„Ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því“ Eiður Þór Árnason skrifar 14. maí 2026 19:31 Markús Þór Andrésson safnstjóri og verkið Partnership sem hefur séð betri daga. Eyþór Árnason - Vísir Hakakrossar hafa verið krotaðir á útilistaverkið Partnership sem stendur við Sæbraut í Reykjavík. Verkið er í eigu Listasafns Reykjavíkur en nýlega var búið að gera við það. Safnstjóri segir þetta leiðindamál og til standi að bregðast skjótt við þegar fólk snýr aftur til vinnu á morgun.
Umræddur skúlptúr er eftir Pétur Bjarnason og er frá árinu 1991. Hann var áður á Austurbakkanum þar sem tónlistarhúsið Harpa stendur í dag. „Þetta hefur gerst áður að verk verða einhvern veginn fyrir hnjaski eða skemmdum, hvort sem það er út af einhverju gildi verkanna sjálfra eða bara svona almennur brussugangur og skemmdarverk. Við erum með teymi sem er yfirleitt frekar fljótt í snúningum að laga hlutina, þannig að við reynum að halda öllu þessu í horfinu,“ segir Markús Þór Andrésson safnstjóri. Hann hafði ekki heyrt af skemmdarverkunum þegar fréttamaður sló á þráðinn. Vill síður tjá sig efnislega um krotið Aðspurður hvort hakakrossar séu verri en annað krot í ljósi sögunnar tekur Markús fram að hann hafi ekki enn séð ummerkin. „Þannig að ég átta mig ekki á því hvað er verið að meina með því og vil þá kannski síður tjá mig um það.“ Partnership er önnur tveggja höggmynda sem Pétur gerði í tilefni af því að 50 ár voru frá því að Ísland og Bandaríkin hefðu tekið upp stjórnmálasamband. Sú seinni var afhjúpuð í Miami á Flórída 1992. „Verkin sýna eins konar örvarodd sem samsettur er úr tveimur samhverfum hlutum og má lesa úr því tákn fyrir samstarf tveggja aðila um að horfa fram á við,“ að því er fram kemur á vef Listasafnsins. Greinilega er um hakakross að ræða sem hefur til að mynda verið notaður sem tákn nasista.Vísir Heyri til undantekninga Markús segir að listasafnið sé með sérstakt teymi sem sérhæfi sig í því að viðhalda og lagfæra útilistaverk safnsins sem eru fjölmörg. „Við vorum tiltölulega nýbúin að laga þetta verk. Þær voru svolítið farnar að láta á sjá flísarnar á stöplinum af því að þær voru komnar til ára sinna. Það var allt saman fært til betra horfs núna kannski fyrir ári síðan. Þannig að við munum bara líta á þetta og reyna að koma þessu í lag.“ Það sé alltaf leiðinlegt þegar slík skemmdarverkamál koma upp. Krot og skemmdarverk á útilistaverkum Listasafns Reykjavíkur heyri til undantekninga og séu ekki algeng. „Okkur er umhugað um listaverkin okkar og að það sé borin virðing fyrir þeim og þeim vel við haldið, það er bara okkar ábyrgð.“ „Eins og alltaf þá er það nú þannig að ef eitthvað bjátar á í útilistaverkunum þá erum við yfirleitt fljót að heyra af því í Listasafninu. Almenningi er gjarnan umhugað um verkin okkar og þau láta okkur mjög gjarnan vita ef eitthvað kemur upp á. Við bregðumst yfirleitt fljótt við,“ segir Markús Þór Andrésson, safnstjóri Listasafns Reykjavíkur.
Menning Reykjavík Styttur og útilistaverk Mest lesið Braut reglur þegar hann minntist Steins Innlent Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Innlent Útför Steins Ármanns Innlent Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Innlent Jarðsyngur sinn besta vin Innlent Fæddi barn utan við verslun Elko Innlent Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Innlent Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Innlent Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Innlent Rektorarnir svara fyrir sig Innlent Fleiri fréttir Halla ein án fasts nefndarsætis eftir Framsóknarkapal Tvíkjálkabraut konuna en sleppur við fangelsi Braut reglur þegar hann minntist Steins Skera rúma fjóra milljarða af vegagerð Hallinn töluverður en mun minni en búist var við Fæddi barn utan við verslun Elko Daði segir eyðsluseggjum að hemja sig Afkoma borgarinnar tólf milljörðum króna verri en reiknað var með Féllu af þingi en fóru ekki langt „Við tökum þessa stöðu mjög alvarlega“ Útför Steins Ármanns Ráðherra boðar aukið eftirlit Samúel hafi sótt hart að fólki að greiða fyrir fram Rektorarnir svara fyrir sig Opna nýja sundlaug í Urriðaholti Hekla Aurora skorin niður í minjagripi Jarðsyngur sinn besta vin Segja ráðherra hafa gengið fram hjá þingnefnd þegar hann sendi ESB bréf Aðstoðar tugi fórnarlamba Samúels á Spáni Geti leyst mannaflavanda hjúkrunarheimila með tæknilausnum Hafna tilboðum í rekstur skíðasvæðisins og sjá um það sjálf Uppgjör sýni „alvarlega“ stöðu Seltjarnarnesbæjar „Þið fáið ekki að skilgreina hvað íslenska þjóðin sagði“ Verkin segi allt aðra sögu en Kristrún Telja íslenska birgja sátta og áfengisverð í fríhöfninni samkeppnishæft „Við erum að laga Ísland“ Útgjöldin mikil en niðurstaðan rýr Bein útsending: Stefnuræða forsætisráðherra Dæmdir fyrir að sprengja heimagerða sprengju í Múlagöngum Ríkisstjórnin í mun veikari stöðu eftir erfitt sumar Sjá meira