Ingibjörg Sólrún biður Guðmund Árna afsökunar Jakob Bjarnar skrifar 17. maí 2026 14:04 Ingibjörg Sólrún kastaði heldur kaldri kveðju á Guðmund Árna í kosningasjónvarpi Rúv í nótt, eftir að hann hafði gengist við ábyrgð sinni á slakri niðurstöðu úr kosningum Samfylkingar í Hafnarfirði. vísir/einar/vilhelm Ingibjörg Sólrún Gísladóttir fyrrverandi formaður Samfylkingarinnar segist á Facebook-síðu sinni hafa beðið Guðmund Árna Stefánsson, varaformann Samfylkingarinnar og oddvita flokksins í Hafnarfirði afsökunar á orðum sínum í kosningasjónvarpi Ríkisútvarpsins þess efnis að hann hefði kannski mátt íhuga stöðu sína fyrr.
Guðmundur Árni sagðist í viðtali í nótt vera þeirrar gerðar að hann hlypist ekki frá ábyrgð, sú væri hans pólitík og hann tæki fulla ábyrgð á slæmu gengi Samfylkingarinnar. Hann myndi nú íhuga stöðu sína og var helst á honum að skilja að hann ætlaði að hætta í pólitík. Guðmundur Árni setti þó þann fyrirvara á að hann ætti eftir að heyra í sínu fólk en líkast til yrði sú niðurstaðan. Skömmu síðar var Ingibjörg Sólrún í viðtali í sama þætti og hún sagðist telja þetta rétt mat hjá Guðmundi Árna, hann ætti að hugsa sinn gang og hún væri reyndar þeirrar skoðunar að það hefði hann átt að gera fyrir kosningarnar. Heldur voru þetta kaldar kveðjur til manns sem vill gangast við ábyrgð og nú hefur Ingibjörg Sólrún sagt að þetta eigi Guðmundur Árni ekki skilið: „Það var nú ekki sanngjarnt af mér að segja þetta og Guðmundur Árni á þetta ekki skilið. Hann hefur lagt mikið af mörkum til Samfylkingarinnar á undanförnum árum. Ég hef þegar beðið hann afsökunar á þessu,“ tilkynnir Ingibjörg Sólrún nú á Facebook-síðu sinni og telur greinilega að hún hafi farið fram úr sér í viðtali í kosningasjónvarpi Rúv. Vísi hefur ekki tekist að ná tali af Guðmundi Árna í dag til að inna hann eftir því hvort niðurstaða í máli hans liggi fyrir.
Samfylkingin Sveitarstjórnarkosningar 2026 Hafnarfjörður Mest lesið Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða Innlent Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Innlent Sex svín drápust eftir annað innbrot Innlent Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Innlent „Þetta er smjörklípa“ Innlent Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Innlent „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Innlent Skúli Tómas ekki sloppinn eftir allt saman Innlent Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Innlent Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Innlent Fleiri fréttir Talsvert tjón og týndar tennur Eigendur Santé neita sök Samfélagið syrgir ungmennin sem létust Sex svín drápust eftir annað innbrot „Þetta er smjörklípa“ Minningarstundir og ESA undirbýr dómsmál Stúlkan frá Írlandi en búsett hér á landi Skoða að stefna Íslandi vegna bókunar 35 Aðild að ESB hafi aldrei verið markmið í sjálfu sér Einn grunaður um íkveikju á Center Hotel Skjaldbreið Bruninn mikið áfall og tjónið líklega verulegt í versluninni Um þriðjungur þjóðarinnar horfði á síðasta fréttatímann Flúði hótelherbergið vegna brunans og gleymdi tönnunum Vinnuframlag Skúla Tómasar afþakkað Eldri borgarar fái sanngjarnari tekjur þrátt fyrir aukin gjöld Gestir fluttir á önnur hótel vegna skemmda eftir brunann Enginn handtekinn vegna hótana í garð Þorgerðar Lægð nálgast og hviður geta orðið bílum skeinuhættar Líklega á yfir tvö hundruð kílómetra hraða „Hér var enginn glæpur og ekki heldur gáleysi“ Tveir á slysadeild í kjölfar bruna á hóteli í miðbænum Tvær líkamsárásir í miðbæ í nótt Hálft ár fyrir ræktun á þriðja hundrað kannabisplantna Kynna úrræði sem eigi að liðka fyrir kjarasamningum „Óharðnaðir unglingar sem kunna ekkert á lífið“ Allir níu áfram í haldi Mátti ekki gefa blóð í gær en gerði það í dag Staðan hafi ekki verið betri á þessari öld Halla verður viðstödd útför Haraldar Ætli að leggja áherslu á bókun 35 Sjá meira