Útstrikanir gætu haft áhrif en þær virka svona Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 15. maí 2026 16:14 Dagur B. Eggertsson, Guðlaugur Þór Þórðarson og Árni heitinn Johnsen hafa allir farið niður um sæti á lista eftir útstrikanir. Erfitt er að setja fingur á hve mörg prósent kjósenda þurfa að strika út frambjóðanda til fella hann niður um sæti. Ljóst er að útstrikanir gætu haft áhrif í kosningunum en dæmi eru um að frambjóðendur séu strikaðir út og falli þar með niður um sæti, meðal annars í sveitarstjórnarkosningum fyrir fjórum árum.
Þá var það frambjóðandi í öðru sæti á T-lista í Flóahreppi sem ekki fékk sæti í sveitarstjórn eftir að 29,5 prósent kjósenda strikuðu yfir nafn hennar. Samkvæmt upplýsingum frá kjörstjórn er misjafnt hve margar útstrikanir þarf til þess að þær hafi áhrif á röð frambjóðenda. Þetta sagði Eva Bryndís Helgadóttir, formaður yfirkjörstjórnar í Reykjavík við fréttastofu í morgun. „Það er erfitt að segja nákvæmlega um prósentu af því. Kannski fer það svolítið eftir því hvaða sæti og hvað viðkomandi framboð fær mörg atkvæði í heildina og hvernig þetta, til þess að þetta hafi áhrif, þannig að það er svolítið flókið að segja eitthvað afgerandi um það hvað það þarf mikið af útstrikunum til þess að það hafi áhrif. En stutta svarið er það þarf mikið.“ Svona virkar útstrikun Í kjörklefanum merkir kjósandi með skriffæri X í ferning fyrir framan þann framboðslista sem hann vill kjósa, líkt og fram kemur á vef kjörstjórnar á Ísland.is. Segir í kennslumyndbandi: „Ef þú vilt hafna frambjóðanda á þeim lista sem þú kýst strikar þú yfir nafn hans. Athugaðu að þú mátt hvorki nota önnur tákn, rita annað á kjörseðilinn né gera breytingar á öðrum lista en þeim sem þú kýst, þar sem slíkt getur ógilt atkvæðið.“ Þá segir ennfremur: „Það má strika yfir einstaka frambjóðendur og breyta uppröðun frambjóðenda á þeim framboðslista sem kjósandi kýs. Það má ekki breyta uppröðun annarra framboðslista, það ógildir kjörseðilinn ef það er gert. Það má ekki skrifa neitt annað á kjörseðilinn, til dæmis tákn eða orð, það getur ógilt atkvæðið“ Útstrikanir oft haft áhrif Mörg dæmi eru um að útstrikanir hafi haft áhrif en að uppistöðu eiga flest dæmin við í alþingiskosningum. Þar til í sveitarstjórnarkosningum 2022 giltu aðrar reglur um útstrikanir í sveitarstjórnarkosningum en til alþingiskosninga en því var breytt og gilda nú sömu reglur í sveitarstjórnarkosningum og í alþingiskosningum. Dagur B. Eggertsson var fimm atkvæðum yfir útstrikunarmarki í alþingiskosningunum 2024. Þá voru átta frambjóðendur strikaður út yfir hundrað sinnum og var Dagur langefstur með 1400 útstrikanir. Hann færðist niður í þriðja sæti en var í öðru. Önnur dæmi eru Guðlaugur Þór Þórðarson oddviti Sjálfstæðisflokks sem færðist niður um eitt sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Reykjavíkurkjördæmi suður í alþingiskosningum árið 2009, með um tvö þúsund útstrikanir sem jafngilti um 27 prósenta atkvæða. Árni Johnsen þingmaður Sjálfstæðisflokksins lenti í hinu sama í kosningum árið 2007 og 2009 og færðist niður um lista. Flokksbróðir Árna og Guðlaugs, Björn Bjarnason lenti í hinu sama árið 2007, var í öðru sæti í Reykjavík suður en færðist niður um eitt sæti vegna útstrikana.
Sveitarstjórnarkosningar 2026 Mest lesið Tók reiðiskast í beinni og snerist gegn bandamönnum sínum Erlent Draumur Demókrata að rætast Erlent Dragi uppsagnirnar til baka Innlent Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Innlent Sögulegir sigrar í Bandaríkjunum Erlent Sigraði þrátt fyrir peningaflóð og svik á lokametrunum Erlent Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Innlent Trump hafi nú engu að tapa Erlent Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli Innlent Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Innlent Fleiri fréttir Lögreglumenn fari huldu höfði af ótta við ofbeldi Forvitinn minnihluti styggir bæjarstjórn: „Sláandi tölfræði“ Sýknaður vegna manndráps á Skjólbraut Miðflokkurinn bætir við sig fylgi Skoða fæðingarorlofsmálin Dragi uppsagnirnar til baka Þreytast ekki á að tuða yfir veginum Þrír handteknir fyrir rán Telur uppsagnir geta leitt til kostnaðar seinna meir Hækka framfærsluskilyrði innflytjenda verulega Nemandi nýtti sér öryggisbrest og reyndi að breyta einkunum annarra Feðgin felldu tár yfir reynslu af meintum eltihrelli „Rangfærslur og jafnvel hreinar lygar“ Lögregla telur sig komna með „þokkalega skýra mynd“ Barði barn en málið fyrndist Bárust skrýtin skilaboð þegar sambandinu lauk „Fræða en ekki hræða“ „Það er öllum ljóst að hann hefur frekar verið þeirra megin“ Fullyrða að Daði Már hafi logið að þinginu „Hvernig getur svona klikkuð manneskja ekki ákveðið að gera neitt meira?“ Kosningar í Bandaríkjunum og utanríkisráðherra ræðir Rússa Skipaður formaður 6. áfanga rammaáætlunar Reikna með þrettán milljarða afgangi á næsta ári Fluttur með björgunarskipi þegar þyrlan gat ekki lent vegna þoku Kynntu fjárhagsáætlun borgarinnar Kolbeinsey lifir enn þrátt fyrir spádóma um annað Játaði að hafa makað saur á hurðarhúna Kynntu verkefnið Verum viðbúin „Ekki bíða eftir fyrsta snjónum“ Rússar hnýta í Þorgerði Katrínu vegna ummæla um skrif Heimis Más Sjá meira