Þriðji deildarsigurinn í röð hjá lærisveinum Freys Ágúst Orri Arnarson skrifar 16. maí 2026 14:05 Freyr Alexandersson hefur stýrt sínum mönnum til sigurs í þremur deildarleikjum í röð. Getty/Craig Foy Eftir afleita byrjun í norsku deildinni hefur Brann tekið sig taki. Liðið fagnaði þriðja deildarsigrinum í röð í dag, 2-1 gegn tíu mönnum KFUM Oslo.
Hitnað hafði undir stjórasæti Freys Alexanderssonar eftir þrjú töp í fyrstu fjórum umferðunum í deildinni. Brann hefur hins vegar bætt vel úr því, þó liðið hafi orðið fyrir öðrum vonbrigðum og dottið úr bikarkeppninni fyrr í vikunni. Sigurinn gegn KFUM Oslo í dag var sá þriðji í röð í deildinni og Brann situr nú í 4. sætinu. Leikurinn snerist Brann í vil á 30. mínútu þegar Fredrik Tobias Berglie, varnarmaður KFUM Oslo, fékk beint rautt spjald fyrir að tækla sóknarmann sem var að sleppa í gegn. Brann náði að koma tveimur mörkum í netið fyrir hálfleik. Noah Jean Holm og Vetle Dragsnes voru þar að verki. Tíu leikmenn KFUM Oslo tóku sig svo til í seinni hálfleik og minnkuðu muninn með marki Bilal Njie. Leikurinn varð því óvænt nokkuð spennandi í seinni hálfleik og KFUM Oslo átti fleiri færi en tókst ekki að setja jöfnunarmarkið. Kristall Máni Ingason hefur verið öflugur í síðustu leikjum en komst ekki á blað í dag. Getty/Tullio Puglia Jón Dagur Þorsteinsson og Kristall Máni Ingason voru í byrjunarliði Brann í dag en komust ekki á blað. Sævar Atli Magnússon og Eggert Aron Guðmundsson eru meiddir og voru ekki með Brann í dag.
Norski boltinn Mest lesið Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Fótbolti Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Fótbolti Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Íslenski boltinn Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Fótbolti Orðin hans Gavi gerðu Paredes alveg snaróðan eftir úrslitaleikinn Fótbolti Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Enski boltinn Liðalaus Stones eftirsóttur Fótbolti Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fótbolti Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Fótbolti Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ Fótbolti Fleiri fréttir Stoðsendingarkóngur HM sakaður um að svíkja að borga með barninu sínu Vill afsögn Infantino: „Veit ekki hvort þögnin eða meðsektin er verri“ Fjórði ríkasti maður heims orðaður við kaup á hluta í Liverpool Fór á kostum í vítakeppninni og ekki síður í fögnuðinum Segir Messi hafa rifist við þjálfarann um taktíkina í úrslitaleiknum Vinicius hefur gjörbreyst eftir lýtaaðgerð Rogers og Palmer sameinaðir hjá Chelsea Anderson sendir Nottingham Forest kveðju Liðalaus Stones eftirsóttur Óskar Smári Haraldsson: „Margt í okkar leik sem var ekki í lagi“ „Bið strákana um að vera djarfir með boltann og sækja“ Skoraði tvennu þrátt fyrir fjólubláan fót: „Hefðum kannski átt að refsa þeim meira“ „Tek fyrri hálfleikinn á mig“ Guðni Eiríksson: „Við erum að njóta“ „Búinn að bíða eftir svona leik“ Uppgjörið: Víkingur - Beer Sheva 2-1 | Nikolaj gerði aftur útslagið Uppgjörið: Valur – Breiðablik 1-7 | Hrafnhildur Ása og Agla María tættu vörn Vals í sig Hearts sá ekki til sólar í Austurríki Aston Villa reynir að fá Garnacho Dönsku meistararnir steinlágu fyrir þeim pólsku Uppgjörið: Fylkir – Afturelding 3-4 (1-1) | Afturelding í úrslit bikarkeppninnar í fyrsta sinn Uppgjörið: FH – Stjarnan 7-3 | FH heldur toppsætinu Leggur flautuna á hilluna eftir tuttugu ára dómaraferil Stoltur af argentíska liðinu Flækingur fótboltans enn á flakki á milli félaga Gleði Spánverja mældist á jarðskjálftamælum Gagnrýnir harðlega „tilefnislausar samsæriskenningar“ Yamal sagði frá því hvað hann sagði við Messi Sögulegur leikur fyrir Mosfellinga Pressuóðir Ísraelar í Víkinni Sjá meira