Innherji

Spá stórri vaxta­hækkun til að ná aðhaldinu á ný upp í „æski­legt stig“

Hörður Ægisson skrifar
Konráð Guðjónsson er efnahagsráðgjafi IFS Greiningar, sem spáir 50 punkta vaxtahækkun þegar peningastefnunefndin birtir ákvörðun sína næstkomandi miðvikudag, en óhætt er að segja að nefndin sé á vissan hátt milli steins og sleggju um þessar mundir.
Konráð Guðjónsson er efnahagsráðgjafi IFS Greiningar, sem spáir 50 punkta vaxtahækkun þegar peningastefnunefndin birtir ákvörðun sína næstkomandi miðvikudag, en óhætt er að segja að nefndin sé á vissan hátt milli steins og sleggju um þessar mundir. Vísir/Vilhelm

Trúverðugleiki peningastefnunnar er „mjög laskaður“ eftir lang tímabil þar sem verðbólgan hefur verið umfram markmið og nefndin mun sennilega vilja ná fram sama aðhaldi og var áður en verðbólgan fór að rísa á nýjan leik undir lok síðasta árs, að mati hagfræðinga IFS, sem spá því að vextir hækki um fimmtíu punkta í næstu viku.


Tengdar fréttir

Verðbólguþróunin í rétta átt og ætti að slá út af borðinu stóra vaxta­hækkun

Verðbólgumælingin í apríl reyndist vera í lægri kantinum miðað við meðalspá sex greinenda og ólíkt þróun síðustu mánaða voru verðhækkanir ekki á breiðum grunni, en undirliðir á borð við mat, drykk, fatnað og húsgögn stóðu nánast í stað. Skuldabréfafjárfestar brugðust vel við verðbólgutölunum sem ættu að slá út af borðinu vangaveltur um að Seðlabankinn hækki vextina um 50 punkta á næsta fundi.

Nefndin „verður“ að hækka aftur vexti vilji hún viðhalda trúverðug­leika sínum

Við núverandi aðstæður þarf peningastefnunefnd Seðlabankans að senda skýr skilaboð til viðhalda trúverðugleika sínum, að sögn greinenda Acro, en ljóst er að verðbólguhorfur hafa ekki batnað frá síðustu vaxtahækkun fyrir tveimur mánuðum. Þeir telja líklegast að vextir hækki um 25 punkta í næstu viku, en alls ekki sé hægt að útiloka enn stærra skref.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×