„Fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn“ Ágúst Orri Arnarson skrifar 15. maí 2026 08:02 Kylian Mbappé þurfti að virða ákvörðun Álvaro Arbeloa og setjast á varamannabekkinn. Getty/Sven Hoppe Kylian Mbappé fékk ekki byrjunarliðssæti í leik Real Madrid gegn Oviedo í gærkvöld og þegar hann kom inn af varamannabekknum bauluðu stuðningsmenn liðsins hástöfum.
Mbappé hafði misst af síðustu tveimur leikjum vegna meiðsla og hlotið mikla gagnrýni fyrir að sinna ekki endurhæfingu á æfingasvæði Real Madrid, heldur á snekkju á Ítalíu. Á meðan hann var í burtu stofnuðu stuðningsmenn Real Madrid undirskriftarlista þar sem tugir milljóna minna kvittuðu fyrir það að þau vildu Mbappé burt frá félaginu. Þegar Mbappé sneri svo aftur á Santiago Bernabeu í gærkvöld var hann settur á varamannabekkinn. Vinicius Junior, Gonzalo Garcia og Franco Mastantuono byrjuðu leikinn í fremstu víglínu Real Madrid. „Ég er hundrað prósent í lagi,“ sagði Mbappé, markahæsti leikmaður Real Madrid á tímabilinu með 41 mark í 41 leik. „Ég var ekki í byrjunarliðinu því fyrir þjálfaranum er ég fjórði besti framherjinn, í röðinni á eftir Mastantuono, Vini og Gonzalo. Ég var tilbúinn að byrja en þetta var hans ákvörðun og ég verð að virða hana. Ég hef ekkert á móti Arbeloa. Maður verður að virða vilja þjálfarans og ég verð bara að standa mig betur til að taka fram úr Vini, Gonzalo og Mastantuono.“ 🗣️ Mbappé sobre su suplencia frente al Real Oviedo: "Estoy muy bien. Hoy no he sido titular porque Arbeloa me ha dicho que soy el cuarto delantero de la plantilla". #LALIGAenDAZN ⚽ pic.twitter.com/RBousiSOMQ— DAZN España (@DAZN_ES) May 14, 2026 Arbeloa sagði hins vegar að Mbappé hefði ekki verið tilbúinn að byrja þennan leik. „Ég veit ekki hvað hann hefur tekið út úr samtalinu sem við áttum fyrir leik. Fyrir mér er mjög skýrt að leikmaður sem gat ekki verið í hópi fyrir fjórum dögum síðan, getur ekki byrjað leik fjórum dögum síðar. Sérstaklega ekki þegar þetta er ekki úrslitaleikur eða leikur upp á líf og dauða,“ sagði Arbeloa. Todo o Estádio Bernabéu assobiou a de Mbappé 🤯#DAZNLALIGA pic.twitter.com/CzPXiyFoWK— DAZN Portugal (@DAZNPortugal) May 14, 2026 Stuðningsmenn Real Madrid létu ekki bara Mbappé finna fyrir því heldur einnig forsetann Florentino Pérez. Skilaboð um hann voru hins vegar fjarlægð úr stúkunni, erfiðara hefur verið að skrúfa niður í baulinu. Mbappé kvaðst líka bara hafa gaman af því. „Þetta er hluti af lífinu, þú getur ekki breytt skoðunum fólks þegar það er reitt,“ sagði Mbappé hálfhlæjandi. Stuðningsmenn liðsins bauluðu þó ekki bara, þeir fögnuðu vel þegar Gonzalo Garcia skoraði fyrra markið og Jude Bellingham skoraði seinna markið í öruggum 2-0 sigri.
Spænski boltinn Real Madrid CF Mest lesið Velti fyrir sér að hoppa í ána Sport Þurfti að spretta í markið eftir 102 klukkutíma á hlaupum Sport Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Enski boltinn Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti „Þú ert búinn að fá alla heimsins verki“ Sport Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport „Þetta voru meira en vonbrigði“ Fótbolti ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Sjá meira