbrekku „Ég neita að leyfa fæðingarorlofssjóði að stjórna mínu lífi“ Líkamsárás í miðbænum Sjá meira